Skessuhorn - 28.09.2016, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2016 29
Nýfæddir Vestlendingar
14. september. Tvíburi A, stúlka. Þyngd 3.164 gr. Lengd 49 sm. Tvíburi
B, drengur. Þyngd 2.536 gr. Lengd 48 sm. Foreldrar: Esther Judith
Steinsson og Hjörtur Björn Björnsson, Akranesi. Ljósmóðir: Margrét
Guðmundsdóttir LSH.
Stykkishólmur -
miðvikudagur 28. september
Opinn íbúafundur á Fosshótel
Stykkishólmi. Stykkishólmsbær efnir til
opins íbúafundar um skipulagsmál kl.
16 í fundarsal Fosshótels í Stykkishólmi.
Efni fundarins er að kynna tillögur
að deiliskipulagi miðbæjarsvæðis og
nýtingu lóða á svæðinu auk þess að
tillögur að breytingum á deiliskipulagi
hafnarsvæða verða kynntar.
Dalabyggð -
föstudagur 30. september
Ósrétt á Skógarströnd verður kl. 10.
Réttarstjóri er Sigurður Hreiðarsson.
Akranes -
föstudagur 30. september
Pepsi - deild kvenna: ÍA - KR á Norður-
álsvelli kl. 16.
Akranes -
föstudagur 30. september
Strákarnir í Dúndurfréttum mæta í
Bíóhöllina Akranesi með klassískt rokk.
Hljómsveitin Dúndurfréttir fagnaði fyrir
skömmu 20 ára afmæli sínu. Dúndur-
fréttir hafa flutt lög sveita á borð við
Pink Floyd, Led Zeppelin, Deep Purple
og Uriah Heep. Á tónleikum kvöldsins
mun hljómsveitin leika klassískt rokk
eins og það gerist best. Hljómsveitina
skipa: Matthías Matthíasson, Pétur Örn
Guðmundsson, Einar Þór Jóhannsson,
Ólafur Hólm og Ingimundur Óskarsson.
Miðaverð 3.900 kr. Nánar á midi.is
Borgarbyggð -
laugardagur 1. október
Hin árlega Sauðamessa verður haldin
í Skallagrímsgarði kl. 13 - 17. Hið víð-
fræga sveitaball Sauðamessu hefst kl.
23 í Hjálmakletti og það eina sem þarf
er lopi og gúmmítúttur. Hljómsveitin
Bland leikur fyrir dansi. Aðgangseyrir
kr. 3.000.
Borgarbyggð -
laugardagur 1. október
THORS SAGA JENSEN. Guðmundur
Andri Thorson flytur sögu langafa síns
á Sögulofti Landnámsseturs kl. 20. Thor
Jensen var einn af áhrifamestu frum-
kvöðlum 20. aldar. Hann hóf ferill sinn í
Borgarnesi og stóð m.a. fyrir byggingu
pakkhússins þar sem Söguloftið er.
Borgarbyggð -
sunnudagur 2. október
Barnaguðsþjónusta í Borgarneskirkju kl.
11:15. Barnastarfið hefst. Góð samvera
fyrir fjölskylduna. Sögur, leikir og mikill
söngur. Umsjón hafa Eygló Egilsdóttir
og Steinunn Árnadóttir.
Stykkishólmur - sunnudagur 2. október
Spiluð verður félagsvist í Setrinu kl.
15:30 á sunnudögum í vetur.
Borgarbyggð -
sunnudagur 2. október
THORS SAGA JENSEN. Guðmundur
Andri Thorson flytur sögu langafa síns
á Sögulofti Landnámsseturs kl. 18. Thor
Jensen var einn af áhrifamestu frum-
kvöðlum 20. aldar. Hann hóf ferill sinn í
Borgarnesi og stóð m.a. fyrir byggingu
pakkhússins þar sem Söguloftið er.
Snæfellsbær -
sunnudagur 2. október
Leiðbeinendur í leirdúfuskotfimi hjá
Skotgrund Skotfélagi Snæfellsness.
Snjólaug María Jónsdóttir og Guðmann
Jónsson frá Skotfélaginu Markviss á
Blönduósi koma í heimsókn og ræða
við okkar félagsmenn um leirdúfu-
skotfimi. Þá ætla þau einnig að vera
okkar félagsmönnum innan handar
og leiðbeina í leirdúfuskotfimi, jafnt
vönum sem óvönum. Byrjað verður á
kvennahitting á milli kl. 12 og 14 og
karlarnir mæta kl. 14. Við hvetjum okkar
félagsmenn til að fjölmenna og fá
leiðsögn í greininni.
Akranes -
sunnudagur 2. október
Dúó Stemma flytur þjóðlög í Vinaminni
kl. 17. Dúó Stemma eru Herdís Anna
Jónsdóttir og Steef van Oosterhout og
flytja þau efnisskrá sem samanstendur
af íslenskum þjóðlögum, þulum og
vísum. Kaffi og þjóðlegt bakkelsi á
boðstólnum. Aðgangseyrir kr. 2.000/
Kalmansvinir kr. 1.500.
Borgarbyggð -
þriðjudagur 4. október
Námskeið Snorrastofu, Landnámsset-
ursins og Símenntunarmiðstöðvarinnar.
Sex kvölda námskeið um borgfirskar
skáldkonur í íslenskri skáldskaparhefð
frá Steinunni Finnsdóttur (1640-1710)
til Þuríðar Guðmundsdóttur (1939),
með áherslu á yrkisefnum þeirra, ein-
kennum og áhrifum, ásamt viðtökum
og stöðu í bókmenntasögunni. Fyrsta
námskeiðskvöld: „Þótt svanurinn betur
syngi en hún“ Steinunn Finnsdóttir
(1640- 1710) og upphaf borgfirskra
kvennabókmennta í þjóðkvæðum,
sagnadönsum, rímum, óbirtum hand-
ritum og matreiðslubók. Leiðbeinandi:
Helga Kress bókmenntafræðingur og
prófessor emeritus. Námskeiðin verða á
þriðjudagskvöldum kl. 20-22 til skiptis á
sögulofti Landnámsseturs og í Snorra-
stofu.
Á döfinni
Markaðstorg Vesturlands
Starfsmaður óskast
Íslenska gámafélagið auglýsir eftir
starfsmanni í sorphirðu. Starfs-
stöðin er á Akranesi. Viðkomandi
þarf að vera áreiðanlegur, duglegur
og jákvæður í samskiptum. Upp-
lýsingar veita Einar, einarp@igf.is
eða s. 840-5780 eða Ólafur, oliingi@
igf.is eða 840-5709.
Heimilisþrif
Tek að mér heimilisþrif. Föst verðtil-
boð. Vandvirk og vön. Uppl. í síma
892-4204. Auður.
Húsnæði óskast
Íslenska gámafélagið óskar eftir að
taka á leigu húsnæði í Borgarnesi
fyrir starfsmann sinn. Helst er litið
til þess að fá herbergi með aðgang
að baðherbergi og eldhúsi en aðrir
möguleika koma einnig til greina.
Áhugasamir hafið vinsamlega sam-
band við Einar í síma 840-5780 eða í
netfangið einarp@igf.is.
Íbúð til leigu í Borgarnesi
Íbúðin er á jarðhæð á Kveldúlfsgötu
18, þrjú svefnherbergi, nýtt eldhús,
nýtt baðherbergi og nýtt parket.
Nánari upplýsingar: gkarlbjarna-
son@gmail.com.
Herbergi til leigu
Herbergi til leigu í einbýlishúsi á
Akranesi sem deilir aðgangi að eld-
húsi, stofu, baðherbergi og þvotta-
aðstöðu.Uppl. í síma 895-3836.
ATVINNA Í BOÐI
LEIGUMARKAÐURATVINNA ÓSKAST
19. september. Stúlka. Þyngd
3.850 gr. Lengd 51 sm. Foreldrar:
Hafdís Rán Sævarsdóttir og
Steinþór Böðvarsson, Akranesi.
Ljósmóðir: Lóa Kristinsdóttir.
21. september. Drengur. Þyngd
2.552 gr. Lengd 45 sm. Foreldrar:
Sara Karlsdóttir og Þorleifur
Fannar Leósson, Akranesi.
Ljósmóðir: Lára Dóra Oddsdóttir.
22. september. Stúlka. Þyngd
3.395 gr. Lengd 51 sm. Foreldrar:
Helga Kristín Haug Jónsdóttir
og Víðir Pálmason, Akranesi.
Ljósmóðir: Anna Björnsdóttir.
22. september. Drengur. Þyngd
3.740 gr. Lengd 52 sm. Foreldrar:
Sigurdís L.E. Sigursteinsdóttir
og Jens Líndal Sigurðsson,
Búðardal. Ljósmóðir: Hafdís
Rúnarsdóttir.
23. september. Stúlka. Þyngd
4.042 gr. Lengd 53 sm. Foreldrar:
Gabríela Birna Jónsdóttir og
Þorgeir Brimir Harðarson,
Mosfellsbæ. Ljósmóðir: Elísabet
Harles.
24. september. Stúlka. Þyngd
4.080 gr. Lengd 53 sm. Foreldrar:
Margrét Saga Gunnarsdóttir
og Hafþór Daði Halldórsson,
Akranesi. Ljósmóðir: Jóhanna
Ólafsdóttir.
Markaðstorg
Vesturlands
Skráðu SMáauglýSinguna
á www.SkeSSuhorn.iS
fyrir klukkan 12.00
á þriðjudöguM