Skessuhorn


Skessuhorn - 28.06.2017, Blaðsíða 27

Skessuhorn - 28.06.2017, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 28. júNÍ 2017 27 Krossgáta Skessuhorns Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Auk þess birtum við lausn á krossgátu síðustu viku. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánudögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta, Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið verður úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn bókargjöf frá Skessuhorni. Alls bárust 72 lausnir við krossgátunni í blaðinu í síðustu viku. Lausnin var: „Gáfulegur.“ Vinningshafi er Þuríður Skarphéðinsdóttir, Esjuvöllum 9, 300 Akranesi. Máls- háttur Tóm Ókyrrð Skófla Væta Skýli Sjóða Mið Duft Örugg Nei Erta Kvak Þegar Með tölu Tíu Púki Hvílt Pípa Óleyfi Hvíldi Ungviði Spil 7 Sér- hljóðar 4 Sam- hlóðar Ótti Ófull- gerð Skips- kex Tigin Skúm Flýtir Frekur 9 Hreyf- ing Refsar 4 Afanna Elfur 2 Hol Smælki Spilið Dró úr Svall Angan Spil Féll Urg Tónn Reið Á fæti Ókunn Kvísl 8 Þys Púl Deila Hæga- gangur Leðja Kaup Óttast Grip Högg Leið- beinandi Vissa Kraft 6 Rúlluðu Elska Máttur Gróður Form Knöttur Þreyta Umsvif Mjög Prik Hávaði Stía Deigt Skortur Suddi Skel Rögg Ágeng 50 1 Væskill Glæsi- bragur Tónn Spann Örk Misk- unn Athygli Reim Alltaf Nurta Bogi Soninn Art Skrap Átt Sjá Öf.tvíhl. Rösk Sár Busl Nudd Ílát Reiði- hljóð Fag Líka 3 1000 Sk.st. Getur 7 Aftur- elding 5 Mauk Dreifð- ir 1 2 3 4 5 6 7 8 9 L E S A N D I K F U M U R Ð Æ Ö T R I T Ó A R T I G L U T A U T N R A U S T T Í U Æ R S L G U L L N Á T T A R R A M U R G I L D Á R I S K Á N E L T A M Ú G U R Ý L Æ K I A K R A Ó A Ó N E F I Ð Á S T A P P A N I Ð N E T T U R A Ð A R Ð E Y R A N Á S Ó T T K I M I A R G S T E F V Ö S A R Á S A Á T S N Æ T U Ð A N S A R L A U K U R T R U K K I Ð A U R I N N U R R A Á A R U S S N N Á R A S R A N N Á S A R N Á M G Á F U L E G U R L A U S N Ú R S ÍÐ A S T A B L A Ð I Vísnahorn Hótel Hekla var vel met- ið öldurhús í Reykjavík á sinni tíð en kannske ekki þekktast fyrir óhóflega nákvæmni með hjónavígsluvottorð þó fólk þarfnaðist afdreps næturlangt. Nú fór þó svo að niðurrifsöfl heimsins tóku að vinna nokk- uð á húsnæðinu og að lokum lögðu menn þar hönd að og kláruðu málið. Meðan á verkinu stóð hittust þeir Bjarni Guðmundsson blaða- fulltrúi og Tómas Guðmundsson skáld og ávarpar Bjarni þá Tómas með þessum orð- um: „Nú drekkum við ekki framar á Hótel Heklu...“ Tómas svaraði að bragði eitthvað á þessa leið: „Nei, blessaður vertu, það er nú öðru nær.“ Bjarni hélt áfram: „né háttum þar alls konar kvenfólk ofan á dívana...“ Tómas: „Nei, biddu fyrir þér, það er nú liðin tíð.“ En framhald málsins og endanleg afleiðing þessa samtals varð semsagt á þessa leið: Nú drekkum við ekki framar á Hótel Heklu né háttum þar alls konar kvenfólk ofan á dívana. Það stafar þó hvorki af kvenfólks- né áfengiseklu, heldur eingöngu af því að það er verið að ríf’ana. Annars hefur mannlífið á hótelum höfuð- borgarinnar vafalaust orðið ýmsum yrkisefni bæði fyrr og síðar og þar á meðal Tryggva Magnússyni í Hótelrímu. Ekki er þó vitað til- efni rímunnar eða hvort það var bara að safna saman í einn brag þeim sem voru áberandi í bæjarlífinu á þessum tíma kringum 1920: Eitt er hótel útvið sjó eignað ljótri bikkju. Ullarjótinn undirbjó erkiþrjóta drykkju. Nú er lítið um annað en ágiskanir hverjir eru þar hafðir í huga sem yrkisefni en Alfred Rosenberg var hótelhaldari á Hótel Íslandi á sinni tíð og var nokkuð í hestamennsku og meðal annars einn stofnenda hestamanna félagsins Fáks. Eigandi hótelsins mun hafa verið maður að nafni j.L. jensen Bjerg. Hann rak þá verslunina Vöruhúsið í sama húsi og verslaði með ullarvörur fyrst og fremst en annars var ullarjóti stundum notað sem góð- látlegt skammaryrði en einnig um grófan og svörgulslegan prjónafatnað: Afar ljótan innst á bekk ullarjótann þyrsti. Inn á hótel gleiður gekk Gvendur sódómisti. Guðmundur hét maður samkynhneigður sem hafði hlotið dóm fyrir kynhneigð sína: Sódómiskur sat við disk, saup á viskí fínu. Át þar biskup blautan fisk með bölvuðu hyski sínu. jón Helgason mun hafa verið biskup á þess- um tíma en ekki er vitað af hverju hann er hér upptalinn: Kemur Bríet kofann í kát á nýjum brókum. Merkispían magnar gný móti íhaldshrókum. Súffragettan sagði blett á sementspretta Jóni, að hann metti auðvaldsstétt æðsta rétt á Fróni. Hér mun vikið að Bríet Bjarnhéðinsdótt- ur kvenréttindafrömuði, bæjarfulltrúa og ,,súffrakettu“ og trúlega jóni Þorlákssyni sem verslaði með byggingavörur meðal annars: Sér til skammar saglar framm sementsprammi ljótur, eykur hlamm og glasaglamm gleiður Mammons þrjótur. jensen Bjerg hafði þá reglu í viðskiptum að lána aldrei en selja eins ódýrt og hægt var og mun að því vikið í lokavísu Hótelrímu: Lætur þrjótur litla krít, lifir af hótelonum. Ullarjótinn éti skít. Ég er á móti honum. Þetta er nú kannske nóg af svona kveðskap í bili og ástæða til að rifja upp stöku Hjálmars á Hofi til Ólínu Andrésdóttur: Hennar þýðu hyggjutún hlynir prýða ljósir, upp á hlíðar efstu brún á hún víðirósir. Og eftir Pál á Hjálmsstöðum er þessi: Hæst á fjöllum glóir gull gaukar bjöllur þeyta bikar höllum barmafull blómin völlu skreyta. Karlakórinn Bræðurnir var starfandi um árabil í Borgarfirði og lengi töluvert líf í fé- lagsskapnum. Eitt sinn er kórinn fór skemmti- reisu vestur í Dali orti Halldór Helgason um það leyti sem lagt var af stað frá Síðumúla: Það er engin þerrispá í þessum gráu skýjum. Yfir hauður himni frá hellir´ann skúrum nýjum. Sumir telja að Stefán jónsson hafi fund- ið upp þá aðferð við yrkingar sem kölluð er Slitruháttur og ein af hans sjálfslýsingum með þeim bragarhætti er eitthvað á þessa leið: Ste- var -raftur fylli- -fán, fót- tré- brúka kunni. Fá- er orðinn alger -bján- -i af -mennsk- þing- -unni. „Fjarlægðin gerir fjöllin blá, mennina mikla og langt til Húsavíkur“ var einu sinni sagt. Sigurður jónsson frá Brún var mikill ferða- þjarkur á sinni tíð. Sérlundaður einfari en hæfileikamaður á margan hátt og að mínu viti stórlega vanmetinn sem skáld enda hvorki efnisval né umbúðir með þeim hætti að félli í smekki ríkjandi skáldaelítu þess tíma. En hér er kvæðið „Fyrirgefið mér“ eftir hann: Fyrirgefið mér fjöll mín góð fjöllin köldu og gráu hve mín öræfaleiða ljóð lita ykkur með bláu. Þeirra vegna sem búa í bæ breiðum sveitum og sléttum vef ég fjarlægðar bláa blæ brekkur allar með klettum. Fjalli koma þeir aldrei að. Aðeins þeir bláu trúa miða allt við sitt heimahlað horfa augum sem ljúga. Löngum hafa menn deilt um skiptingu auðsins bæði fyrr og nú. Þessi vísa Þorsteins Erlingssonar er um það bil 100 ára gömul en ætli sumum þyki ekki sannleikur í henni ennþá. Látum það verða lokaorðin að sinni: Þú félaus maður mátt hér líða nauð og munt í Víti síðar kenna á hörðu; en takist þér að eiga nógan auð, þig englar geyma bæði á himni og jörðu. Með þökk fyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Hrísum,320 Reykholt S 435 1189 og 849 2715 dd@simnet.is Súffragettan sagði blett - á sementspretta Jóni

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.