Fréttablaðið - 27.11.2019, Side 18
MARKAÐURINN
ÚTGÁFUFÉLAG Torg., Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000
Netfang hordur@frettabladid.is | Sími 550 5051
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is
Jólatónleikar til styrktar
Líf styrktarfélagi Landspítalans
fimmtudaginn 5. desember kl. 12
Ásamt hljómsveit og kvennakórnum Concordia
Miðasala á tix.is og við innganginn - Miðaverð 2500.-
- í Fríkirkjunni í Reykjavík.
JólatónleikarJÓL Í BÆ
Ingibjörg Aldís
Ólafsdóttir
sópran
Egill Árni
Pálsson
tenór
Sigríður Ósk
Kristjánsdóttir
mezzosópran
Erlend verðbréfafyrirtæki hafa slitið viðskiptasamböndum v ið Íslendinga og lokað
verðbréfa reikningum þeirra vegna
veru Íslands á gráum lista alþjóð-
lega hópsins FATF. Fyrirtækin eiga
það sameiginlegt að vera í viðskipt-
um við bandaríska uppgjörsfyrir-
tækið Apex Clearing Corporation.
Íslendingur sem var með verð-
bréfareikning hjá bandaríska fyrir-
tækinu Tastyworks fékk tölvupóst
frá fyrirtækinu um liðna helgi,
sem Markaðurinn hefur undir
höndum, þar sem tilkynnt var um
lokun reikningsins. Ástæðan sem
var gefin upp var sú að Apex hefði
sett Ísland á bannlista vegna veru
landsins á gráa listanum. Annar
Íslendingur í viðskiptum hjá
bandaríska verðbréfafyrirtækinu
Firstrade fékk einnig skilaboð um
lokun á verðbréfareikningi sínum
hjá fyrirtækinu. Í skilaboðunum
segir að reikningnum hafi verið
lokað vegna nýlegra stefnubreyt-
inga hjá Apex. Stefnu fyrirtækisins
hafi verið breytt í samræmi við gráa
lista FATF.
Stjórnvöld vinna nú að því að
uppfylla skilyrði FATF og er vonast
til þess að Ísland komist af listanum
í febrúar á næsta ári. Þegar greint
var frá því að Ísland gæti farið á
gráa listann var lagt mat á möguleg
áhrif. Það var samdóma álit stjórn-
valda og erlendra ráðgjafa að áhrif-
in yrði óveruleg og var hvorki talið
að niðurstaðan hefði bein áhrif á
almenning né fjármálastöðugleika
á Íslandi. – þfh
Loka reikningum Íslendinga vegna gráa listans
Stjórnvöld vinna nú að
því að uppfylla skilyrði
FATF og er vonast til þess að
Ísland komist af listanum í
febrúar á næsta ári.
Fjörutíu milljóna evra lánsfjár-mögnun frá breska sjóðnum Athene Capital og öflun flug-
rekstrarleyfis hjá Samgöngustofu
er skilyrt við að hinu nýstofnaða
lággjaldaflugfélagi Play takist að fá
fjárfesta til að leggja því til samtals
tólf milljónir evra, jafnvirði um
1.700 milljóna króna, í hlutafé.
„Þett a hang ir allt saman,“
útskýrði Jóhann M. Ólafsson,
framkvæmdastjóri Íslenskra verð-
bréfa (ÍV), sem heldur utan um fjár-
mögnun flugfélagsins, á fræðslu- og
fjárfestakynningu sem forsvars-
menn Play og ÍV héldu fyrir fulltrúa
í ferðaþjónustu á mánudag, sam-
kvæmt viðmælendum Markaðarins
sem mættu til fundarins. Var hann
meðal annars sóttur af stjórnend-
um fyrirtækja í hvalaskoðun, hóp-
bifreiðastarfsemi og hótelrekstri.
Í samtölum við mögulega fjár-
festa í lok síðustu viku, samkvæmt
heimildum Markaðarins, kom fram
í máli forsvarsmanna Play og ÍV að
fjárfestar væru þá búnir að lýsa yfir
áhuga (e. soft commitment) á að
leggja félaginu til samtals um 700
til 800 milljónir króna. Sá áhugi, að
sögn kunnugra, sé hins vegar skil-
yrtur við að það takist að fá kjöl-
festufjárfesti að hlutafjárútboðinu.
Það hefur enn ekki tekist.
Á fyrrnefndum fundi var lögð
mikil áhersla á þýðingu
þess fyrir íslenskt efna-
hagslíf, og þá einkum
ferðaþjónustuna, að
það takist að koma flug-
félaginu af stað. Þannig
hyggst f lugfélagið, sem
ætlar að hafa tíu Airbus-
þotur í f lota sínum frá og
með 2022, f lytja
um 1,7 milljón-
ir ferðamanna
til landsins á
næstu þrem-
ur árum.
Auk þess að biðla til fjölmargra
einkafjárfesta, fyrirtækja, einkum
í ferðaþjónustu, og fjárfestingar-
félaga er einnig búið að leita til
tryggingafélaga, sjóðastýringar-
félaga, einkabankaþjónustu bank-
anna og að undanförnu hefur fjár-
festingin í Play einnig verið kynnt
nokkrum lífeyrissjóðum. Það er
á skjön við fyrri yfirlýsingar en í
fjárfestakynningu ÍV fyrr í þessum
mánuði kom fram að frekar yrði
leitað til einkafjárfesta og fjárfest-
ingarfélaga þar sem lífeyrissjóðir
og tryggingafélög hefðu líklega ekki
svigrúm til að taka svona fjárfest-
ingaákvörðun nægilega hratt.
Til tryggingar láninu frá breska
sjóðnum, sem ber átta prósenta
vexti, þarf félagið að vera með átta
milljónir evra geymdar á vörslu-
reikningi. Fram kom á fundinum
að samkvæmt viðskiptaáætlun
félagsins yrði lánið greitt upp innan
þriggja ára og í kjölfarið myndi
skapast umtalsvert svigrúm til að
greiða út arð til hluthafa.
Fjárfestar hafa meðal annars
sett sig upp á móti því að þeir
eignist aðeins helmingshlut
í félaginu á móti stofnendum
og öðrum starfsmönnum Play
fyrir hlutafjárframlag sitt. Á
fundinum kom fram að
stjórnendur Play
vær u til v ið-
ræðna um að
hlutur þeirra
yrði minni.
– hae
Lánsfé og flugrekstrarleyfi skilyrt
við að hlutafjársöfnun klárist
1,7
milljónir ferðamanna hyggst
flugfélagið flytja til landsins
á næstu þremur árum.
Hjón i n Sva n h i ldu r Nanna Vigfúsdóttir og Guðmundur Örn Þórðarson, sem eru næststærstu hluthafar
Kviku banka, hafa bæst við hluthafa-
hóp Arion banka eftir að þau keyptu
í bankanum síðasta fimmtudag fyrir
samtals um 820 milljónir króna. Við-
skiptin voru gerð aðeins nokkrum
klukkustundum eftir að þau höfðu
gengið frá sölu á öllum 7,25 prósenta
hlut sínum í VÍS fyrir rúmlega 1.550
milljónir króna en Svanhildur situr í
stjórn tryggingafélagsins.
Svanhildur staðfestir kaupin í
samtali við Markaðinn en félagið
K2B fjárfestingar, sem er í eigu þeirra
hjóna, keypti samtals 10,5 milljónir
bréfa í Arion, sem jafngildir tæp-
lega 0,6 prósenta hlut, og var vegið
meðalverð tæplega 78 krónur á hlut.
Fjárfestingin skilar þeim í hóp
þrjátíu stærstu hluthafa Arion banka
en einu einkafjárfestarnir sem eru
umsvifameiri í eigendahópnum
eru Hvalur, sem er að stærstum
hluta í eigu Kristjáns Loftssonar og
fjölskyldu, með 1,45 prósenta hlut,
og fjárfestingafélagið Stoðir sem á
nærri fimm prósenta hlut.
Spurð um kaupin í Arion banka
segir Svanhildur í samtali við
Markaðinn að þau telji spennandi
tíma fram undan á íslenskum fjár-
málamarkaði. „Gamlir vinnufé-
lagar okkar, þeir Benedikt Gíslason
og Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason,
eru teknir við stjórnartaumunum og
við höfum mikla trú á þeim og sam-
starfsfólki þeirra í bankanum og
teljum að þar liggi mikil tækifæri.“
Þau hjónin hafa jafnframt á síð-
ustu árum verið á meðal stærstu
hluthafa Kviku banka og er Guð-
mundur varaformaður stjórnar
bankans. Samkvæmt heimildum
Markaðarins var gert tilboð í allan
6,75 prósenta hlut þeirra í Kviku síð-
astliðinn föstudag, daginn eftir við-
skipti þeirra í VÍS og Arion banka, en
því var hafnað. Miðað við núverandi
hlutabréfaverð Kviku er sá hlutur
metinn á um 1.350 milljónir króna
en samkvæmt heimildum Markað-
arins var tilboðið, sem gert var í hlut-
inn, umtalsvert undir markaðsverði
bréfanna.
Svanhildur segir að þau hafi engar
áætlanir um annað en að halda þeim
hlut í Kviku. „Fyrir því félagi fer gríð-
arlega sterkur hópur stjórnenda sem
hefur náð framúrskarandi árangri.“
Spurð af hverju þau hafi ákveðið
að losa um allan hlut sinn í VÍS, eftir
að hafa komið fyrst inn í hluthafa-
hópinn fyrir meira en fimm árum,
segir Svanhildur að það hafi verið
mat þeirra á þessari stundu að nú
væri komið að öðrum að taka við.
„Á undanförnum tveimur árum
hefur VÍS náð framúrskarandi
árangri, eftir að hafa um langt skeið
þótt eftirbátur keppinauta sinna á
íslenskum tryggingamarkaði. Trygg-
ingareksturinn er farinn að standa
undir sér, þrátt fyrir óvenju stór tjón,
og hluthafar hafa á tímabilinu bæði
notið góðs af aukinni hlutabréfa-
eftirspurn og kerfisbreytingum á
borð við lækkun hlutafjár, svo fáein
dæmi séu nefnd,“ útskýrir hún.
Svanhildur segir alla sem komið
hafa að rekstri félagsins geta verið
stolta af þessum árangri. „Sérstak-
lega á það við um starfsfólk VÍS, sem
gengur nú í takt og hefur unnið sigra
sem áður þóttu næstum óraunhæfir.
Sjálf er ég þakklát fyrir það traust
sem ákveðinn hópur hluthafa hefur
sýnt mér, en að sama skapi ánægð
með þann ávinning sem hluthafar
hafa notið, stórir sem smáir, einka-
fjárfestar og sjóðir.“
Svanhildur hætti sem stjórnar-
formaður VÍS í fyrra í kjölfar þess
að embætti héraðssaksóknara
tók til skoðunar kaup hjónanna,
með öðrum fjárfestum, á hlutum
í Skeljungi árið 2008 og færeyska
olíufélaginu P/F Magn árið 2009.
Rannsóknin kom til vegna kæru
sem Íslandsbanki lagði fram. Hjónin
voru aðaleigendur Skeljungs og P/F
Magn fram til ársloka 2013 þegar
félögin voru seld fyrir samtals tæp-
lega átta milljarða til framtakssjóðs
í stýringu Stefnis.
Í árslok 2018 nam eigið fé fjárfest-
ingafélags þeirra hjóna, K2B fjár-
festingar, samtals rúmlega 3,6 millj-
örðum króna. hordur@frettabladid.is
Kaupa í Arion banka
fyrir yfir 800 milljónir
Sama dag og hjónin Svanhildur og Guðmundur seldu hlut sinn í VÍS keyptu
þau í Arion fyrir 820 milljónir. Höfnuðu tilboði í 6,75 prósenta hlut þeirra í
Kviku. Engar áætlanir um annað en að halda þeim hlut, segir Svanhildur.
Svanhildur segir að það hafi verið mat þeirra að það væri komið að öðrum að taka við í VÍS. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
1.550
milljónir króna fengu
hjónin fyrir hlut sinn í VÍS
Arnar Már Magnússon,
forstjóri Play.
2 7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN
2
7
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
5
7
-B
6
0
4
2
4
5
7
-B
4
C
8
2
4
5
7
-B
3
8
C
2
4
5
7
-B
2
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K