Fréttablaðið - 27.11.2019, Síða 2

Fréttablaðið - 27.11.2019, Síða 2
Veður N-læg eða breytileg átt, 3-8 m/s, og yfirleitt léttskýjað, skýjað með köflum A-lands, og léttir heldur til þar í dag. N 5-10 á Austfjörðum seinnipartinn á morgun. Frost 0 til 10 stig. SJÁ SÍÐU 20 Aðventan nálgast á Austurvelli Byrjað er að skreyta Óslóartréð á Austurvelli sem er gjöf Norðmanna og er nú eins og nokkur undanfarin ár úr reit Normannslaget í Heiðmörk í stað þess að vera hoggið í Noregi og f lutt yfir hafið. Ljósin á jólatrénu verða kveikt á sunnudaginn, fyrsta sunnudag í aðventu. Flutt verða jólalög og hressir jólasveinar syngja og skemmta. Lúðrasveit heldur uppi stemningunni áður en kveikt er á ljósunum klukkan fjögur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON www.artasan.is Fæst í næsta apóteki og helstu stórmörkuðum Mundir þú eftir að bursta og skola í morgun? Tannlæknar mæla með GUM tannvörum GUM Orginal 2x10 copy.pdf 1 26/01/2018 12:51 ALBANÍA Minnst átján létu lífið og hundruð eru slösuð eftir harðan jarðskjálfta í Albaníu í gær. Skjálft- inn sem mældist 6,4 að stærð átti upptök sín um 34 kílómetra norð- austur af höfuðborginni Tírana. Hafnarborgin Duarres og þorpið Thumane urðu verst úti. Þar hrundu byggingar og íbúar sátu fastir í rúst- unum. Var þeirra ákaft leitað í gær. Albanski herinn var kallaður til aðstoðar. – bdj Fórust í hörðum skjálfta Hafnarborgin Duarres og þorpið Thumane urðu verst úti. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP VINNUMARKAÐUR „Þegar talað er um stafræna hæfni dettur fólki fyrst í hug að það snúist um að kunna rosalega vel á tölvur. En þetta snýst kannski frekar um að þú kunnir að beita þekkingunni og færninni á réttan hátt,“ segir Selma Kristjáns- dóttir, sérfræðingur í starfsmennta- málum hjá VR. VR hleypti í gær formlega af stokkunum verkefninu Stafræna hæfnihjólið sem er rafrænt sjálfs- próf sem allir geta tekið á netinu sér að kostnaðar- lausu. Markmiðið er að hjálpa félagsmönnum að undir- búa sig til að geta tekist á við aukna tækni í samfélaginu meðal annars í tengslum við umræðu um fjórðu iðnbylt- inguna. „Við viljum líka ýta við fólki og láta það spyrja sig hvort það sé virkilega með góða stafræna hæfni. Þetta er eitthvað sem maður þarf alltaf að vera að endurskoða.“ Selma segir að verkefnið megi rekja til vinnu starfsmennta- nefndar VR og starfsmenntastefnu félagsins. Síðan hafi þetta þróast út í samfélagslegt verkefni sem nýst getur öllum. „Þegar við fórum á stúfana og reyndum að finna með hvaða hætti við gætum komið til móts við félags- menn okkar þá var kannski svolítið takmarkað í boði.“ Þau hafi fundið danskan vef sem fjallar um staf- ræna hæfni. Um hafi verið að ræða Evrópuverkefni sem byggir á helstu þáttum sem ESB hafi skilgreint sem meginþætti stafrænnar hæfni. „Í staðinn fyrir að finna upp hjól- ið spurðum við hvort við gætum ekki bara nýtt okkur þeirra hjól og farið í samstarf. Það var tekið mjög vel í það og núna er búið að þýða þetta yfir á íslensku og gera opið og aðgengilegt öllum.“ Í prófinu er stafrænni hæfni skipt upp í fjóra meginf lokka; öryggi, upplýsingar, framkvæmd og sam- skipti. Selma viðurkennir hlæjandi að prófið, sem alls telur 63 spurn- ingar, sé leiðinlega langt. „En þetta er auðvitað eitthvað sem þú ert ekkert að taka neitt rosalega oft. Þú þarft svolítið að hugsa þetta og vera samkvæmur sjálfum þér til þess að fá eins raun- hæfar niðurstöður og mögulegt er. Þá kannski sérðu eitthvað sem þú þarft að huga betur að,“ segir Selma. Hún segist sérstaklega ánægð með að fræðslusetrið Starfsmennt hafi fengið vilyrði um styrk til að útbúa námskeið til að fylgja niður- stöðum prófsins eftir. „Ef það eru einhverjir þættir sem ákveðinn hópur eða ákveðnir einstaklingar þurfa að skerpa á þá munum við í framtíðinni líka fá lausn til að koma til móts við þá.“ Hægt er að taka prófið á vef VR, vr.is/stafraenhaefni. sighvatur@frettabladid.is Nú má meta stafræna hæfni á heimasíðu VR Á vef VR er hægt að taka próf sem metur staf- ræna hæfni. Sérfræð- ingur hjá félaginu segir þessa hluti vera eitthvað sem fólk þurfi sífellt að vera að endurskoða. VR vill að fólk skoði kunnáttu sína í stafrænum heimi. NORDICPHOTOS/GETTY Fyrimyndin fékkst frá Danmörku. SAMHERJAMÁL Haldið var áfram að fjalla um mál Samherja í Kveik á RÚV í gærkvöldi. Þar kom fram að norski bankinn DNB vissi ekki hverjir voru raunverulegir eigendur reikninga sem tengjast meintu pen- ingaþvætti Samherja. Þá sýna yfirlit yfir bankaviðskipti Samherja að milljarðar hafi farið til Cape Cod frá félögum tengdum Sam- herja en 9,2 milljarðar fóru frá Esju Seafood og Noa Pelagic til Cape Cod á árunum 2010 til 2018. Eru þetta sömu félög og sáu um greiðslur til stjórnarformanns Fishcor. Norski bankinn aðhafðist ekkert fyrr en bandaríski bankinn Bank of New York Mellon stöðvaði milli- færslu til Bandaríkjanna á árinu 2018. – bdj, fbl Milljarðar fóru í gegnum DNB 2 7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 7 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 5 7 -9 8 6 4 2 4 5 7 -9 7 2 8 2 4 5 7 -9 5 E C 2 4 5 7 -9 4 B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 5 6 s _ 2 6 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.