Skessuhorn


Skessuhorn - 28.09.2016, Qupperneq 4

Skessuhorn - 28.09.2016, Qupperneq 4
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 20164 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.835 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.457. Rafræn áskrift kostar 2.226 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.058 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Lísbet Sigurðardóttir lisbet@skessuhorn.is Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is Þórarinn Ingi Tómasson toti@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Að kalla eftir virðingu annarra Á morgun verður réttur mánuður þar til Íslendingar ganga að kjörborðinu og kjósa nýtt þing. Um margt verða þessar kosningar óvenjulegar. Nefna má að þær fara fram þegar hálft ár verður eftir af hefðbundnu kjörtímabili og þær marka einnig ákveðin tímamót í óvenjulegu róstursömu og leiðinlegu ári í ís- lenskum stjórnmálum. Í aðdraganda kosninga loga sumir stjórnmálaflokkar af innri átökum og baráttu um völd og vegtyllur, í stað þess að vera nú að kynna stefnumál sín og áherslur til að ganga í augu kjósenda. Ef niðurstaða kosninganna í lok október verður í einhverri líkingu við það sem skoðanakannanir nú gefa vísbendingar um er nánast útilokað að hægt verði að mynda tveggja flokka ríkissjórn að þeim loknum. Raunar má þakka fyrir að niðurstaðan verði svo afdráttarlaus að þrír flokkar dygðu til að mynda starfhæfa stjórn. En vika er náttúrlega langur tími í pólitík og hvað þá fjór- ar. Reyndar held ég að við þær aðstæður sem nú ríkja verði þeim flokkum sem koma til með að móta stjórn hollt að þurfa að leita lausna í hópi þriggja eða jafnvel fjögurra flokka. Þá verða menn að semja um áherslur og halda sig við áætlun sem gerð er í upphafi. Það er erfiðara fyrir ríkisstjórnarflokka að standa ekki við fyrirheit sín þegar samstarfsaðilarnir eru fleiri en tveir. Auð- vitað þýðir það ákveðna hættu á viðgangi villikatta, eins og við þekkjum úr nýlegri sögu, og þar af leiðandi gætum við hæglega upplifað tíma þar sem kjörtímabilin munu ekki ná fjórum árum. Allar líkur eru í það minnsta á að hinn hefðbundni fjórflokkur sé búinn að missa tökin. Auðvitað breytist gríðar- lega hið pólitíska mynstur ef til dæmis hinir grasrótarsinnuðu Píratar ná fjórð- ungs- til fimmtungsfylgi. Þeir hafa hins vegar útilokað stjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn enda kannski ekki hægt að ímynda sér að þessar tvær ólíku fjöldahreyfingar eigi samleið. Kannski mun enginn flokkur kjósa að halla sér í átt til Pírata, vegna þess hversu ólíkur sá hópur er öllu litrófi hefðbundinna stjórnmálahreyfinga, hér heima sem erlendis. En þess vegna einmitt veðjar fólk á þá og við getum því allt eins búist við Gnarr-áhrifum líkt og gerðust í borgarstjórnarkosningum um árið. Á þessum tímapunkti á einnig eftir að skýr- ast hvort Sjálfstæðisflokkurinn nái þeim slagkrafti sem hann stefndi á með svo laskað jafnvægi milli karl- og kvenframbjóðenda. Allavega er gert góðlátlegt grín að því að nú séu einungis karlar eftir í uppvaskinu í Valhöll. Hinir fyrrum samstarfsflokkar, Samfylking og Vinstri grænir, eru líklega ekki nálægt því að geta myndað stjórn án þátttöku fleiri flokka. Hinn nýi flokk- ur Viðreisnar er óskrifað blað, en er þó að sækja í sig veðrið og heggur í raðir þeirra flokka sem beinlínis þjást af sjálfsofnæmi, beggja megin við miðju lit- rófsins. Margir af litlu nýflokkunum munu hins vegar ekki eiga erindi sem erf- iði, enda eru þeir alltof margir og líkir hver öðrum til að skapa sér sérstöðu í augum kjósenda. En augu flestra beinast að innri flokksátökum í Framsóknarflokknum. Þar berast menn nú á banaspjótum og einungis tæpum mánuði fyrir kosningar verður kosið um nýja flokksforystu. Mér sýnist að sama hvernig sú barátta fer muni þessi nær aldargamli flokkur ekki ná að ganga sameinaður til kosn- inga, heldur laskaður og illa þjakaður af valdabaráttu. Þar hefðu menn þurft að ganga hreint til verks fyrr á þessu ári og reyna í það minnsta að láta líta út fyrir að flokkurinn snúist ekki um foringjana, heldur fólkið sem skipar flokkinn. En hvernig sem niðurstaða kosninganna verður, byggir hún á vilja fólksins í landinu. Við ráðum þessu náttúrlega þegar upp er staðið og þannig á það að vera. Ég hygg að flestir vilji nú umfram allt annað að meiri sátt náist í þjóð- félaginu og að landsmenn geti mögulega séð fyrir endann á þeirri úlfúð og virðingarleysi sem einkennt hefur stjórnmálin á síðustu árum. Til frambjóð- enda segi ég því: Það þarf að haga sér sómasamlega til að ætlast til virðingar annarra. Gangi ykkur vel með það. Magnús Magnússon. Leiðari Fiskmarkaður Íslands hf. hefur ráðið Aron Baldursson sem nýjan framkvæmdastjóra félagsins, jafn- framt mun Páll Ingólfsson láta af störfum að eigin ósk. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Guð- mundi Smára Guðmundssyni for- manni stjórnar FÍ. Aron er fædd- ur og uppalinn í Rifi á Snæfells- nesi. Undanfarin átta ár hefur hann starfað sem sölu- og viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði hjá Skeljungi hf. Áður starfaði Aron sem stýrimaður á Rifsara SH-70 sem er í eigu fjöl- skyldu hans. Aron lauk BS.c gráðu i viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík vorið 2013. Einnig hef- ur hann lokið útvegsrekstrarfræði frá Tækniskólanum og þriðja stigs skipstjórnarprófi frá Stýrimann- skólanum í Reykjavík. Aron er í sambúð með Karitas Hrafns Elv- arsdóttur og eiga þau einn son. Páll Ingólfsson sem gegnt hefur stöðunni í rúm átta ár lætur nú af störfum að eigin ósk en hann hef- ur verið viðloðandi félagið allt frá stofnun þess. Hann var stjórnar- formaður til ársins 2008 og fram- kvæmdastjóri frá sama ári og til dagsins í dag. mm Aron Baldursson tekur við Fiskmarkaði Íslands MMR kannaði fylgi stjórnmála- flokka og stuðning við ríkisstjórn- ina á tímabilinu 12. til 19. septem- ber síðastliðinn. Sjálfstæðisflokk- urinn og Píratar mældust með jafn mikið fylgi, eða 22,7% hvor flokk- ur fyrir sig. Fylgi Vinstri-grænna mældist 13,2% og hefur verið nokkuð stöðugt síðan í seinnihluta júlí þegar fylgi flokksins mæld- ist 12,9%. Viðreisn mældist með 11,5% fylgi, sem er 2,7 prósentu- stigum meira en í síðustu könn- un sem lauk 29. ágúst. Framsókn mældist með 11% fylgi og mæld- ist 10,6% í síðustu könnun. Sam- fylkingin mældist með 8,1% fylgi, borið saman við 9,1% í síðustu könnun. Björt framtíð mældist með 4,1% fylgi, borið saman við 4,5% í síðustu könnun. Fylgi ann- arra flokka mældist um og und- ir 2%. Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 35,6%, borið saman við 33,9% í síðustu könnun sem fram- kvæmd var síðari hluta júlímán- aðar. mm Sjálfstæðisflokkur og Píratar hnífjafnir Eins og greint er frá í Skessuhorni í síðustu viku hafa um eða yfir 30 óhöpp eða slys orðið á Skógar- strandarvegi, 60 km löngum mal- arvegi sem liggur milli Hörðudals og Stykkishólmsvegar. Þrettán sinnum hefur lögregla og sjúkra- lið mætt á vettvang vegna slysa á fólki og um 20 manns hafa þurft að leita sér læknishjálpar, að sögn Níels Hermannssonar, lögreglu- þjóns í Dölum. Sveitarstjórn Dala- byggðar ræddi málefni vegarins á fundi sínum þriðjudaginn 20. sept- ember síðastliðinn, meðal ann- ars að umferð hafi stóraukist um veginn undanfarin ár. „Samkvæmt umferðartölum Vegagerðarinn- ar var sumardagsumferð um veg- inn árið 2015 allt að 344 bílar og er aukning umferðar allt að 160% frá árinu 2010,“ segir í fundargerð. Þar segir enn fremur að vegurinn sé aðeins 5 til 5,5 metra breiður en ætti að vera að lágmarki 6,5 metr- ar á breidd. Einbreiðar brýr eru 14, blindhæðir margar og beygjur krappar. Hann verður mjög fljótt grófur og holóttur eftir að hann er heflaður vegna þess að lítið er eftir af yfirborðsefninu. Endurbygging ekki hluti af áætlunum Vegamálastjóri sendi íbúum á Skógarströnd tölvupóst vegna vegarins fyrr á árinu. Þar kem- ur fram að Vegagerðin hafi ekkert fjármagn í aðgerðir við veginn og að endurbygging hans sé ekki hluti af neinum áætlunum. Vegagerð- in sé að reyna að koma einhverju fjármagni til endurbóta vegar- ins inn á næstu fjögurra ára áætl- un, 2019-2022. Hins vegar sé það annarra að ákveða hvort fé verður lagt til vegarins. Í ljósi ástandsins lagði sveitar- stjórn Dalabyggðar fram eftirfar- andi bókun á áðurnefndum fundi: „Sveitarstjórn Dalabyggðar krefst þess að Alþingi og ríkisstjórn vakni af Þyrnirósarsvefni og setji verulega aukið fjármagn til sam- göngumála þannig að íbúar lands- ins og gestir geti ferðast um land- ið með þokkalega öruggum hætti. Ekki ætti að þurfa að stofna til nýrra gjaldstofna þar sem álögur á eldsneyti og farartæki eru þeg- ar skýjum ofar. Tekjur ríkissjóðs af ferðaþjónustunni eru umtalsverðar og fara hratt vaxandi og sjálfsögð krafa er að þær renni að hluta til uppbyggingar innviða. Sveitar- stjórn Dalabyggðar krefst þess að endurbygging Snæfellsnesvegar um Skógarströnd verði sett á sam- gönguáætlun hið allra fyrsta og að eðlilegu viðhaldi verði sinnt þar til endurbygging hefst.“ kgk Krefjast þess að Alþingi og ríkisstjórn vakni af Þyrnirósarsvefni Svipmynd frá Skógarstrandarvegi, tekin um miðjan septembermánuð. Í þeirri viku urðu þrjár bílveltur á veginum. Ljósm. bj.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.