Skessuhorn - 28.06.2017, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 28. júNÍ 20174
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.835 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.457. Rafræn áskrift kostar 2.226 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.058 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Björn Þór Björnsson bjorn@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Emilía Ottesen emilia@skessuhorn.is
Lísbet Sigurðardóttir lisbet@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Seðil, seðil sib vhab
vhab va
Fyrirsögn þessi er tilvitnun í gríðarvinsælt sönglag HLH flokksins frá því
ég var ungur. Rifjast upp nú því nýlokið er einu stærsta vindhöggi íslenskra
stjórnmála í seinni tíð. Það var semsagt á fimmtudaginn sem hæstvirtur fjár-
málaráðherra boðaði stríð við skattsvikara. Það skyldi háð með því að taka alla
stóra peningaseðla úr umferð. já, hann Benedikt lætur ekki að sér hæða, eða
hvað; var það kannski einmitt raunin? Reyndar hafði ég ekki stórar áhyggjur
þegar þessari ógn var beint að okkur alþýðunni, því eins og Bjöggi söng ein-
mitt; „Á´ekki seðil.“
Mig minnir að í aðdraganda kosninga til Alþingis á síðasta ári hafi smá-
flokkur ráðherrans boðað að skoðað yrði af einurð að þjóðin tæki upp ann-
an gjaldmiðil. Kannski var ráðherrann einmitt að boða upphaf þeirrar veg-
ferðar þegar hann upplýsti um ákvörðun sína um að nú færi hinn fagri lóu-
seðill að verðgildi tíu þúsund nýkrónur í pappírstætarann og fimm þúsund
kallinn fljótlega einnig. Hann Bensi ætlaði sumsé að byrja ofanfrá í afnámi
krónunnar. Fljótlega kom þó í ljós að þessi fyrirætlan hans fékk takmark-
aðan hljómgrunn meðal pólitískra meðreiðarsveina. Svo eftir svefnlausa nótt
á stjórnarheimilinu var í bítið á föstudaginn boðað af hinum sama fjármála-
ráðherra að af þessu yrði alls ekki. Verð á hlutabréfum í pappírstætara fyrir-
tækjum hríðféll eftir tíu tíma hækkun - og Viðreisn verður líklega um sinn
áfram smáflokkur.
Það tók semsagt ekki nema innan við sólarhring fyrir Bjarna Ben að sann-
færa frænda gamla um að svona gerðu menn ekki, hvorki Engeyingar, né
aðrir velmegandi framámenn í íslensku viðskiptalífi. Það fékk reyndar tals-
vert á Bjarna að þurfa að bruna í bæinn og tala um fyrir lítt reyndum frænda
sínum, en það tókst við illan leik. Vissulega sá á Bjarna eftir þetta. En ég hef
öruggar heimildir fyrir því að þetta er ekki í fyrsta skipti sem menn verða grá-
hærðir á einni nóttu við áföll, jafnvel minni áföll en þetta. Einu sinni þurfti
til dæmis Norðlendingur einn að ganga frá Ólafsfirði yfir til Hvanndala, sem
er lítið dalverpi nyrst á Tröllaskaga. Sá varð gráhærður á einum sólarhring
eftir að hafa misst kjarkinn á hrikalegu einstigi og „frosið“ þar sem hann stóð
í snarbrattri skriðunni. Maðurinn komst þó til byggða við illan leik, en dökki
háraliturinn hvarf samdægurs. Þetta er náttúrlega svakalegt að lenda í slíku,
hvort heldur aðstæðurnar eru hrikalegar fjallgöngur eða hótun ættingja um
að rjúfa sáttmála heillar ættar.
Ég er vissulega sammála Benedikt um að hér á landi er nauðsynlegt að
rjúfa vítahring skattaundanskota. Fyrir það fyrsta er óþolandi að ríkissjóður
sé að verða af skatttekjum af því sumir telji ekki tekjur fram til skatts. Hins
vegar er enn meira óþolandi gagnvart heilbrigðri samkeppni þegar fyrirtæki
eða einstaklingar í rekstri komast upp með að skjóta tekjum undan skatti.
Engu að síður er það raunin hér á landi. Nægir að nefna það sem verið hefur
að gerast í útleigu íbúðarhúsnæðis til ferðamanna. Á sama tíma eru heiðar-
lega rekin hótel að berjast í bökkum og eiga ekki roð í samkeppni sem ekki
þolir dagsljósið. Svipuð dæmi væri hægt að nefna úr ýmsum iðngreinum,
rútubílaakstri og veitingasölu. Ósómi þessi þrífst út um allt.
Nei, með fullri virðingu fyrir fjármálaráðherra, þá finnst mér að þeg-
ar hann verður búinn að jafna sig eftir rasskellingu vikunnar sem leið, ætti
hann að leggja fram framkvæmdaáætlun um að efla skattrannsóknir og að
eftirfylgni með þeim lögum sem þegar eru til staðar til að hafa hendur í hári
þeirra sem eru að klekkja á öðrum sér til framdráttar. Ef allt væri uppi á borð-
inu í heiðarlegum viðskiptum og allir greiddu sem þeim ber, mætti nefnilega
að meinalausu prenta milljón króna seðil. Þá gætum við með brosi á vör tekið
undir með Bjögga og sungið „Seðil, seðil sib vhab vhab va“ - og keypt bæði
hring, hús og bíl.
Magnús Magnússon.
Leiðari
Arnór Kristjánsson bóndi á Eiði
fékk þann heiður að taka fyrstu
skóflustunguna að nýrri viðbygg-
ingu við Dvalarheimilið Fellaskjól
í Grundarfirði. Skessuhorn greindi
frá byggingaráformum í frétt í síð-
ustu viku. Sama skófla var nú not-
uð til verksins og brúkuð var þeg-
ar fyrsta skóflustungan var tekin að
byggingu Fellaskjóls á sínum tíma.
Arnór var í stjórn dvalarheimilisins
til fjölda ára og því var hann feng-
inn til að stinga upp fyrstu torf-
unni. Arnór fór létt með þetta að
viðstöddum fjölda velunnara heim-
ilisins en eftir skóflustunguna var
aðalfundur Fellaskjóls haldinn og
boðið upp á veitingar.
tfk
Fyrsta skóflustungan að stækkun Fellaskjóls
Arnór er hér að stinga upp fyrstu torfunni.
Á Akranesi hefur að undanförnu
verið vandamál vegna skorts á dag-
foreldrum og leikskólaplássum. Í
Skessuhorni nýverið birtist við-
tal við Halldóru Hallgrímsdóttur
sem sagði frá því að sonur hennar,
sem fæddur er í janúar 2015, hafi
ekki fengið pláss hjá dagforeldri.
Leikskólar á Akranesi innrita ekki
börn fyrr en ágúst árið sem þau
verða tveggja ára. Sonur Halldóru
mun því aðeins eiga fjóra mánuði
í þriggja ára aldurinn þegar hann
kemst loks í leikskóla.
Á fundi í skóla- og frístunda-
ráði Akraneskaupstaðar 20. júní
var fjallað um eftirspurn eftir leik-
skólaplássi fyrir börn sem náð hafa
tveggja ára aldri. Þar var ákveðið að
formaður skóla- og frístundaráðs,
Þórður Guðjónsson bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, skyldi koma
með tillögur að úrlausnum í þessum
málum fyrir lok júlí. Þórður segir í
samtali við Skessuhorn að vanda-
málið sé talsvert. Starfshópur sem
vann við að úttekt um málið í vetur
hefur skilað niðurstöðum og kveður
þar á um að horfa þurfi til framtíð-
ar en einnig að beita skammtíma-
lausnum til að leysa vandamálið
sem komið er upp. „Það hefur verið
fjölgun í bæjarfélaginu og töluvert
af yngra fjölskyldufólk flutt í bæinn
vegna fasteignaverðsins á höfuð-
borgarsvæðinu. Það er jákvætt en
því fylgir vandamál sem við þurfum
að leysa. Þegar fólk flytur í bæinn
með barn á leikskólaaldri, þriggja
til fimm ára, þá er það barn sett í
forgang. Við höfum hingað til haft
svigrúm til að innrita þau börn en
flest börnin hafa fengið pláss á leik-
skólanum Akraseli. Nú er staðan
svo að öll leikskólapláss á Akranesi
eru orðin yfirfull og svigrúm til
að taka inn ný börn í algjöru lág-
marki,“ segir Þórður.
Þórður segir að vandamálið sé
margþætt og ekki sé hægt að benda
á skort á annaðhvort leikskóla- eða
dagforeldrapláss því allt sé þetta
samþætt. „Við þurfum að líta á
allt skólakerfið og skoða nýtingu á
plássi til langs tíma. Nú eru vanda-
málin hins vegar aðkallandi og við
þurfum að leita að skammtíma-
lausnum og það munum við gera til
að greiða úr málinu. Það er mikill
ókostur, og hefur alltaf verið, að það
sé aðeins innritað börn einu sinni á
ári, í ágústmánuði. Við ætlum okk-
ur að hafa innritun oftar á ári svo að
börn komist fyrr inn. Síðan er hægt
að líta til annarra lausna til lengri
tíma með því að stækka leikskóla
eða deildir og mögulega koma upp
fimm ára bekk á Akranesi. Það þarf
að horfa á skólakerfið í heild,“ segir
Þórður að endingu.
bþb
Ætla að innrita leikskólabörn oftar á ári
Nýir rekstraraðilar tóku á mánu-
daginn við rekstri Vélsmiðju Árna
jóns í Rifi. Þeir félagar Davíð
Magnússon og Sigurður Sigþórs-
son hafa keypt vörulager fyrirtæk-
isins, en leigja verkfæri og hús-
næðið. Þá hafa þeir fært reksturinn
undir nýtt nafn; Smiðjan Fönix.
„Við munum reka vélsmiðju og
verslun og verður reksturinn í svip-
uðum stíl og áður. Vonandi verð-
ur svo svigrúm til að betrumbæta
hann,“ sagði Davíð. Starfsmenn
Smiðjunnar Fönix verða fimm,
sömu menn og störfuðu hjá Vél-
smiðju Árna jóns. „Þetta er gott
tækifæri fyrir unga menn,“ sagði
Davíð brosandi. „Við komum til
með að leggja mikla áherslu á báta-
viðhald og málmsmíði, en að sjálf-
sögu eru allir velkomnir í viðskipti
til okkar. Auk þess munum við
bjóða gott úrval af vörum í verslun
okkar.“
Árni jón Þorgeirsson stofnaði
vélsmiðjuna árið 1982 og mun
hann nú leggja áherslu á rekstur
Þorgeirs ehf sem rekur steypustöð
og kranabíla. af
Smiðjan Fönix í stað Vélsmiðju Árna Jóns
Davíð Magnússon og Sigurður Sigþórsson.
Gunnar Olgeirsson afgreiðir
viðskiptavin í verslun
Smiðju Fönix.