Skessuhorn - 08.05.2015, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 2015
Passíusálmar Hallgríms Pétursson-
ar voru ortir á Vesturlandi á þeim
árum þegar skáldið og presturinn
bjó í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd
með eiginkonu sinni Guðríði Sím-
onardóttur. Þegar Hallgrímur hafði
lokið við að yrkja þá skrifaði hann
út fimm eintök af sálmunum eigin
hendi. Eitt þeirra sendi hann pró-
fasti sínum að Melum í Melasveit á
Vesturlandi. Hin fjögur sendi hann
til jafn margra kvenna. Tvær þeirra
bjuggu á Vesturlandi, það er í Borg-
arfirði og á Mýrum. Sú þriðja var
fædd og uppalin á Akranesi en ný-
lega brottflutt austur í Flóa. Fjórða
konan var svo Ragnheiður Brynj-
ólfsdóttir Skálholtsbiskups Sveins-
sonar. Hann var á þeim tíma um-
svifamikill jarðaeigandi og útgerð-
armaður á Vesturlandi. Nú í vor
rekur Steinunn Jóhannesdóttir rit-
höfundur, leikari og leikstjóri lífs-
sögur þeirra hjóna Hallgríms og
Guðríðar í sýningu á Sögulofti
Landnámsseturs Íslands í Borg-
arnesi. Það er vel við hæfi, mitt á
Vesturlandi þar sem Hallgrímur og
Guðríður áttu sín bestu ár.
Skilað miklu verki
Sjálf er Steinunn fædd og uppal-
in á Akranesi, dóttir hjónanna Jó-
hannesar Finnssonar og Bjarnfríðar
Leósdóttur sem lést í marsmánuði
síðastliðnum. Steinunn bjó á Akra-
nesi til 16 ára aldurs að hún hleypti
heimdraganum til náms. Í dag býr
hún í Reykjavík ásamt eiginmanni
sínum Einari Karli Haraldssyni.
Á kvöldi skírdags frumsýndi
Steinunn „Örlagasögu Hallgríms
og Guðríðar“ fyrir fullu húsi í
Landnámssetrinu. Sýningar standa
enn yfir en Steinunn hefur um ára-
bil kynnt sér sögu þeirra hjóna.
Þegar liggja eftir hana tvær stór-
ar heimildaskáldsögur. Sú fyrri er
Reisubók Guðríðar Símonardóttur
sem kom út árið 2001. Sú bók hefur
komið út í mörgum prentunum og
verið gefin út í Noregi og Þýska-
landi. Hin bókin er „Heimanfylgja.
Skáldsaga um uppvöxt Hallgríms
Péturssonar byggð á heimildum
um ættfólk hans og samtíð,“ frá
árinu 2010. Auk þessa hefur Stein-
unn skrifað leikrit um sögu Guð-
ríðar, barnabók um æsku Hallgríms
auk ritgerða. Hún hefur líka haldið
ótal fyrirlestra um þau hjón og sögu
þess tíma er þau voru uppi. Sýning-
in í Landnámssetrinu er nýjasti af-
rakstur þeirrar vinnu sem Steinunn
hefur lagt í að rannsaka og koma á
framfæri sögu Hallgríms og Guð-
ríðar.
Vinna sem hófst í
leikhúsi
Við settumst niður með Steinunni
á heimili hennar í Reykjavík til að
heyra meira um hennar störf. Að-
spurð segir Steinunn að frumorsök-
ina fyrir því að hún fór að kynna sér
ævi Hallgríms og Guðríðar megi
líklega rekja til þess er hún starf-
aði sem leikkona í Þjóðleikhúsinu.
„Þar lék ég Guðríði Símonardótt-
ur í leikritinu Tyrkja-Guddu eftir
fyrrverandi prest í Hallgrímskirkju í
Reykjavík sem var séra Jakob Jóns-
son. Þetta var jólasýning leikhússins
1983 til 1984.“
Um áratug síðar fór Steinunn
að kynna sér betur sögu Guðríð-
ar og Hallgríms. Hún varð vör við
mikinn áhuga á efninu og var beð-
in að halda fyrirlestra. „Fólki þótti
þessi saga af konu frá 17. öld greini-
lega spennandi. Ég var í framhald-
inu beðin um að skrifa leikrit um
Hallgrím og Guðríði sem hægt yrði
að setja upp í Hallgrímskirkju. Það
varð strax áhugi á að fá það til sýn-
inga í kirkjum víða um land. Efir því
sem ég kynntist sögunni betur fór
að vakna með mér löngun til að gera
meira úr þessu efni. Ég ákvað að
skrifa heimildaskáldsögu sem varð
Reisubók Guðríðar Símonardótt-
ur. Ég ferðaðist víða til að afla fanga,
fór í fótspor Guðríðar, þræddi allar
söguslóðir Tyrkjaránsins hér heima
og erlendis, meðal annars til Alsír í
Norður Afríku. Þangað voru hátt í
400 Íslendingar fluttir sem hertekn-
ir voru hér á landi í Tyrkjaráninu
1627. Guðríður var jú ein af þeim.“
Skoðaði æskuár
Hallgríms
Árið 2010 kom svo önnur bók;
Heimanfylgja. Sagan af Hallgrími
ungum hafði tekið yfir í huga Stein-
unnar. „Ég ákvað að skrifa um æsku-
ár Hallgríms Péturssonar til að
varpa ljósi á það hvað mótaði hann
sem ungan dreng. Ég hafði feng-
ið aðstöðu á Hólum í Hjaltadal í
Skagafirði þar sem Hallgrímur ólst
upp. Á Hólum stóð þá yfir fornleifa-
gröftur. Um leið og ég var þarna
stóðu yfir rannsóknir á búsetuminj-
um frá þeim tíma þegar Guðbrand-
ur Þorláksson var biskup og Hall-
grímur Pétursson var að alast þar
upp. Rústir Hólaprentsmiðju fund-
ust. Þegar stafirnir úr prentverkinu
komu upp úr jörðinni þá varð þetta
eitthvað svo áþreifanlegt. Hall-
grímur var þarna ungur drengur á
þessum tíma á milli þessara ótrú-
legu fjalla sem umkringja Hjalta-
dalinn. Hólar voru miðstöð bóka-
útgáfu í landinu. Þarna var lagður
grunnur að menntun prestastétt-
arinnar og síðar almennings. Þessa
menntabyltingu upplifði Hallgrím-
ur Pétursson á sinn hátt sem dreng-
ur. Hann ólst upp innan um prent-
verk, bækur, skólalíf og trúariðkun.
Þarna voru margar sterkar persónur
af báðum kynjum og öllum stéttum.
Hann kynntist Guðbrandi Þorláks-
syni, Arngrími Jónssyni og Þorláki
Skúlasyni og konum eins og Hall-
dóru Guðbrandsdóttur dóttur bisk-
ups. Eftir því sem ég hugleiddi þetta
meira þá fann ég fyrir sterkari löng-
un til að skrifa bók um það hvern-
ig þessi strákur varð til, draga upp
mynd af þessu magnaða umhverfi
sem mótaði hann.“
Þriðja bókin í smíðum
Steinunn Jóhannesdóttir segir að
henni hafi líka fundist hún verða að
gera bakgrunni Hallgríms skil áður
en hún héldi áfram að fást við árin
sem Hallgrímur og Guðríður áttu
saman síðar meir. „Æskuárin skipta
svo miklu í mótun persónunn-
ar Hallgríms Péturssonar og skýrir
kannski margt í hans höfundarverki
og þeirri stefnu sem hann tók síðar í
lífinu. Þriðja heimildaskáldsaga mín
um Hallgrím og Guðríði er þannig
í undirbúningi. Hún mun segja frá
tímaskeiðinu eftir að þau verða hjón.
Sögusvið hennar verður auk Suður-
nesja að stærstum hluta á Vestur-
landi. Í seinni hluta sýningar minn-
ar í Landnámssetrinu gef ég innlit í
atburði þess tímabils í lífi beggja og
það efni sem ég hef verið að vinna
með þar.“
Steinunn leitar víða fanga þegar
hún semur bækur sínar. Það er ekki
alltaf auðvelt að finna heimildir og
vísbendingar þegar fjallað er um fólk
sem var uppi fyrir um fjórum öldum.
„Ég reyni að rýna í tengsl fólks eftir
því sem heimildir leyfa. Það kemur
ýmislegt í ljós og hugmyndir kvikna
þegar þau eru skoðuð. Annálar, al-
þingisbækur, bréfabækur, ættartöl-
ur, dómsskjöl og fleira gagnast vel
við þessa vinnu. Sjálft höfundarverk
Hallgríms, bæði ljóð hans og laust
mál, geymir auðvitað marga lykla.
Og eins og fyrir Reisubókina hef ég
heimsótt söguslóðir bæði hér heima
á Íslandi og erlendis.“
Fól sálmana konum
Á síðasta ári var þess minnst að 400
ár voru liðin frá fæðingu Hallgríms
Péturssonar. „Ég hélt allnokkra
fyrirlestra þar sem ég sagði frá
uppvaxtar- og þroskaárum hans.
Ég hafði svo umsjón með Passíu-
sálmalestrinum í Saurbæ á Hval-
fjarðarströnd. Í tengslum við þetta
hafði ég farið að grafast nánar fyrir
um eitt sem mér þótti afar merki-
legt. Á þeim tíma sem Hallgrímur
var að ljúka við Passíusálmana, bú-
settur sem sóknarprestur í Saurbæ
á Hvalfjarðarströnd, maður á besta
aldri einungis 45 ára gamall, þá
valdi hann fjórar konur til að taka
sálmana að sér. Hann var búinn að
fá umsögn um þetta verk sitt frá
manni sem hann treysti, að það væri
gott og þyrfti að komast út og víða.
Þá sendi hann handrit Passíusál-
manna til þessara fjögurra kvenna.
Það fyrsta sendi hann til dóttur
velgerðarhjóna sem hann hafði átt
á Ytra-Hólmi við Akranes. Hún
hét Ragnhildur Árnadóttir og bjó
þarna í Kaldaðarnesi í Flóa. Næstu
handrit fóru svo til mágkvennanna
Helgu Árnadóttur í Hítardal á
Mýrum og Kristínar Jónsdóttur í
Einarsnesi í Borgarhreppi. Í Híta-
rdal var stunduð handritasöfnun og
mikil fræðaiðkun. Þar bjó mennt-
að fólk og sömuleiðis í Einarsnesi.
Síðan sendi Hallgrímur fjórða ein-
takið til Ragnheiðar Brynjólfsdótt-
ur biskupsdóttur í Skálholti.“
Steinunn vekur athygli á að
Hallgrímur skyldi senda handrit
að sálmunum sem hann hafði skrif-
að eigin hendi til fjögurra kvenna.
Tvær bjuggu á Vesturlandi, ein
hafði búið þar en var nýflutt á Suð-
urland og sú fjórða bjó á biskups-
setrinu í Skálholti. Hann þekkti
þær allar. Með þessu sýndi hann
þeim mikið traust. „Hann var að
tryggja varðveislu sálmanna með
Steinunn Jóhannesdóttir leikstjóri og rithöfundur:
„Merkustu verk Hallgríms Péturssonar urðu til á
Vesturlandi og tengsl hans þar voru sterk“
Steinunn Jóhannesdóttir við afsteypu af minnismerki Einars Jónssonar myndhöggvara um Hallgrím Pétursson. Verkið
stendur í garðinum við listasafn Einars á Skólavörðuholti í Reykjavík.
Frásagnarsýning Steinunnar „Örlagasaga Hallgríms og Guðríðar“ var frumsýnd
á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi á Skírdag. Þessi mynd var þá tekin að
lokinni sýningunni.
Ritverk Steinunnar Jóhannesdóttur sem fjalla um Hallgrím Pétursson og Guðríði
Símonardóttur.
Hallgrímskirkja í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd þar sem Hallgrímur Pétursson
var prestur. Fremst á myndinni er legsteinn hans en þau Guðríður hvíla bæði í
kirkjugarðinum í Saurbæ.