Skessuhorn


Skessuhorn - 28.06.2017, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 28.06.2017, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 28. júNÍ 201724 Gleði og fjör einkenndi Brákarhátíð sem var haldin í Borgarnesi um liðna helgi. Veðrið var þokkalegt á hátíðinni og fólk lét smá rigningu ekki á sig fá. „Við þjófstörtuðum hátíðinni á fimmtu- deginum þegar fjölskyldutónleikar voru haldnir á vellinum fyr- ir neðan Þórðargötu. Það var smá rigning í byrjun en svo létti til um leið og krakkarnir byrjuðu að dansa, þá hætti fólk að nota regnhlífarnar og krakkarnir fóru að skylmast með þeim. Það rigndi aftur á föstudeginum en létti til þegar leið á kvöldið og svo fengum við ágætis veður á laugardag,“ segir Geir Konráð Theodórsson einn af skipuleggjendum hátíðarinnar í samtali við Skessuhorn. Lögð var áhersla á að hafa fjölbreytta dagskrá fyr- ir alla fjölskylduna. Formleg dagskrá hófst á árlegum dögurði kvenfélagsins við íþróttavöllinn. „Þar kom fólk og fékk sér morg- unmat. Svo fór fullorðna fólkið í sögugöngu með Heiðari Lind Hanssyni og krakkarnir léku sér með Íþróttaálfinum á meðan. Síðan hélt Lífland upp á 100 ára afmæli sitt, þar sem boðið var upp á mat og hestaferðir fyrir börnin, þannig að fólk þurfti ekki einu sinni að fara heim til að borða,“ útskýrir Geir. Ferðamenn hissa Eftir hádegið fór skrúðganga frá Brákarsundi í Skallagrímsgarð. „Við lögðum af stað frá Brákarvörðu, þar sem krakkarnir í bæn- um voru búnir að mála steina. Brúðan af Brák, Skallagrími og Agli voru reistar upp og skrúðgangan var leidd af fornbíl, göml- um slökkviliðsbíl.“ Eftir hádegi var ýmislegt um að vera svo sem bátasiglingar, víkingabardagi og leðjubolti og læti í leirnum. Þá var fjölskyldudagskrá í Skallagrímsgarði, svo eitthvað sé nefnt. Geir kveðst afar ánægður með hvernig hátíðin lukkaðist. „Þetta var voða fínt, við gerðum þetta að miklu leyti fyrir krakkana og þetta tókst mjög vel. Það var skemmtilegt að sjá svipinn á bless- uðum ferðamönnunum sem vissu ekkert hvað var í gangi. Bæði þegar þeir sáu skrúðgönguna og hvernig bærinn var skreyttur á óvenjulegan hátt eftir litum og með því sem hendi var næst,“ seg- ir Geir en að vanda var bænum skipt upp í hverfi sem hvert fékk sinn lit. Gula hverfið hlaut verðlaun sem best skreytta hverfið í ár en Bakkakot í Stafholtstungum var best skreytti bóndabær- inn. Gulir og bláir gerðu jafntefli í leðjuboltanum. Nýjung var í skrúðgöngunni í ár þegar óvélvædd skrautvagnakeppni var hald- in í fyrsta sinn. Bláa hverfið var með eina vagninn sem tók þátt og varð hann því þar af leiðandi best skreytti vagninn. Formlegri fjölskyldudagskrá hátíðarinnar lauk í Englendingavík á laugar- dagskvöld, þar sem Hljómlistarfélag Borgarfjarðar sá um tónlist- aratriði. Að kvöldvöku lokinni var haldinn dansleikur með Sál- inni hans jóns míns í Hjálmakletti. „Síðan var hálfgert eftirpartí á fótboltavellinum þegar gamlir fótboltamenn spiluðu bolta í nætursólinni fram undir morgun, eftir að hafa skemmt sér vel á ballinu,“ segir Geir. „Við viljum koma á framfæri bestu þökkum til styrktaraðila og bæjarbúa fyrir vel heppnaða og góða hátíð. Brákarhátíð verður tíu ára á næsta ári og það verður fróðlegt að sjá hvað verður gert þá,“ segir hann að endingu. grþ/ Ljósm. mm/ Gunnhildur Lind og Brákarhátíð á Facebook. Nú í byrjun júlímánaðar munu Veit- ur ráðast í framkvæmdir við Deild- artunguhver í Borgarfirði. Umtals- verðar endurbætur verða gerðar á aðstöðu fyrir ferðmenn við hverinn til að bæta öryggi þeirra. Á meðan á framkvæmdunum stendur verður aðgengi að hvernum takmarkað og vélar og tæki þar í notkun. Deildartunguhver í Borgarfirði er vatnsmesti hver landsins. Hver- inn er auk þess einn vinsælasti við- komustaður ferðamanna um hér- aðið og því þykir nauðsynlegt að bæta aðstæður við hann, ekki síst til að draga úr slysahættu. Meðal ann- ars þarf að hækka öryggisgrindverk við hverinn. Samhliða endurbótum á aðstöðu ferðamanna verða safn- lagnir fyrir heita vatnið úr hvernum endurnýjaðar og byggt við dæluhús- ið til að koma þar fyrir þrýstijöfnun- arbúnaði fyrir hitaveituna. Veitur áætla að sá hluti fram- kvæmdanna sem mest áhrif hefur á aðstöðu ferðafólks standi yfir fram í októberlok. Meðan á framkvæmd- unum stendur verður komið fyrir bráðabirgðapalli fyrir gesti. „Veit- ur hvetja ferðamenn og starfsfólk í ferðaþjónustu að sýna sérstaka var- úð við Deildartunguhver meðan á framkvæmdunum stendur. Ekki er gert ráð fyrir að verkið hafi áhrif á afhendingaröryggi á heitu vatni,“ segir í tilkynningu. mm Aðstaða verður bætt við Deildartunguhver Vel heppnuð Brákarhátíð um liðna helgi Fjölskyldudagskrá var í Skallagrímsgarði á laugardag þar sem meðal annars mátti sjá víkinga. Ljósm. glh. Brákarhátíð var þjófstartað á fimmtudagskvöld með tónleikum við Þórðargötu. Ljósm. glh. Líflegasti ljósastaur landsins er við enda Þórðargötu. Grillaðar voru pylsur á fimmtudagskvöldið. Ljósm. glh. Dögurður við íþróttavöllinn. Ljósm. Brákarhátíð. Hljómlistarfélag Borgarfjarðar sá um tónlistina á Brákarhátíð. Ljósm. glh. Það rigndi í upphafi Brákarhátíðar. Ljósm. glh. Sögumaður sagði sögur ofan úr tré, meðal annars af Galdra - Lofti. Ljósm. Brákarhátíð. Íbúar við Þórðargötu lögðu mikinn metnað í skreytingar. Ljósm. mm.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.