Skessuhorn - 28.06.2017, Qupperneq 30
MIÐVIKUDAGUR 28. júNÍ 201730
Hvað er skemmtilegast
við sumarvinnuna?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Ólafur Sveinn Ólafsson
„Félagsskapurinn og útiveran.“
Erik Schnell
„Þegar hún er búin.“
Gabríel Hrannar Oddsson
„Að fá ástæðu til þess að vera úti
og gera eitthvað.“
Antonía Líf Sveinsdóttir
„Þegar hún klárast.“
Oddný Guðmundsdóttir
„Að fá að vinna með vinunum.“
Um liðna helgi var hið árlega
Norðurálsmót í knattspyrnu haldið
á Akranesi. Mótið er fyrir drengi í
sjöunda flokki en þeir eru á aldrin-
um sex til átta ára. Mótið hófst rétt
fyrir hádegi á föstudag með skrúð-
göngu allra félagsliðanna í mótinu
en fyrir göngunni fóru nemend-
ur Tónlistarskóla Akraness. Eft-
ir gönguna var mótið svo form-
lega sett í Akraneshöllinni af Sól-
veigu Bergmann fyrir hönd Norð-
uráls áður en Baldur Einarsson,
aðalleikari í kvikmyndinni Hjarta-
steini, tók lagið „Í síðasta skipti“
með Friðriki Dór. Veður var frem-
ur slæmt á föstudeginum en lagað-
ist heldur þegar leið á helgina og
var nokkuð gott þegar mótinu lauk
rétt eftir hádegi á sunnudaginn.
Mikil gleði einkenndi mótið, bæði
hjá foreldrum og börnum, og ekki
síst á kvöldvökunni á laugardags-
kvöldið þegar Halli melló og Gói
skemmtu.
Hulda Birna Baldursdóttir,
framkvæmdastjóri Knattspyrnu-
félags ÍA, segir mótið hafa heppn-
ast rosalega vel og er ánægð með
helgina. „Þetta hefði verið full-
komið ef veðrið hefði verið betra
á föstudaginn en fólk lét það
þó ekki á sig fá. Það voru 1.598
knattspyrnumenn sem tóku þátt í
mótinu og hundrað af þeim voru
frá ÍA. Það er svipaður fjöldi og
í fyrra en fleiri foreldrar og að-
standendur mættu með krökkun-
um. Í fyrra var mótinu flýtt vegna
EM og það lenti á sama tíma og
Color Run hlaupið. Það komu því
ekki eins margir með og í ár,“ seg-
ir Hulda og bætir við að bæjarbú-
ar eigi hrós skilið fyrir sinn þátt í
mótshaldinu. „Við erum ákaflega
heppin með foreldra sem vinna
fyrir félagið. Það leggjast allir á eitt
í að gera mótið eins flott og hugs-
ast getur. Foreldrar lánuðu t.d.
þurrkara eftir rigninguna á föstu-
daginn. Uppeldissvið ÍA vinnur
líka óeigingjarnt starf í sjálfboða-
vinnu við að skipuleggja mótið
sem er ómetanlegt. Bæjarbúar eru
almennt mjög duglegir að hjálpa
til við mótið og margir sem vilja
leggja hönd á plóg, eins og verk-
stjórar á svæðunum, og fyrir það
erum við þakklát. Mótið er rómað
fyrir frábæra þjónustu og við vilj-
um halda því áfram. Þáttur bæjar-
búa er því mjög mikilvægur,“ sagði
Hulda að endingu.
Mikill fjöldi fólks kom á Akranes
til að horfa á knattspyrnustjörnurn-
ar leika listir sínar. Einn gestur á
mótsins vakti þó meiri athygli fjöl-
miðla en aðrir. Guðni Th. jóhann-
esson forseti Íslands fylgdi syni sín-
um á mótið og tók að sér vaktir sem
næturvörður á mótinu. Þótti mörgu
það sýna vel hversu alþýðlegur for-
setinn er. bþb/ Ljósm. bþb & gbh.
Norðurálsmótið heppnaðist vel
þótt viðrað hafi illa í upphafi
Strákarnir í Skallagrími voru feikigóðir en hér eru þeir í þann mund að skora úr
rosalegri aukaspyrnu.
1.598 knattspyrnustrákar spiluðu á mótinu og þeim fylgi fjöldi fólks. Í fjölmennri
skrúðgöngu voru það nemendur Tónlistarskóla Akraness sem leiddu hópinn.
Um hundrað Skagamenn tóku þátt á mótinu og stóðu sig
allir með prýði. Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson.
Það er fyrst og fremst gleði sem einkennir Norðurálsmótið.
Strákarnir eru hetjurnar og foreldrarnir standa á hliðar-
línunni og hvetja sína menn áfram.
Á Norðurálsmótinu læra drengirnir að bera virðingu fyrir
leiknum og þakka öllum fyrir leikinn; bæði andstæðingum
og dómara. Það getur þó verið gert með óbragð í munni
fyrir kappsama stráka.
Liðsandinn skiptir öllu máli og nauðsynlegt að fagna vel
með félögunum eftir sigurleiki.
Búið að stilla upp varnarvegg og þá er bara að reyna vera
fyrir. Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson.
Þórsarar voru hressir, kátir og spenntir fyrir helginni í skrúð-
göngunni við upphaf móts.
Fylkismenn voru hressir í skrúðgöngunni á föstudaginn þar
sem þeir voru allir með appelsínugult hár í stíl við búningana
og sungu sig hása.
Markvarðarstaðan er mjög mikilvæg staða og maður
þarf að vera við öllu búinn. Markverðir geta auðveldlega
blindast af sólinni og mikilvægum augnablikum leiksins og
því eru sólgleraugu algjört lykilatriði.
Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson.