Skessuhorn - 08.05.2015, Side 34
34 MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 2015
Hvað ætlar þú að
gera í sumar?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Aldís Eir Valgeirsdóttir:
Bara vinna hjá HB og fara í úti-
legur og svona með fjölskyld-
unni.
Leó Snær Guðmundsson:
Ég ætla að vinna á golfvellinum
við að slá völlinn. Svo ætla ég að
spila fótbolta og smá golf.
Matthías Haukstein Ólafsson:
Ég ætla að vinna í sumar. Svo er
ég meiddur þannig að ég verð
líka í endurhæfingu fyrir fót-
boltann.
Elínborg Egilsdóttir:
Ég verð að vinna á Barmahlíð
á Reykhólum og svo ætla ég að
ferðast og skoða eitthvað.
Jón Hjörvar Valgarðsson:
Ég ætla að vinna og spila fót-
bolta.
Hið árlega Herrakvöld Víkings
í Ólafsvík var haldið síðastliðið
föstudagskvöld. Að sögn viðstaddra
var kvöldið afar vel heppnað, líkt og
áður. Um fimmtíu herrar mættu og
áttu saman mjög svo skemmtilega
kvöldstund. Leikmenn meistara-
flokks þjónuðu til borðs og var boð-
ið upp á humarsúpu að hætti Vík-
inga og Víkinganaut ásamt meðlæti
í aðalrétt. Kári Viðarsson sá um
veislustjórnina eins og honum ein-
um er lagið. Jónas Gestur Jónasson
formaður meistaraflokks hélt ræðu,
þar sem hann fór yfir síðasta ár en
ræðumaður kvöldsins var Magnús
Þór Jónsson fráfarandi skólastjóri.
Dregið var í leikmannahappdrætti
Víkings ásamt því að nokkrar Vík-
ingstreyjur voru boðnar upp. Einn-
ig var boðin upp landsliðstreyjan
sem Ari Freyr Skúlason spilaði í
þegar Ísland mætti hollenska lands-
liðinu og sigraði. Nú styttist í að
fótboltasumarið fari á fullt og hefst
keppni í 1. deild karla föstudaginn
8. maí. Víkingur Ólafsvík spilar svo
fyrsta leik sumarsins á heimavelli
þann 9. maí við Hauka.
þa
Borgnesingar eignuðust Íslands-
meistara í samkvæmisdansi á Ís-
landsmeistaramótinu sem hald-
ið var í Laugardalshöllinni helgina
25.-26. apríl síðastliðnum. Það voru
þau Anton Elí Einarsson og Arna
Jara Jökulsdóttir sem urðu meist-
arar í latin dönsum en þau keppa
í flokki unglinga II, í efsta getu-
stigi í grunnsporum. Anton Elí og
Arna Jara eru bæði á fjórtánda ald-
ursári og æfa dans hjá Dansíþrótta-
félagi Hafnarfjarðar. Dansparið
hefur staðið sig mjög vel á þessu
ári og eru þau ósigruð í latin döns-
um á árinu í sínum flokki. Þá urðu
þau RIG meistarar á Reykjavíkur-
leikunum í janúar, bikarmeistar-
ar í mars og lönduðu Íslandsmeist-
aratitlinum núna. Í ballroom döns-
um hafa þau unnið tvenn brons-
verðlaun og ein silfurverðlaun á
árinu. Einnig fóru þau í viku langa
keppnisferð á eitt stærsta dansmót í
heimi til Blackpool á Englandi um
páskana. grþ
Styrktarfélagið Göngum saman
efnir til vorgöngu fyrir alla fjöl-
skylduna víða um land á mæðra-
daginn, sunnudaginn 10. maí
klukkan 11. Vitað er að hér á
Vesturlandi verður a.m.k. geng-
ið í Borgarnesi og Stykkishólmi. Í
tilkynningu frá hópnum í Borgar-
nesi segir að lagt verði af stað frá
íþróttahúsinu og gengið um bæ-
inn í tæpa klukkustund. Göng-
unni lýkur við Geirabakarí. Auk
þessara staða verður gengið í
Reykjavík, á Patreksfirði, Ísafirði,
Hvammstanga, Siglufirði, Ak-
ureyri, Egilsstöðum, Neskaup-
stað, Fáskrúðsfirði, Höfn, í Vest-
mannaeyjum og á Selfossi. All-
ar göngur hefjast kl. 11 og nánari
upplýsingar um hvern stað verð-
ur að finna á heimasíðunni www.
gongumsaman.is
Gangan er gjaldfrjáls en göngu-
fólki gefst kostur á að styrkja
rannsóknir á brjóstakrabbameini
með frjálsum framlögum eða
með því að festa kaup á varningi
Göngum saman. Í ár verða meðal
annars seldir bolir og höfuðklút-
ar sem hannaðir voru sérstaklega
fyrir félagið af Jör og margnota
innkaupapokar hannaðir af Sigur-
borgu Stefánsdóttur.
Brjóstabollur
með kaffinu alla
mæðradagshelgina
Styrktarfélagið Göngum saman
nýtur góðs af samstarfi við Lands-
samband bakarameistara sem stend-
ur fyrir sölu á brjóstabollum í bak-
aríum um allt land dagana 7. – 10.
maí í tengslum við mæðradaginn.
Landsmenn eru hvattir til að bjóða
upp á brjóstabollur með kaffinu alla
mæðradagshelgina og láta þannig
gott af sér leiða, brjóstanna vegna.
Styrktarfélagið Göngum saman
styrkir grunnrannsóknir á brjósta-
krabbameini og úthlutar styrkjum
í október ár hvert. Göngum sam-
an er grasrótarfélag þar sem allir
gefa vinnu sína og megináhersla er
á að öll framlög einstaklinga renni
óskipt í styrktarsjóð félagsins. Frá
stofnun félagsins, haustið 2007,
hefur um 50 milljónum verið út-
hlutað til íslenskra rannsóknarað-
ila á sviði brjóstakrabbameins og í
haust er stefnt að því að 10 milljónir
renni til vísindarannsókna. Göng-
um saman leggur áherslu á mikl-
vægi hreyfingar til heilsueflingar
og á vegum félagsins eru vikulegar
göngur á nokkrum stöðum á land-
inu mestan hluta ársins.
mm
Vorsýning Fimleikafélags Akra-
ness fór fram síðastliðinn laugar-
dag í íþróttahúsinu við Vesturgötu.
Þátttakendur voru á breiðu aldurs-
bili, frá fimm til átján ára en all-
ir krakkar innan fimleikafélagsins
tóku þátt í sýningunni, sem nú var
haldin í fjórða sinn. Þemað í ár var
Lísa í Undralandi og að sögn Stef-
aníu Sólar Sveinbjörnsdóttur, sem
hafði yfirumsjón með sýningunni,
var þetta stærsta sýningin sem fim-
leikafélagið hefur haldið. „Við höf-
um alltaf verið með þema en þetta
er í fyrsta skipti sem við bætum smá
leik inn í. Við vorum búin að vera
að æfa fyrir þessa sýningu síðan í
lok febrúar og þjálfararnir lögðu
mikla vinnu í atriðin sín. Krakkarn-
ir bjuggu svo til skreytingar ásamt
þjálfurum og tóku þátt í sem mest-
um undirbúningi,“ sagði Stefanía
Sól í samtali við Skessuhorn. Sýn-
ingin var hin glæsilegasta og lögðu
fjölmargir áhorfendur leið sína í
íþróttahúsið. „Það var alveg pakkað
út að dyrum, það komu svo margir
áhorfendur.“
Stefanía Sól segir að eitt af mark-
miðunum með að setja upp svona
sýningu sé að vekja athygli á því
hversu flottir fimleikakrakkar séu á
Skaganum. „Og við viljum benda
á það í leiðinni hvað það er sorg-
legt að við séum ekki með aðstöðu
sem hentar þeim betur og gerir
þeim kleift að æfa fleiri og erfið-
ari stökk. Við getum til að mynda
ekki tekið fleiri iðkendur inn í fé-
lagið núna vegna aðstöðuleysis og
þrengsla í æfingasalnum. Þar fyrir
utan fara 40 mínútur af æfingatím-
anum okkar í að bera mjög þung
áhöld fram og til baka til þess að
hægt sé að æfa. Það fer bæði illa
með flottu og fínu áhöldin okk-
ar sem og bök iðkenda og þjálf-
ara. Það er löngu orðið tímabært
að Fimleikafélag Akraness fái fim-
leikahús. Við erum búin að reyna
að ná því fram í sjö ár og bíðum
enn.“
grþ/ Ljósm. Ágústa Friðriksdóttir.
Meðfylgjandi mynd er úr safni Skessuhorns og tekin í upphafi einnar af fyrstu
skipulögðu Göngum saman ferðunum sem farnar hafa verið í Borgarnesi.
Mæðradagsganga Göngum saman verður á sunnudaginn
Leikmannatreyjur voru seldar á uppboði ásamt því að dregið var í leikmanna-
happdrætti Víkings.
Herrakvöld Víkings
haldið í Ólafsvík
Nýkrýndu Íslandsmeistararnir í góðri sveiflu. Ljósm. Þóra Þorkelsdóttir.
Íslandsmeistarar í
latin dönsum
Stærsta vorsýning FIMA til þessa
Sýningin var hin glæsilegasta. Hér má sjá elstu nemendur fimleikafélagsins sem
er í umsjón Stefaníu Sólar, Marenar Óskar, Höllu og Írisar Tinnu.
Yngstu nemendur fimleikafélagsins
eru fimm ára og voru fiðrildi á
sýningunni. Hópurinn er í umsjón Elísu
Svölu og Stefaníu Sólar.