Skessuhorn


Skessuhorn - 28.06.2017, Page 23

Skessuhorn - 28.06.2017, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 28. júNÍ 2017 23 „Þetta er meiriháttar! Allir búnir að fá laxa sem eru að veiða hérna í opnun Langár og það er mikið af fiski,“ sagði jógvan Hansen söngv- arinn góðkunni sem opnaði Langá á Mýrum í morgunsárið síðastlið- inn miðvikudag. „Það eru komn- ir tíu laxar á land og ekki búið að veiða nema í þrjá klukkutíma. Ég veiddi fyrsta laxinn minn í Glanna á þessu sumri og þetta lofar sann- arlega góðu með áframhaldið hérna í Langá. Fróði vinur minn og frændi frá Færeyjum var að landa laxi rétt áðan,“ sagði jógv- an og nánast skalf af spenningi og veiðigleði þegar rætt var við hann fyrir hádegi á opnunardaginn. gb Jógvan Hansen með fyrsta laxinn sinn á þessu sumri í Glanna í Langá á Mýrum. Tíu laxar voru komnir á land eftir fyrstu þrjá tímana. Mokveiði í opnun Langár Laxveiðin hófst í Gljúfurá í Borg- arfirði síðastliðinn mánudag. Eft- ir fimm klukkutíma veiði voru tíu laxar komnir á land, sem verður að teljast afar góð byrjun. Mest er af laxi neðarlega í ánni en nokkuð er síðan fyrsti laxinn fór í gegnum teljarann. „Við erum búnir að fá tíu laxa og þetta gengur vel. Mest erum við að fá laxa neðantil í ánni, fyrir neðan brúna á þjóðveginum,“ sagði Ólaf- ur Arnarsson sem var meðal þeirra sem voru búnir að landa löxum þennan fyrsta veiðidag. gb Fjör á bökkum Gljúfurár í morgunsárið Ólafur Arnarsson með einn af fyrstu löxunum úr Gljúfurá þetta sumarið. „já, fyrsti laxinn er kominn úr Reykjadalsá í Borgarfirði. Hann veiddist í Eyjafljóti og var níu punda,“ sagði Óskar Færseth sem á heiðurinn af fyrsta laxinum úr ánni á þessu sumri. „Við sáum ekki fleiri laxa en veiddum nokkra urriða. Það var gaman að veiða fyrsta laxinn,“ sagði Óskar. gb Fyrsti laxinn úr Reykjadalsá Óskar Færseth með fyrsta laxinn úr Reykjadalsá á þessu sumri. „Þetta er meiriháttar byrjun en núna er komnir á milli 80 og 90 laxar á land vítt og breytt úr ánni. Byrjunin er ein sú besta í Grímsá til fjölda ára,“ sagði jón Þór júlí- usson við Grímsá í Borgarfirði en veiðin fór verulega vel af stað þetta sumarið. „Á opnunardaginn í síðustu viku veiddust um 40 lax- ar og margir af þeim voru tveggja ára fiskar. Það er líka ánægjulegt að laxinn virðist vera kominn út um alla á,“ sagði jón Þór, en við heyrðum í honum hljóðið þeg- ar hann var að leiðsegja erlendum veiðimönnum við Laxfossinn. gb Jón Þór Júlíusson með fallegan lax úr Grímsá en veiðin byrjað vel þar. Ein besta byrjun í Grímsá til fjölda ára „Þetta var alveg meiri háttar gaman. Ég hef aldrei veitt þarna áður en við fórum uppá heiðina sunnan megin,“ sagði Selma Björk Ísabella Gunn- arsdóttir sem var við opnun Arnar- vatnsheiðar um miðjan mánuðinn. Með henni í ferð voru Ragnar joh- ansen og Ólafur Guðmundsson. „Við fórum og veiddum vítt og breitt um svæðið. Það er fallegt þarna og gam- an að veiða. Við fengum samtals um 80 fiska; blandaða veiði af bleikju og urriða. Það er virkilega spennandi að reyna eitthvað nýtt. Arnarvatnsheiði hefur alltaf heillað mig og þess vegna ákvað ég að fara núna, ég sé ekki eftir því,“ sagði Selma ennfremur. Silungsveiðin gengur víða vel. Fiskurinn virðist koma vel undan mildum vetri og er að gefa sig víða eins og Hítarvatni, víða í vötnum á Snæfellsnesi og á vatnasvæði Lýsu. gb/ Ljósm Ólafur. Fín veiði á Arnarvatnsheiði Selma Björk með flotta fiska af Arnarvatnsheiðinni. Gott er að fara á heiðina með frauðkassa og ís til að fiskurinn komi í sem bestu ástandi til byggða. Þriðjudaginn 4. júlí kl. 17:00 fagnar Reykhólahreppur 30 ára afmæli og að því tilefni ætlum við að gera okkur glaðan dag og fagna tímamótum í Hvannagarðabrekku á Reykhólum. Dagskrá: Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri setur samkomuna. Grill að hætti hreppsnefndar; grillkjöt, kartöflusalat, hrásalat, sósa og meðlæti. Drykkir á staðnum. Brekkusöngur. Karl Kristjánsson varaoddviti les upp ágrip af sögu sveitarfélagsins. Tónlistaratriði. Leikskólalögin. Gamanmál og grín – 3 aðfluttir sveitungar segja frá fyrstu kynnum sínum af sveitinni, fólkinu og samfélaginu. Nammitrúðarnir færa börnunum sápukúlur og sleikjó. Vilberg Þráinsson oddviti slítur samkomunni en afmælisgestum er frjálst að sitja í brekkunni áfram. Hátíðargestir eru vinsamlega beðnir um að koma með sólstóla og borð eða teppi til að sitja á við snæðing. Þá er ágætt að taka einhver létt leikföng fyrir yngstu börnin. Allir hjartanlega velkomnir í afmæli Reykhólahrepps! Reykhólahreppur 30 ára SK ES SU H O R N 2 01 7

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.