Fréttablaðið - 27.11.2019, Side 24

Fréttablaðið - 27.11.2019, Side 24
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Eldvarnaátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutn-ingamanna (LSS) fer fram um þessar mundir, en þá fara slökkviliðsmenn og heimsækja börn í 3. bekk í öllum grunn- skólum landsins og fræða þau um eldvarnir. Börnin fá einnig eintak af handbók Eldvarnabandalagsins um eldvarnir heimilisins og söguna af Brennu-Vargi og Loga og Glóð. Í fyrsta sinn fá þau líka að sjá nýja teiknimynd um Loga og Glóð og baráttu þeirra við Brennu-Varg. Börnunum býðst svo að taka þátt í Eldvarnagetrauninni, en þau sem verða dregin úr pottinum fá afhent vegleg verðlaun á 112-deginum, 11. febrúar næstkomandi. Mikill árangur á 30 árum „Eldvarnaátakið er verkefni LSS í samstarfi við slökkviliðin og grunnskólana og markmið þess er fyrst og fremst að fræða fólk um eldvarnir heimilisins,“ segir Magnús Smári Smárason, for- maður LSS. „Það hefur gefið mjög góða raun að beina þessari fræðslu til barna og það hefur verið gert í hátt í 30 ár. Frá upphafi hafa vel á annað hundrað þúsund Íslend- ingar fengið þessa fræðslu. Þetta hefur skilað miklum árangri. Þetta er mikil vitundar- vakning fyrir börnin og þau eru alltaf mjög áhugasöm. Þau skila þessu svo heim og fá foreldrana til að fara yfir eldvarnir heim- ilisins í jólaundirbúningnum,“ segir Magnús. „Þetta er góð þróun og það verður sífellt algengara að heimili hafi reykskynjara, slökkvi- tæki og eldvarnateppi, en þessir hlutir eiga að vera fyrir hendi á hverju heimili. Börnin læra um þennan eld- varnabúnað og að hverju þarf að huga. Við kynnum líka fyrir þeim nauðsyn flóttaleiða og þau eru hvött til að búa til f lóttaáætlun fyrir heimilið og æfa hana,“ segir Magnús. „Aðaláherslan er á börn í 3. bekk núna, en í öðru verkefni er farið í efstu deildir leikskóla til að fræða og þeim hefur líka verið boðið í heimsókn á slökkvi- stöðina.“ Fræða, en hræða ekki „Við leggjum mikla áherslu á að börnin þekki neyðarnúmerið, einn-einn-tveir, og kennum þeim að þau geti hringt í 112 eftir aðstoð ef þörf krefur,“ segir Magnús. „Það er settur upp lítill leikþáttur til að hjálpa þeim að muna þetta og reynt að hafa þetta lifandi. Þetta snýst bara um að fræða, en ekki hræða og markmiðið er að þau þurfi ekki að hringja í 112, en geti það ef þörf krefur. Allir krakkar sem taka þátt í Eld- varnagetrauninni fara svo í pott sem dregið verður úr 11. febrúar, á 112-deginum,“ segir Magnús. „Þeir sem verða dregnir úr pottinum fá nokkuð vegleg verðlaun afhent við glæsilega og hátíðlega athöfn.“ Teiknimynd nær til barna „Nú er í fyrsta sinn verið að sýna nýja teiknimynd um persónurnar Loga, Glóð og Brennu-Varg, sem hafa verið hluti af fræðsluefni sem LSS hefur notað í Eldvarna- átakinu undanfarin ár. Markmiðið með henni er að straumlínulaga fræðsluefnið til barnanna og að ná betur til þeirra, en þau taka mjög vel við svona teiknimyndaefni og hafa mikinn áhuga á því,“ segir Magnús. „Það er mjög gott að geta látið börnin læra án þess að þau fatti að það sé verið að kenna þeim. Það var fyrirtækið Thank You sem framleiddi teiknimyndina fyrir LSS með stuðningi ýmissa aðila,“ segir Magnús. „LSS vill þakka eftirtöldum fyrir stuðning- inn við gerð hennar: Eignarhalds- félaginu Brunabótafélagi Íslands, Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, VÍS hf., Mannvirkjastofnun, Neyðarlínunni, Slökkviliði Akur- eyrar, Brunavörnum Suðurnesja, Brunavörnum Árnessýslu og Slökkviliði Fjarðabyggðar.“ Hafa vit fyrir foreldrunum „Nú líta margir á yfirferð á eld- vörnum sem hluta af undirbúningi jólanna og tímasetning átaksins rímar vel við að koma þessu inn í undirbúning hátíðarinnar,“ segir Magnús. „Krakkarnir sem fá fræðsluna hjá okkur fara líka oft heim og hafa vit fyrir foreldrum sínum. Sumir foreldrar hafa sagt okkur að það hafi fyrir löngu verið kominn tími til að sinna þessu en það hafi ekki gerst fyrr en barnið ýtti á það. Við köllum þessi börn stundum eldvarnafulltrúana okkar,“ segir Magnús. „Við höfum heyrt af stelpu sem fékk fræðsluna og passaði að mamma sín skildi ekki eftir kveikt á kertum þegar hún fór í þvottahúsið. Við heyrðum líka sögu af strák sem var heima með mömmu sinni sem ætlaði að fara að steikja eitthvað í potti svo hún setti olíu í pott og kveikti undir en gleymdi sér svo, þannig að það kviknaði í feitinni. Hún ætlaði að setja vatn á eldinn en þá vissi sá litli að maður á að kæfa svona eld en ekki setja vatn á hann, því vatn á logandi feiti framkallar eld- sprengingu! Við erum mjög ánægð með áhuga barnanna og fjölskyldna þeirra,“ segir Magnús. „Við tökum eftir því að þetta hefur jákvæð áhrif og að fólk tekur mjög vel í þetta verkefni.“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók þátt í setningu Eldvarnaátaksins í Kópavogsskóla 21. nóvember síðastliðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Magnús segir að nýja teiknimyndin geti látið börnin læra án þess að þau viti að það sé verið að kenna þeim. Framhald af forsíðu ➛ Það verður sífellt algengara að heimili hafi reykskynj- ara, slökkvitæki og eldvarnateppi, en þessir hlutir eiga að vera fyrir hendi á hverju heimili. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R 2 7 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 5 7 -D 8 9 4 2 4 5 7 -D 7 5 8 2 4 5 7 -D 6 1 C 2 4 5 7 -D 4 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 2 6 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.