Skessuhorn - 08.05.2015, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 2015
að niður. Nú er verið að vinna í því
að laga húsakostinn, bæði gera við
ýmislegt, þrífa og snyrta.Við erum
að útbúa um 750 fermetra húsnæði
sem við höfum fengið til afnota hjá
Borgarbyggð. Það er hluti af gömlu
fjárréttinni svokölluðu hér í Brák-
arey sem fyrrum tilheyrði sláturhús-
inu. Síðan fáum við líka til afnota
það sem eitt sinn kallaðist „gúanó-
ið“ og hýsti kjötmjölsverksmiðju
sláturhússins. Það er í kringum 300
fermetrar. Þetta er fyrst og fremst
hugsað sem geymsluhúsnæði. Það
á þó eftir að útfæra nánar nákvæm-
lega með hvaða hætti. Kannski verð-
ur þetta húsnæði að einhverju leyti
nýtt til sýninga, það á eftir að koma í
ljós,“ segir Ólafur Helgason.
Mikill og vaxandi áhugi
Sæmundur Sigmundsson rútu-
bílstjóri er einn af stofnfélögum
Fornbílafjelagsins og á sæti í stjórn.
Hann er mikill áhugamaður um
gamla bíla og samgöngusöguna. „Já,
þessi félagsskapur okkar hefur dafn-
að svakalega á þessum fjórum árum
sem liðin eru frá stofnun. Áhuginn
er mikill og þetta er virkilega gam-
an. Hér í húsnæðinu erum við með
eitthvað í kringum 30 bíla til sýn-
ingar við góðar aðstæður. Bíla af öll-
um stærðum og gerðum og frá mis-
munandi tímaskeiðum. Það má allt-
af deila um hvort við eigum að hafa
færri bíla og þá fallegri eða safna
öllu sem við komumst yfir. Það er
ekki hægt að bjarga öllu því það
kostar að gera upp bíla. Ég vil hafa
þetta minna en fallegra en það er
mín skoðun. Mér er alveg sama hver
á bílana, bara að þeir séu hérna,“
sagði Sæmundur í spjalli við Skessu-
horn kvöldið sem aðalfundurinn var
haldinn. Sjálfur á hann nokkra forn-
bíla.
Leynigestur á laugardag
Á aðalfundinum mátti greina til-
hlökkun félaga í Fornbílafjelagi
Borgarafjarðar til sumarsins fram-
undan. Stóra sýningin með Röftun-
um verður í Brákarey á laugardag-
inn. Á fundinum kvisaðist út að á
hana væri væntanlegur leynigestur
sem eigi eftir að vekja gríðarlega at-
hygli en ekkert var nánar gefið upp
um það. Fleiri viðburðir eru svo síð-
ar í sumar. Þar má nefna Hvanneyr-
ardaginn í júlí þar sem meðal ann-
ars er haldið upp á gamlar dráttar-
vélar og önnur landbúnaðartæki.
Hefð er fyrir því að Fornbílafjelag
Borgarfjarðar komi þá í hópakstri að
Hvanneyri og mikið um dýrðir.
mþh
„Nú er sumarið komið,“ sögðu
félagar Daníels Jónssonar í Ólafs-
vík þegar Danni, eins og hann er
gjarnan kallaður, var kominn um
borð í trilluna sína Bjartmar sem
stóð uppi á landi. Að sögn Daní-
els er þetta 21. trillan sem hann
gerir upp um ævina. „Æ, ég ætlaði
að vera löngu hættur þessu,“ seg-
ir Daníels og brosir þegar frétta-
ritara ber að garði. „Ég fékk þessa
trillu í fyrrasumar og er búinn að
vera að dytta að henni þegar veð-
ur leyfir. Ég er búinn að skipta um
ellefu borð í skrokknum auk þess
að taka upp vélina. Báturinn var
smíðaður 1966 og var upphaflega
póstbátur í Arnarfirði. Bara það
eitt og sér segir mér að ég verði að
klára þennan bát sem á sér merka
sögu og er með góða sál.“
af
Gerir nú upp gamlan
póstbát úr Arnarfirði
Næstkomandi laugardag halda
Fornbílafjelag Borgarfjarðar og bif-
hjólaklúbburinn Raftar sameigin-
lega stórsýningu í Brákarey í Borgar-
nesi. „Þessi viðburður var með þess-
um hætti í fyrsta skipti í fyrravor og
tókst afar vel. Bæði vakti hann mikla
athygli og svo var aðsóknin frábær.
Við verðum á ferðinni á fornbílum
en ekki skipuleg hópkeyrsla. Það
verður mótorhjóla- og fornbílasýn-
ing. Gömlu bílarnir fara út undir
bert loft. Hingað koma gestir á mót-
orhjólum. Það verður svo kaffisala.
Þetta verður með sama hætti og í
fyrra,“ segir Ólafur Helgason for-
maður Fornbílafjelags Borgarfjarð-
ar í samtali við Skessuhorn.
Aðalfundur Fornbíla-
fjelagsins
Á þriðjudag í síðustu viku var hald-
inn aðalfundur Fornbílafjelags-
ins í húsakynnum þess í Brákarey.
„Klúbburinn var stofnaður 2011 og
er því fjögurra ára. Félagar eru um
140 talsins. Þeir koma alls staðar að,
félagatalið er ekki bundið við Borg-
arfjörðinn. Þó hefur fjölgað í honum
af fólki sem býr hér í Borgarbyggð
og greinilegt að áhugi er til staðar
á gömlum bílum og samgöngusög-
unni hér á þessum slóðum,“ seg-
ir Ólafur. Hann hefur gegnt emb-
ætti formanns klúbbsins frá stofnun.
Á þriðjudag var hann endurkjörinn
ásamt öðrum í stjórninni sem alls
telur fimm manns.
Klúbburinn hefur aðsetur í Brák-
arey þar sem búið er að vinna stór-
virki í að endurbæta hluta af gamla
sláturhúsi Kaupfélags Borgfirðinga
og breyta í sýningarsal fyrir gamla
bíla og aðstöðu fyrir félagsstarfið.
„Hér verður opið alla daga í sumar.
Bæði virka daga og um helgar, milli
klukkan 13 og 17 frá 1. júní til 31.
ágúst. Á veturna er opið hér á laug-
ardögum. Síðan höfum við opið á
þriðjudagskvöldum en þá hittast
félagarnir.“
Breiða úr sér í Brákarey
Fornbílafjelag Borgarfjarðar heldur
áfram að stækka við sig í Brákarey.
Nú í vetur og vor hefur verið unnið
af kappi. „Við höfum fengið þennan
húsakost án endurgjalds frá Borg-
arbyggð gegn því að engar kvaðir
fylgi því á hendur sveitarfélaginu.
Að öðrum kosti hefði þetta hús-
næði vafalaust staðið autt og grotn-
Mikið verður um dýrðir í Brákarey á laugardaginn þegar Raftar og fornbílamenn boða til hátíðar
Öflug starfsemi Fornbílafjelags Borgarfjarðar
Stjórn Fornbílafjelags Borgarfjarðar. Frá vinstri; Gunnar Gauti Gunnarsson, Sæmundur Sigmundsson, Ólafur Helgason, Jón
G. Guðbjörnsson og Ólafur S. Eggertsson.
Úr sýningarsal félagsins þar sem geymdir eru um 30 fornbílar.
Gamla fjárréttin svokallaða í Brákarey sem félagsmenn Fornbílafjelagsins eru nú
að standsetja fyrir starfsemi sína.
Þessa gömlu og litlu rútu kannast margir Vestlendingar við. Hún var um árabil í
eigu Sæmundar Sigmundssonar en endaði ferilinn sem skólabíll í Lundarreykjadal
í eigu Friðjóns Árnasonar frá Kistufelli. Hún bíður nú betri tíma og hugsanlegrar
uppgerðar. Yfirbygging hennar er íslensk smíði ofan á grind úr Rússajeppa.
Tveir brautryðjendur í samgöngumálum þjóðarinnar ræðast við, þeir Sæmundur
Sigmundsson rútubílstjóri og Árni Sigurbergsson flugstjóri. Báðir eru fornbíla-
áhugamenn. Árni á vörubíl frá 1928 sem var lengi í eigu foreldra hans við Höfn í
Hornafirði en stendur nú uppgerður í Brákarey.
Ford A-vörubíll Árna Sigurbergssonar árgerð 1928, gerður upp af honum sjálfum
er augnayndi til sýnis hjá Fornbílafjelagi Borgarfjarðar.