Fréttablaðið - 27.11.2019, Qupperneq 4
Ég óttast að bæði
eigendur og starfs-
fólk þeirra muni tapa.
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri SA
Því miður hafa
ráðherrar þessarar
ríkisstjórnar verið að koma
seint fram með mál inn í
þingið þannig að þau verða
ekki unnin með
fullnægjandi
hætti.
Helga Vala Helga-
dóttir, formaður
velferðarnefndar
Fyrsti stóri slípirokkurinn knúinn
af einni rafhlöðu sem skilar ai
til þess að slípa, er léttari en
snúrurokkur í sinni stærð.
Sveigjanlegt rafhlöðuker
sem virkar með öllum
Milwaukee ® M18™ rafhlöðum.
Verð 136.900 kr. (með rafhlöðu)
M18 FLAG
Alvöru slípirokkur
frá Milwaukee
vfs.is
STJÓRNMÁL Frumvarp Ásmundar
Einars Daðasonar, félags og barna-
málaráðherra, um lengingu fæð-
ingarorlofs var tekið til umræðu á
Alþingi í gær. Samkvæmt því verður
orlofið lengt úr níu mánuðum í tíu
árið 2010 og tólf mánuði ári síðar.
Fari frumvarpið óbreytt í gegnum
þingið verður tilhögunin á endanum
sú að móðir fær rétt til fimm mánaða
orlofs, faðir fimm og tveir mánuðir
verða sameiginlegir. Um lengingu
orlofsins ríkir nokkur póli tísk sátt.
Hún var tekin fram í stjórnarsátt-
málanum, nýtur stuðnings margra
stjórnarandstöðuþingmanna og
hún var ein af forsendunum fyrir
lífskjarasamningunum, sem undir-
ritaðir voru í vor.
Hins vegar ríkir ekki einhugur
um hvernig skiptingin eigi að vera.
Hafa meðal annars BSRB, BHM og
Kvenréttindafélag Íslands bent á
að reynslan sýni að sameiginlegi
hlutinn, sem nú er þrír mánuðir,
sé í langflestum tilfellum nýttur af
móður. Samtökin eru hlynnt leng-
ingu orlofsins, en vilja að skiptingin
sé sex mánuðir fyrir móður og sex
fyrir föður.
Helga Vala Helgadóttir, formaður
velferðarnefndar og þingmaður
Samfylkingarinnar, gagnrýnir ráð-
herra harðlega fyrir hversu seint
frumvarpið kemur til meðferðar
þingsins, en að öllu óbreyttu á það
að taka gildi 1. janúar næstkomandi.
„Við fögnum lengingu innilega og
höfum alltaf talað fyrir því,“ segir
Helga Vala og bendir á að ríkisstjórn
vinstriflokka, sem sat árin 2009 til
2013, hafði tekið ákvörðun um það.
Hægri stjórnin sem við tók hvarf
hins vegar frá því.
Helga segir hins vegar að skoðanir
séu mjög skiptar um útfærsluna og
harmar hversu stuttan tíma þingið
fái til að afgreiða málið. „Annars
vegar er það sjónarmiðið að festa
mánuðina á báða foreldra. Síðan
hitt sjónarmiðið að fæðingarorlofið
eigi að vera fyrir barnið, og verið sé
að mismuna þeim börnum sem eiga
aðeins eitt foreldri,“ segir hún.
„Þetta er eitthvað sem við þurf-
um að skoða gaumgæfilega, því
við viljum ekki fara til baka því að
oftar en ekki er það móðirin sem
tekur orlofið. Hún dettur þar af
leiðandi lengur út af vinnumarkaði
og faðirinn fær takmarkaðri rétt til
að annast barnið sitt.“ Búa þurfi til
þannig kerfi að gætt sé að ítrustu
hagsmunum barnsins, þar á meðal
með tilliti til samvista með báðum
foreldrum.
Eftir þriggja vikna umsagnar-
ferli kæmi frumvarpið úr þinginu
17. desember en þá verður búið
að fresta þingi fram yfir jól. „Þessi
vinnubrögð eru fullkomlega óboð-
leg,“ segir Helga. „Það er ekkert nýtt
í þessu máli síðan í vor. Því miður
hafa ráðherrar þessarar ríkis-
stjórnar verið að koma seint fram
með mál inn í þingið þannig að þau
verða ekki unnin með fullnægjandi
hætti.“ kristinnhaukur@frettabladid.is
Gagnrýndur fyrir seinagang
með fæðingarorlofsfrumvarp
Í gær hófst umræða um frumvarp Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra um leng-
ingu fæðingarorlofs. Samkvæmt því verður orlofið lengt úr níu mánuðum í tólf í þrepum. Helga Vala
Helgadóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis, gagnrýnir harðlega hversu seint frumvarpið komi fram.
Ásmundur Einar, félags- og barnamálaráðherra, er með frumvarp um lengingu fæðingarorlofs. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
AKUREYRI Talið er að haustið 2021
verði öll börn á Akureyri komin í
leikskóla eða aðra vistun tólf mán-
aða. Þetta kemur fram í skýrslu
starfshóps um leiðir til að brúa bilið
milli fæðingarorlofs og leikskóla.
Er gengið út frá því að áform
stjórnvalda um lengingu fæðingar-
orlofs í tólf mánuði verði að veru-
leika í janúar 2021.
Starfshópurinn leggur fram þrjár
sviðsmyndir við fjölgun leikskóla-
rýma miðað við mismunandi íbúa-
þróun. Lagt er til að endurgreiðslur
vegna vistunar í heimahúsum verði
auknar. Skoðaðir verði möguleikar
á að innrita börn í leikskóla tvisvar
á ári en ekki bara á haustin. – sar
Öll 12 mánaða
fá leikskólapláss
Fleiri fara fyrr í leikskólann á Akur-
eyri árið 2021. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SVEITARSTJÓRNIR „Við höfum svo
sem ekki prófað nákvæmlega þessa
útfærslu. En það er mjög mikilvægt
að það ríki traust gagnvart eining-
unni. Ef íbúar hafa ekki trú á því að
heimastjórnir virki eins og þær eiga
að gera, þá fellur þetta um sjálft sig,“
segir Eva Marín Hlynsdóttir, dósent
við stjórnmálafræðideild Háskóla
Íslands.
Eva Marín hélt í gær erindi á
hádegisfundi Félags stjórnmála-
fræðinga og Rannsóknaseturs um
sveitarstjórnarmál þar sem fjallað
var um áskoranir við innleiðingu
heimastjórna í sameinuðum sveit-
arfélögum. Á fundinum var sjónum
sérstaklega beint að heimastjórnum
sem settar verða upp í nýju sam-
einuðu sveitarfélagi á Austurlandi.
„Núna er þetta auðvitað á til-
raunastigi en það verður mjög
spennandi að fylgjast með því
hvernig þetta gengur. Þetta snýst
ekki bara um valddreifingu. Þetta
er líka kall nútímans, að í lýðræðis-
legum samfélögum eigi allir borgar-
arnir að hafa möguleika á að taka
þátt í starfi sveitarfélaganna og hafa
áhrif,“ segir Eva Marín.
Fyrir Alþingi liggur nú tillaga
þess efnis að frá og með sveitar-
stjórnarkosningum 2022 verði lág-
marksíbúafjöldi 250 og frá og með
2026 eitt þúsund.
„Ef það kemur hérna til stór-
felldra sameininga þannig að úr
verði til dæmis mjög landstór
sveitarfélög þá er þetta klárlega eitt-
hvað sem önnur sveitarfélög munu
horfa til. Jafnvel eins og kom fram
á fundinum getur þetta verið eitt-
hvað sem sveitarfélög sem nú þegar
hafa gengið í gegnum sameiningu
gætu velt fyrir sér.“ – sar
Spennandi að sjá hvernig til tekst með heimastjórnir
Fjórar heimastjórnir verða í nýju sveitarfélagi eystra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KJARAMÁL Nýr kjarasamningur
Blaðamannafélags Íslands og Sam-
taka atvinnulífsins var felldur í
atkvæðagreiðslu hjá BÍ í gær með
71,4 prósentum atkvæða.
Alls voru 380 á kjörskrá og greiddu
147 atkvæði eða 38,7 prósent. 36
greiddu atkvæði með samningnum
eða 24,5 prósent en 105 á móti.
Hjálmar Jónsson, formaður BÍ,
segir niðurstöðuna ekki koma sér
á óvart. „Þetta er í annað sinn sem
blaðamenn senda atvinnurekendum
sterk skilaboð um að þeir vilji hóg-
væran samning sem hentar hags-
munum þeirra og ég vona að á þá
verði hlustað.“ Búast megi við fundi
hjá ríkissáttasemjara í dag eða á
morgun.
Til stóð síðastliðinn föstudag að
þriðja vinnustöðvun blaðamanna
hjá Fréttablaðinu, Sýn, Morgunblað-
inu og RÚV færi fram en verkfallinu
var frestað fram á næsta föstudag.
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri SA, segir að
staðan sé grafalvarleg. „Við vitum öll
að það er viðkvæm staða hjá þessum
útgefendum og ef til verkfalla kemur
munu þessir fjölmiðlar veikjast enn
frekar. Ég óttast að bæði eigendur og
starfsfólk þeirra muni tapa á frekari
deilum.“
Aðspurður hvort hann sé bjart-
sýnn á samninga svarar Halldór
Benjamín: „Ég er bjartsýnn að upp-
lagi. Punktur.“ – bdj, fbl
Formaður kveðst vona að hlustað verði á kröfur blaðamanna
Kjörnefnd Blaðamannafélagsins
taldi atkvæðin. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
REYK JAVÍK Hollvinasamtök Ell-
iðaárdalsins hyggjast bíða í nokkrar
vikur með að tilkynna Reykjavíkur-
borg um undirskriftasöfnun gegn
deiliskipulaginu við Stekkjarbakka,
þar sem gróðurhvelfingar Aldin
Biodome eiga að rísa. Samtökin vilja
fá skipulagið í íbúakosningu.
„Við höfum fjórar vikur frá því
að deiliskipulagið tók gildi til að
tilkynna borginni um undirskrifta-
söfnunina,“ segir Halldór Frímanns-
son, lögfræðingur Hollvinasam-
takanna. „Við viljum sleppa við að
þurfa að standa í undirskriftasöfnun
yfir hátíðirnar. Borgin er vís til þess
að svara okkur strax þannig að við
ætlum að bíða.“ Samtökin þurfa 18
þúsund nöfn fyrir íbúakosningu. – ab
Safna nöfnum
eftir áramótin
2 7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
7
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
5
7
-A
C
2
4
2
4
5
7
-A
A
E
8
2
4
5
7
-A
9
A
C
2
4
5
7
-A
8
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K