Skessuhorn - 28.09.2016, Síða 20
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 201620
Seint á sunnudagskvöldið lauk
tíu tíma talningu í forvali Vinstri
hreyfingarinnar græns framboðs í
Norðvesturkjördæmi. Talið var í
Leifsbúð í Búðardal. Alls voru 859
atkvæði greidd og þar af reyndust
787 gild. Á kjörskrá voru 1102 og
var því kjörsókn 78%. Niðurstað-
an varð sú að Lilja Rafney Magnús-
dóttir alþingismaður frá Suðureyri
varði forystusæti sitt á listanum, en
þrír karlar sóttust einnig eftir því.
Kjörstjórn mun síðan leggja fram
tillögu að fullmótuðum lista á fundi
á Hvanneyri næstkomandi fimmtu-
dagskvöld.
Niðurstaða forvalsins um skipan
sex efstu sæta var eftirfarandi:
1. Lilja Rafney Magnúsdóttir
2. Bjarni Jónsson
3. Dagný Rósa Úlfarsdóttir
4. Lárus Ástmar Hannesson
5. Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir
6. Rúnar Gíslason.
mm
Lilja Rafney varði
forystusæti sitt hjá VG
Stjórn Viðreisnar staðfesti í lið-
inni viku framboðslista flokksins í
Norðvesturkjördæmi fyrir alþing-
iskosningarnar 29. október næst-
komandi. Fyrir um þremur vik-
um voru kynnt nöfn þriggja efstu
á listanum.
Listinn í heild er þannig:
1. Gylfi Ólafsson, heilsuhagfræð-
ingur Ísafirði
2. Lee Ann Maginnis, verkefna-
stjóri Blönduósi
3. Sturla Rafn Guðmundsson,
svæðisstjóri RARIK á Vesturlandi
4. Lísbet Harðardóttir, málari Ísa-
firði
5. Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson,
lögfræðingur Blönduósi
6. Maren Lind Másdóttir, stjórn-
andi farangurskerfa á Keflavíkur-
flugvelli, Akranesi
7. Jón Ottesen Hauksson, fram-
kvæmdastjóri Akranesi
8. Ása Katrín Bjarnadóttir, nemi
Akranesi
9. Jóhannes H. Hauksson, mjólk-
urfræðingur í Búðardal
10. Jóhanna Guðrún Jónasdóttir,
leikskólastjóri Blönduósi
11. Ragnar Már Ragnarsson, bygg-
ingafræðingur Stykkishólmi
12. Unnur Björk Arnfjörð, skóla-
stjóri Ísafirði
13. Pálmi Pálmason, framkvæmda-
stjóri Akranesi
14. Ragnheiður Jónasdóttir, verk-
efnastjóri Akranesi
15. Auður H. Ólafsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur Ísafirði
16. Jóhannes Finnur Halldórsson,
hagfræðingur Akranesi.
mm
Framboðslisti Viðreisnar í
Norðvesturkjördæmi
Vinnumálastofnun gerir ráð fyr-
ir því að Íslendingum muni fækka
í Noregi á þessu ári og þeir snúa
heim til starfa á nýjan leik. Þróunin
hefur á liðnum árum, allt frá gjald-
þroti bankanna, verið á hinn veg-
inn og margir valið sér búsetu ytra.
Skýringin á þessum viðsnúningi
nú gæti legið í versnandi atvinnu-
ástandi í Noregi, sterkari stöðu ís-
lensku krónunnar og batnandi at-
vinnumöguleikum hér heima. Í
Noregi var atvinnuleysi um 5% í
júlímánuði og hafði ekki mælst svo
hátt í tvo áratugi. Þar er til dæm-
is samdráttur í olíuiðnaði, líkt og
í öðrum olíuframleiðsluríkjum, og
starfsmönnum fækkað um fjögur
þúsund á tveimur árum.
mm
Grafið sýnir brott- og aðflutta Íslendinga til/frá Noregi og spá Vinnumálastofn-
unar fyrir yfirstandandi ár.
Íslendingar í Noregi
snúa heim að nýju
Yfirkjörstjórn Sjálfstæðisflokksins
í Norðvesturkjödæmi hefur sam-
þykkt framboðslista flokksins vegna
komandi alþingiskosninga. Í próf-
kjöri var ákveðið hverjir skipuðu sex
efstu sætin en nú hefur listinn í heild
verið staðfestur.
Listann skipa:
1. Haraldur Benediktsson frá Vestra-
Reyni, bóndi og alþingismaður
2. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir frá Akranesi, lögfræðingur og
aðst.maður ráðherra
3. Teitur Björn Einarsson frá Flat-
eyri, lögfræðingur og aðst.maður
ráðherra
4. Hafdís Gunnarsdóttir frá Ísafirði,
forstöðumaður
5. Jónína Erna Arnardóttir í Borgar-
nesi, tónlistarkennari og sveitarstj.ftr.
6. Aðalsteinn Orri Arason frá Varma-
hlíð, verktaki og búfræðingur
7. June Scholtz frá Hellissandi, fisk-
vinnslukona
8. Unnur Valborg Hilmarsdóttir frá
Hvammstanga, oddviti Húnaþings
vestra
9. Ásgeir Sveinsson frá Patreksfirði,
form. bæjarráðs Vesturbyggðar og
bóndi
10. Steinunn Guðný Einarsdóttir frá
Flateyri, sjómaður og ferðamálafræð-
ingur
11. Sigríður Ólafsdóttir frá Víði-
dalstungu, ráðunautur og sauðfjár-
bóndi
12. Böðvar Sturluson úr Stykkis-
hólmi, framkvæmdastjóri og vöru-
bifr.stjóri
13. Pálmi Jóhannsson úr Búðardal,
framkvæmdastjóri og pípulagn-
ingamaður
14. Guðmundur Brynjar Júlíusson
frá Akranesi, nemi
15. Þrúður Kristjánsdóttir úr Búð-
ardal, fyrrverandi skólastjóri
16. Einar Kristinn Guðfinnsson frá
Bolungarvík, forseti Alþingis.
mm
Sjálfstæðismenn samþykkja
framboðslista í NV kjördæmi
Fimm efstu á listanum ásamt Einari Kristni sem skipar heiðurssætið.
Kjördæmisþing Samfylkingarinn-
ar í Norðvesturkjördæmi fór fram
á laugardaginn í Reykjavík. Þar var
samþykktur framboðslisti flokks-
ins fyrir komandi alþingiskosn-
ingar. Tvö efstu sæti listans höfðu
áður verið samþykkt í flokksvali. Í
tilkynningu frá flokknum segir að
jafnfræðis hafi verið gætt um fjölda
kvenna og karla.
Listann skipa:
1. Guðjón S. Brjánsson, forstjóri,
Akranesi
2. Inga Björk Bjarnadóttir, háskóla-
nemi, Borgarbyggð
3. Hörður Ríkharðsson, kennari,
Blönduósbæ
4. Pálína Jóhannsdóttir, kennari,
Bolungarvíkurkaupstaður
5. Gréta Sjöfn Guðmundsdótt-
ir, verkefnastjóri, Sveitarfélaginu
Skagafirði
6. Garðar Svansson, fangavörður,
Grundarfjarðarbæ
7. Sæmundur Kristján Þorvaldsson,
framkvæmdastjóri, Ísafjarðarbæ
8. Guðjón Viðar Guðjónsson, raf-
virki, Akranesi
9. Guðrún Eggertsdóttir, viðskipta-
fræðingur, Vesturbyggð
10. Pétur Ragnar Arnarsson,
slökkviliðsstjóri, Húnaþingi vestra
11. Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir,
héraðsskjalavörður, Akranesi
12. Eysteinn Gunnarsson, rafveitu-
virki, Strandabyggð
13. Sólveig Heiða Úlfsdóttir, há-
skólanemi, Borgarbyggð
14. Bryndís Friðgeirsdóttir, verk-
efnastjóri, Ísafjarðarbæ
15. Gunnar Rúnar Kristjánsson,
verkefnastjóri, Húnavatnshreppi
16. Sigrún Ásmundsdóttir, iðju-
þjálfi, Akranesi.
mm
Samfylkingin samþykkti fram-
boðslista í NV kjördæmi
Hér má sjá hluta frambjóðenda í NV kjördæmi. Inga Björk og Guðjón lengst til hægri.