Skessuhorn - 28.06.2017, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 28. júNÍ 2017 11
AKRANESI - 1. júlí 2017
BREKKU
SÖNGU
R CLUB
71
VIÐ AK
RANES
VÖLL
KL:2
2:00
Á ÍRSKUM DÖGUM
Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar
Páll Óskar
Emmsjé Gauti
Dimma
Síðan Skein Sól
?
Miðasala í Eymundsson Akranesi & á Miði.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Laus störf hjá Akraneskaupstað
Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar:
Leikskólinn Garðasel
Tímabundin staða starfsmanns til eins árs
Grundaskóli
Deildarstjóri frístundar
Stuðningsfulltrúi/skólaliði
Nánari upplýsingar um ofangreind
störf er að finna á www.akranes.is
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
Hljómlistarfélag Borgarfjarðar var
stofnað í Borgarnesi 1. júní síð-
astliðinn. Það voru fjórir Borg-
nesingar sem tóku sig saman og
ákváðu að stofna félagið, þau Þóra
Sif Svansdóttir, sem jafnframt er
formaður félagsins, Halldór Hólm
Kristjánsson, Daði Georgsson og
Sigurþór Kristjánsson, best þekkt-
ur sem Sissi. Öll hafa þau unnið
mikið í tónlist og fannst vanta fé-
lag sem gæti veitt tónlistarmönn-
um í Borgarfirði stuðning og
stuðlað að samstöðu. „Við vinnum
öll í tónlist og ákváðum að setja
þetta félag saman, því okkur fannst
vanta einhverja samstöðu hjá tón-
listarmönnum hérna í héraðinu,“
segir Halldór Hólm í samtali við
Skessuhorn. Halldór segir félagið
vera fyrir allt tónlistarfólk á svæð-
inu og að allir geti gengið í það.
Það sé þó fyrst og fremst hugsað
fyrir flytjendur rythmískrar tón-
listar, en ekki klassískrar. „Tón-
listarfélag Borgarfjarðar heldur vel
utan um þann hluta af tónlistar-
starfinu. Við erum meira í dægur-
lögum og þess háttar tónlist.“
Riðu á vaðið
um liðna helgi
Samhliða því að styðja við bak-
ið á ungum og upprennandi tón-
listarmönnum tekur félagið að sér
að skipuleggja viðburði, líkt og
það gerði á Brákarhátíð í Borgar-
nesi sem fram fór um liðna helgi.
Á fimmtudagskvöldið héldu tón-
listarmenn frá félaginu tónleika
í Þórðargötu, á föstudagskvöld-
ið fór trúbador á vegum félagsins
á milli svæða þegar götugrill voru
haldin og á laugardag stóð félagið
fyrir skemmtun fyrir börn í Skalla-
grímsgarði. Loks á laugardags-
kvöldið voru svo tónleikar í Eng-
lendingavík. „Við erum með þessu
að virkja tónlistarfólk í Borgarnesi
og héraðinu öllu. Á laugardag-
inn komu til dæmis sex söngvarar
fram, allir úr héraðinu. Við viljum
virkja tónlistarfólk, hér eru margir
hæfileikaríkir. Við viljum efla sam-
stöðu og gera eitthvað saman, gera
eitthvað skemmtilegt,“ segir Hall-
dór.
Hann bendir á að alltaf sé hægt
að hafa samband við stjórn fé-
lagsins, annað hvort í gegnum net-
fangið hljomborg@gmail.com eða
beint við þá sem eru í stjórninni.
„Við erum öll með áratuga reynslu
í tónlist og vitum upp á hár hvað
við erum að gera.“ Halldór se-
gir félagið þó fyrst og fremst vera
styrktarfélag sem ætlað er að styð-
ja við bakið á ungu tónlistarfólki.
„Sem dæmi má nefna að ef einh-
ver ungur tónlistarmaður ætlaði í
upptökur, þá gætum við stigið inn
í og hjálpað til með undirspil, fjár-
magn og svo framvegis. Við viljum
styðja við okkar fólk.“
grþ
Hljómlistarfélag Borgarfjarðar stofnað
Vilja virkja tónlistarfólkið í héraðinu
Stofnendur Hljómlistarfélags Borgarfjarðar. Frá vinstri: Daði Georgsson, Þóra Sif
Svansdóttir, Sigurþór Kristjánsson og Halldór Hólm Kristjánsson.
Ljósm. Júlía Guðjónsdóttir.
www.skessuhorn.is