Skessuhorn - 28.06.2017, Page 17
-
Framhald dagskrár laugardagsins:
9:30-11:00 Sandkastalakeppni
Vegna sjávarfalla fer keppni að þessu sinni fram á Langasandskrika næst Sólmundarhöfða (austasti hluti Langasands).
Verðlaun verða veitt í fjórum flokkum: Besti kastalinn, fallegasta listaverkið, yngsti keppandinn og fjölskyldan saman.
11:00 Helgasund til minningar um Helga Hannesson
Sjóbaðsfélag Akraness býður uppá sjósund frá bryggjunni að Merkjaklöpp á Langasandi. Keppendur eru á eigin ábyrgð.
Nánari upplýsingar er að finna á Facebook síðu félagsins.
12:00-13:00 Ullarsokkurinn á Akratorgi
Ungt tónlistarfólk á Akranesi stígur á stokk.
12:00-22:00 Paintball á Suðurgötutúni (fyrir aftan Sementsverksmiðjuna)
12:00-22:00 Vatnaboltar, lasertag og bogfimi á lóð Suðurgötu 64 (við Akratorg)
13:00-16:30 Antíkmarkaður við Akratorg
13:00-17:00 Bílasýning frá Heklu við Akratorg
13:00-18:00 DAGSKRÁ VIÐ BYGGÐASAFNIÐ Í GÖRÐUM
13:00-17:00 Rakubrennsla á flakki
Samblanda fjögurra keramikera á Skaganum og fimm gesta. Fólki gefst kostur á að koma og fylgjast
með þessari spennandi og hröðu brennsluaðferð og jafnvel versla hluti beint úr ofnunum ef áhugi er á.
13:00-17:00 Eldsmiðir að störfum
Hægt að fylgjast með og jafnvel gera góð kaup.
16:00-18:00 Hálandaleikar Hjalta Úrsus og annarra heljarmenna
13:00-22:00 Karnival á Merkurtúni
13:30 Mæting keppenda í Rauðhærðasta á jarðhæð Suðurgötu 57
14:00 Fornbílasýning fram eftir degi
Bílaklúbburinn Krúser verður með sýningu á bílum á bílaplani Blikksmiðju Guðmundar og Eðallagna við Akursbraut.
14-16:30 SKEMMTIDAGSKRÁ VIÐ AKRATORG
Sirkus Íslands -Daniel og Kristinn leika listir sínar.
Rauðhærðasti Íslendingurinn 2017 krýndur. Sigurvegarinn fær flug fyrir tvo til Írlands í boði Gaman ferða.
Slitnir Strengir leika af sinni allkunnu snilld.
Danstúdíó Írisar sýnir Freestyle dansa.
Björgvin Franz og Bíbí syngja töfrandi lög ævintýranna.
Best skreytta húsið, verðlaunaafhending. Sigurvegarinn fær flug fyrir tvo til Írlands með Gaman ferðum.
María og Rakel taka lagið.
BMX Bros sýna snilldar takta.
16:00 Tónleikar á Lesbókin Café
Hlynur Ben og Biggi Þóris taka nokkur bítlalög
20:00-22:00 Lifandi tónlist í Dularfullu búðinni
22:00 Brekkusöngur á þyrlupalli við Akranesvöll á vegum Club 71
23:00-03:00 Írsk stemming á Vitakaffi
23:30 Lopapeysan
Skemmtilegasta sveitaball landsins og þó víðar væri leitað. Miðasala í
Eymundsson á Akranesi, midi.is og við innganginn.
Sunnudagur 2. júlí
13:00-17:00 Karnival á Merkurtúni
14:00-15:30 Leikhópurinn Lotta í boði Norðuráls
Leikhópurinn Lotta flytur leikritið Ljóti andarunginn í Garðalundi. Sýningin er í boði Norðuráls.
Grillin verða heit. Allir eru hvattir til að taka með sér á grillið og njóta ekta pick-nic stemmingar.
Fimmtudagur 29. júní
14:00-15:00 Bókasafn Akraness
Heimsókn Sögubílsins Æringja. Sóla sögukona segir frá.
16:00-17:30 Grillveisla Húsasmiðjunnar
Hin árlega grillveisla Húsasmiðjunnar er fyrir löngu orðin fastur liður á hátíðinni. Það er tilvalið að líta við og fá sér eina með öllu.
17:00-19:00 Garðakaffi, opnun myndlistasýningar
Sólveig Sigurðardóttir, Sissa, heldur myndlistasýninguna Heimahagarnir á Garðakaffi.
Samhliða sýningunni verður spákona á staðnum sem spáir í spil og bolla fyrir gesti og gangandi.
17:30-19:00 Bókmenntaganga – Akranes heima við hafið
Bókmenntagangan hefst við Akratorg. Gengið verður um gömlu byggðina á Akranesi með nokkrum áningum. Félagar í Skagaleikflokknum
og bæjarbókavörður segja frá og rifja upp endurminningar Baska (Bjarna Skúla Ketilssonar) eins og þær birtast í bók hans.
Gangan tekur rúma klukkustund og endar á kaffihúsinu Lesbókinni við Akratorg með tónlistaratriði.
18:00 Hjólarallý MODEL og VODAFONE fyrir alla krakka 4-12 ára
Frá upphafi Írskra daga hafa Model og Vodafone verið virkir þátttakendur í dagskrá þeirra og staðið fyrir dorgveiðikeppni.
Nú stíga þau fram og sýna á sér nýja hlið með því að halda hjólarallý fyrir börn á aldrinum 4-12 ára. Öll börn sem taka þátt fá
viðurkenningu fyrir þátttöku. Auk þess verður happadrætti og vinningarnir ekki af verri endanum.
Staðsetning: Planið hjá Þjóðbraut 1 og stóra malarplanið við hliðina.
Skráning: Þátttakendur skrái sig í Model í síðasta lagi 27. júní.
20:00 Ljóð og lög í Guðnýjarstofa
Kalmanskórinn á Akranesi flytur valda kórtónlist upp úr söngheftunum Ljóð og lög sem Þórður Kristleifsson tók
saman og gaf út á árunum 1939-1949. Gullmolar sem flestir þekkja en sjaldan heyrast.
20:00-22:00 Tónleikar í Dularfullu búðinni
Oran Mór – Hið mikla lag lífsins. Kynnir er Skorsteinn, ekta keltnesk tónlist.
20:30 Tónleikar á Lesbókin Café
Kalli Hallgríms og Gunnar Sturla flytja hressa og ljúfa tóna fram eftir kvöldi og leiða okkur inn í Írska daga.
21:00 Lifandi tónlist á Gamla Kaupfélaginu, frítt inn
Föstudagur 30. júní
14:00 Tónleikar á Lesbókin Café
Margrét Saga og Gunnar Sturla flytja nokkur ljúf lög fyrir gesti og gangandi.
16:00-22:00 Paintball á Suðurgötutúni (fyrir aftan Sementsverksmiðjuna)
16:00-22:00 Vatnaboltar, lasertag og bogfimi á lóð Suðurgötu 64 (við Akratorg)
18:00 Götugrill út um allan bæ
Tilvalið að panta félaga úr Slitnum strengjum í grillið til að taka nokkur lög. Fjögur lög á 10.000 kr. - slitnirstrengir@gmail.com.
19:00-22:00 Karnival á Merkurtúni
20:00-22:00 Lifandi tónlist í Dularfullu búðinni
22:00-24:00 Föstudags eftirréttur - Stórtónleikar á Lopapeysusvæðinu við höfnina
Fram koma: Pollapönk – Sverrir Bergmann - Albatross - Friðrik Dór og fleiri.
23:59 DJ Red Robertson og gestir á Gamla Kaupfélaginu, frítt inn
23:59-03:00 DJ Swingman á Vitakaffi, frítt inn. Aldurstakmark 18 ár
Laugardagur 1. júlí
08:00-17:00 Garðavöllur
Opna Guinness golfmótið, Texas scramble mót með glæsilegum vinningum.
ÍRSKIR DAGAR 2017
Nýjustu upplýsingar
verður ávallt að finna á:
www.akranes.is
Írskir dagar á Akranesi
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM
BREYTINGAR Á DAGSKRÁ
Alla helgina
Keltnesk arfleifð á Vesturlandi á
Byggðasafninu opið kl. 10-17 alla daga.
Farið á fjörur, ljósmyndasýning í
Akranesvita opið kl. 10-18 alla daga.
Heimahagarnir málverkasýning ásamt
spákonu á Garðakaffi opið kl. 10-17 alla daga.
Leiktæki, paintball og vatnaboltar.
Veitingastaðir og kaffihús opin og
ýmsar uppákomur.
Listamenn munu koma og spila
fyrir gesti Lesbókarinnar alla helgina.
Söluvagnar víðsvegar
um bæinn.
22:00-24:00
Föstudags eftirréttur:
Stórtónleikar á Lopapeysu-
svæðinu við höfnina
Fram koma:
Pollapönk
Sverrir Bergmann
Albatross
Friðrik Dór og fleiri.
Skráningar í keppnina um
Rauðhærðasta Íslendinginn
og Best skeytta húsið
berist á netfangið
irskirdagar@akranes.is