Úti - 15.12.1931, Side 31
Ú T I
29
Á FERÐ.
EFTIR JÓN HALLGRÍMSSON
SKÁTAFORINGJA.
Jón Hallgrimsson.
Sólin er að hníga til viðar, kvöldhúm-
ið er að færast yfir foldina, dalalæða
tyllir sjer á liæstn tinda fjallanna, læk-
irnir renna suðandi ofan lilíðina. Rödd
vorsins seiðir, livislar: Kom þú og njót
lífsins frjáls.
Hvað er á ferð þarna á veginum? Það
færist nær fjöllunum en f jarlægist bæinn.
Ellefu skátar á ferð, klyfjaðir ýmsum
farangri.
Hestarnir þeirra renna áfram — áfram
eftir veginum, alla leið að Skátalág.
Skátalág, HÚRRA, kveður við um leið
og hópurinn nemur staðar, á dálítilli
grasigróinni flöt vestan við lækinn, er
rennur þar hjá. Djúpá er heiti hans, þótt
smár sje.
Skátarnir leysa nú farangu-r sinn. Það
er fyrsta útilega sumarsins, sem nú er að
Iiefjast. Skátarnir ráða sjer varla fyrir
fjöri. Þeir eru glaðir yfir komu sumars-
ins, þeir eru leystir af dvala vetrarins,
rvk, og dægurþrasi bæjarlífsins og' laus-
ir við setu á beinhörðum skólabekknum
um stund, til þreksöfnunar um sumar-
tímann og til að fá notið hollrar hvíld-
ar í skauti ættjarðar sinnar.
Tjöldin eru reist, hestunum skipulega
raðar. Suðuvjelin er tekin til að kveð-
ast á við lækinn. Skátarnir komnir til
leika.
Knötturinn þýtur fram og aftur, allir
reyna að vera leiknir með boltann,
en það vill ganga upp og ofan, og nú
lenti boltinn í læknum, en nær samtímis
er hann kominn inn á miðjan völlinn og
leikurinn heldur áfram með lífi og fjöri.
Nú er kallað til kvöldverðar. Skátarnir
koma með nesti sitt og setjast að snæð-
ingi og drekka sjóðandi heitt kakaó.
Meðan á borðlialdinu stendur er ýmis-
legt skemtilegt á dagskrá úr daglega lif-
inu, er allir geta hlegið að.
Er skátarnir hafa matast, er tekið til
í Skátalág.
að koma farangrinum og sjálfum sjer
fyrir í tjöldunum. Það gengur ágætlega
og senn eru allir lagstir i hvílupoka sína.
Nú her margt skemtilegt á góma, sagðar
sögur, skrítlur og sungin kvæði. Síðan
hjóða allir góða nótt. Er þá hljótt í tjöld-
unum.Svefndísin kveður okkur Ijóð vors-
ins í næturkyrðinni.
Þau ljóð eru fögur.