Skessuhorn - 28.09.2016, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 201630
„Hver er besti dagur
vikunnar?“
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Stefán Lárus Pálsson:
„Ég held það sé föstudagur, þá
fer maður að slaka á og búa sig
undir rólega helgi.“
Sigurrós Sigtryggsdóttir:
„Örugglega mánudagur. Við
spilum alltaf á mánudögum
gamla fólkið.“
Ingvar Þórisson:
„Föstudagur.“
Hallgrímur Valgeir Yoakum:
„Laugardagur, það er skemmti-
legur dagur.“
Sigríður Hallgrímsdóttir:
„Dagurinn í dag er alltaf mjög
góður.“
Hæfileikamót KSÍ og N1 drengja
í knattspyrnu fór fram í Kórnum í
Kópavogi um síðustu helgi. Mót-
ið fór fram undir stjórn Halldórs
Björnssonar en hann hefur undan-
farið ferðast um landið með Hæfi-
leikamótin. Þetta mót er framhald
af þeirri vinnu en þarna voru á ferð
strákar á aldrinum 13 og 14 ára eða
í 4. flokki. Alls voru 92 drengir alls-
staðar af landinu mætti og komu
m.a. tveir þeirra frá Snæfellsnesi.
Fengu strákarnir heilmikla fræðslu
og æfingar um leið og þeir nutu sín
við að spila fótbolta með öðrum
strákum á sínum aldri. Þarna eru á
ferðinni mjög svo efnilegir strákar
og vonandi gengur þeim allt í hag-
inn í framtíðinni.
þa
Mættu á hæfileikamót
í fótbolta
Vatnsmótið í golfi fór fram á Garða-
velli á Akranesi laugardaginn 24.
september síðastliðinn. Mótið er
innanfélagsmót kylfinga í Golf-
klúbbnum Leyni og eitt elsta inn-
anfélagsmót klúbbsins. Dregur það
nafn sitt af miklu vatnsveðri sem var
þegar mótið var haldið fyrsta sinni
árið 1970. Stóð mótið sannarlega
undir nafni að þessu sinni. Þegar
kylfingar höfðu leikið fyrstu níu hol-
urnar gerði mikla rigningu og gekk
á með hvassviðri um tíma. Kylfing-
arnir létu það þó ekki á sig fá og luku
keppni með sóma. Þátttaka var með
minna móti, en alls tóku 13 kylfing-
ar þátt að þessu sinni.
Helstu úrslit urðu eftirfarandi:
Punktakeppni með forgjöf:
1.sæti, Bjarni Þór Bjarnason, 32
punktar (betri á seinni níu)
2.sæti, Magnús Daníel Brandsson,
32 punktar
3.sæti, Einar Jónsson, 29 punktar
(betri á seinni níu)
Höggleikur án forgjafar (besta
skor):
1.sæti, Björn Viktor Viktorsson, 88
högg
Nándarverðlaun:
3. hola, Jón Ármann Einarsson 6,78
m
8. hola, Björn Viktor Viktorsson
7,04 m
„Golfklúbburinn Leynir þakkar
keppendum fyrir þátttökuna og ósk-
ar vinningshöfum til hamingju með
árangurinn. Vinningshafar geta sótt
vinninga á skrifstofu GL frá og með
mánudeginum 26. september,“ segir
í frétt á vef GL.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Vatnsmótið stóð undir nafni
Forsvarsmenn Golfklúbbsins
Leynis hafa kynnt bæjaryfirvöldum
á Akranesi hugmyndir sínar um
nýja félagsaðstöðu í stað þeirr-
ar sem nú stendur við Garðavöll.
„Núverandi húsnæði takmarkar
okkar starfsemi töluvert og er orð-
ið barn síns tíma. Húsið var byggt
um miðja síðustu öld, er orðið
lúið og hentar ekki nægilega vel
til að við getum haldið áfram upp-
byggingu á starfi klúbbsins,“ seg-
ir Þórður Emil Ólafsson, formað-
ur GL, í samtali við Skessuhorns.
Einnig segir Þórður að forsvars-
menn klúbbsins horfi til þeirr-
ar umræðu sem verið hefur inn-
an Golfsambands Íslands að und-
anförnu að raða völlum landsins
í flokka eftir gæðum. „GSÍ hefur
verið að skoða að raða golfvöllum
upp í gæðaröð og stilla þeim upp í
A, B og C flokka eftir gæðum. Það
mat næði til vallarins sjálfs en tæki
líka mið af allri umgjörð, það er að
segja félagsaðstöðu og æfingasvæð-
is,“ segir Þórður. „Verði af þessum
hugmyndum GSÍ þá teljum við
víst að Garðavöllur myndi enda í B
flokki út af húsnæðinu. Völlurinn
sjálfur er með þeim betri á landinu
og æfingaaðstaðan góð, en félags-
aðstaðan myndi draga okkur niður
í B flokk,“ bætir hann við. Komi til
þess segir Þórður að golfklúbbur-
inn geti orðið af tekjumöguleikum
sem aftur myndu hamla uppbygg-
ingu klúbbsins. „GSÍ myndi þá
setja þá kröfu að þeirra mót yrðu
haldin á völlum í A flokki. Það
myndi þýða að við myndum missa
frá okkur öll mót í Eimskipsmóta-
röðinni, Íslandsmótaröðinni og
fleiri mót. Eitt mót í Eimskips-
mótaröðinni gefur klúbbnum að
minnsta kosti hálfa milljón króna
í tekjur,“ segir Þórður.
Verður af
umtalsverðum tekjum
Í núverandi félagsaðstöðu GL er
rými fyrir 65 manns í sæti í sal. Það
þýðir að golfklúbburinn getur ekki
tekið á móti stórum hópum sem
annars myndu vilja sækja Akra-
nes heim til að spila golf. Verð-
ur klúbburinn þar af umtalsverð-
um tekjum. „Stór fyrirtækjamót
gefa golfklúbbum góðar tekjur, en
þau telja yfirleitt í kringum hundr-
að manns. Það þýðir að við get-
um ekki tekið á móti þeim hópum
þrátt fyrir að menn vilji gjarnan
spila völlinn,“ segir hann.
Aðspurður segir hann að hug-
myndir Leynismanna geri ráð fyr-
ir um 400 fermetra félagsaðstöðu
með rými fyrir 120 til 130 manns í
sæti í sal. Þórður segir að þetta sé
lágmarksstærð fyrir félagsaðstöðu
golfklúbbsins. Þegar stór mót eru
haldin, völlurinn fullsetinn og allir
að spila í einu þá þýði það rúmlega
hundrað kylfinga. „Í raun er þetta
því nauðsynleg stærð til að klúbb-
urinn geti tekið þátt í að halda
stór mót, hvort sem er á Eim-
skipsmótaröðinni og Íslandsmóta-
röðinni eða fyrirtækjamót,“ segir
Þórður og bætir því við að einnig
muni félagsaðstaða hýsa innanhúss
æfingaaðstöðu fyrir félagsmenn,
sem nú er til hýst í vélaskemmunni
innan um vélar og tæki. Hann tel-
ur auk þess að önnur félagasamtök
gætu ef til vill líka nýtt sér salinn.
„Þar sem okkar aðal starf fer fram
á sumrin gæti salurinn gæti vel nýst
annars konar félagasamtökum sem
hafa sitt aðal starf yfir vetrartím-
ann. Ég held það gæti komið bæn-
um vel því oft vantar sali fyrir ým-
iss konar starfsemi,“ segir hann.
Á annað hundrað
milljónir króna
Búið er að teikna yfirlitsmynd og
grófhanna félagsaðstöðuna. Gróf
kostnaðaráætlun gerir ráð fyrir að
kostnaður við gerð nýrrar félags-
aðstöðu muni nema vel á annað
hundrað milljónir króna en borga
sig upp á um það bil 15 árum. „Það
er augljóst að einn og óstuddur
er klúbburinn ekki burðugur til
að ráðast í þessa framkvæmd. Ég
held að kostnaðurinn verði aldrei
mikið lægri en við ætlum okkur
að ná niður byggingakostnaðin-
um með því að reyna að gera þetta
af skynsemi og vinna mikið sjálf.
Það gerðum við þegar við byggð-
um skemmuna og það gekk mjög
vel upp. Við fengum framkvæmda-
samning hjá bænum og svo unnu
félagsmenn gríðarmikið í sjálf-
boðavinnu og gaf það mjög góða
raun,“ segir Þórður.
Hvort og hvenær getur orðið
af framkvæmdum segir Þórður að
velti alfarið á viðtökum bæjaryfir-
valda. Hugmyndir að nýrri félags-
aðstöðu hafa verið kynntar um-
hverfis- og skipulagsráði og eru
því komnar inn á borð Akranes-
kaupstaðar. „Bætt félagsaðstaða
hefur verið draumsýn okkar í mörg
ár og við erum að reyna að hreyfa
við hlutunum núna. Árlega eru
á Garðavelli spilaðir um 12 þús-
und hringir af kylfingum sem ekki
eru félagar í GL heldur koma sér-
staklega hingað í bæinn til að spila
golf. Ég held að það sé fátt ann-
að á Akranesi sem dregur að jafn
mikinn fjölda fólks á ári hverju og
golfvöllurinn,“ segir Þórður að
lokum.
kgk
„Bætt félagsaðstaða hefur verið
draumsýn okkar í mörg ár“
Núverandi félagsaðstaða Golfklúbbsins Leynis við Garðavöll á Akranesi tekur um 65 manns í sæti í sal. „Húsið er barn
síns tíma og hentar ekki nægilega vel til að við getum haldið áfram uppbyggingu á starfi klúbbsins,“ segir formaður golf-
klúbbsins.
Þórður Emil Ólafsson, formaður GL.
Ljósm. úr safni.