Fréttablaðið - 27.11.2019, Qupperneq 24
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Eldvarnaátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutn-ingamanna (LSS) fer fram
um þessar mundir, en þá fara
slökkviliðsmenn og heimsækja
börn í 3. bekk í öllum grunn-
skólum landsins og fræða þau um
eldvarnir. Börnin fá einnig eintak
af handbók Eldvarnabandalagsins
um eldvarnir heimilisins og
söguna af Brennu-Vargi og Loga og
Glóð. Í fyrsta sinn fá þau líka að sjá
nýja teiknimynd um Loga og Glóð
og baráttu þeirra við Brennu-Varg.
Börnunum býðst svo að taka þátt í
Eldvarnagetrauninni, en þau sem
verða dregin úr pottinum fá afhent
vegleg verðlaun á 112-deginum, 11.
febrúar næstkomandi.
Mikill árangur á 30 árum
„Eldvarnaátakið er verkefni LSS
í samstarfi við slökkviliðin og
grunnskólana og markmið þess
er fyrst og fremst að fræða fólk
um eldvarnir heimilisins,“ segir
Magnús Smári Smárason, for-
maður LSS. „Það hefur gefið mjög
góða raun að beina þessari fræðslu
til barna og það hefur verið gert
í hátt í 30 ár. Frá upphafi hafa vel
á annað hundrað þúsund Íslend-
ingar fengið þessa fræðslu.
Þetta hefur skilað miklum
árangri. Þetta er mikil vitundar-
vakning fyrir börnin og þau eru
alltaf mjög áhugasöm. Þau skila
þessu svo heim og fá foreldrana
til að fara yfir eldvarnir heim-
ilisins í jólaundirbúningnum,“
segir Magnús. „Þetta er góð þróun
og það verður sífellt algengara að
heimili hafi reykskynjara, slökkvi-
tæki og eldvarnateppi, en þessir
hlutir eiga að vera fyrir hendi á
hverju heimili.
Börnin læra um þennan eld-
varnabúnað og að hverju þarf að
huga. Við kynnum líka fyrir þeim
nauðsyn flóttaleiða og þau eru
hvött til að búa til f lóttaáætlun
fyrir heimilið og æfa hana,“ segir
Magnús. „Aðaláherslan er á börn
í 3. bekk núna, en í öðru verkefni
er farið í efstu deildir leikskóla
til að fræða og þeim hefur líka
verið boðið í heimsókn á slökkvi-
stöðina.“
Fræða, en hræða ekki
„Við leggjum mikla áherslu á að
börnin þekki neyðarnúmerið,
einn-einn-tveir, og kennum þeim
að þau geti hringt í 112 eftir aðstoð
ef þörf krefur,“ segir Magnús. „Það
er settur upp lítill leikþáttur til
að hjálpa þeim að muna þetta og
reynt að hafa þetta lifandi. Þetta
snýst bara um að fræða, en ekki
hræða og markmiðið er að þau
þurfi ekki að hringja í 112, en geti
það ef þörf krefur.
Allir krakkar sem taka þátt í Eld-
varnagetrauninni fara svo í pott
sem dregið verður úr 11. febrúar, á
112-deginum,“ segir Magnús. „Þeir
sem verða dregnir úr pottinum fá
nokkuð vegleg verðlaun afhent við
glæsilega og hátíðlega athöfn.“
Teiknimynd nær til barna
„Nú er í fyrsta sinn verið að sýna
nýja teiknimynd um persónurnar
Loga, Glóð og Brennu-Varg, sem
hafa verið hluti af fræðsluefni
sem LSS hefur notað í Eldvarna-
átakinu undanfarin ár. Markmiðið
með henni er að straumlínulaga
fræðsluefnið til barnanna og að ná
betur til þeirra, en þau taka mjög
vel við svona teiknimyndaefni og
hafa mikinn áhuga á því,“ segir
Magnús. „Það er mjög gott að geta
látið börnin læra án þess að þau
fatti að það sé verið að kenna þeim.
Það var fyrirtækið Thank You
sem framleiddi teiknimyndina
fyrir LSS með stuðningi ýmissa
aðila,“ segir Magnús. „LSS vill
þakka eftirtöldum fyrir stuðning-
inn við gerð hennar: Eignarhalds-
félaginu Brunabótafélagi Íslands,
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins,
VÍS hf., Mannvirkjastofnun,
Neyðarlínunni, Slökkviliði Akur-
eyrar, Brunavörnum Suðurnesja,
Brunavörnum Árnessýslu og
Slökkviliði Fjarðabyggðar.“
Hafa vit fyrir foreldrunum
„Nú líta margir á yfirferð á eld-
vörnum sem hluta af undirbúningi
jólanna og tímasetning átaksins
rímar vel við að koma þessu inn
í undirbúning hátíðarinnar,“
segir Magnús. „Krakkarnir sem fá
fræðsluna hjá okkur fara líka oft
heim og hafa vit fyrir foreldrum
sínum. Sumir foreldrar hafa sagt
okkur að það hafi fyrir löngu verið
kominn tími til að sinna þessu en
það hafi ekki gerst fyrr en barnið
ýtti á það.
Við köllum þessi börn stundum
eldvarnafulltrúana okkar,“ segir
Magnús. „Við höfum heyrt af
stelpu sem fékk fræðsluna og
passaði að mamma sín skildi ekki
eftir kveikt á kertum þegar hún fór
í þvottahúsið. Við heyrðum líka
sögu af strák sem var heima með
mömmu sinni sem ætlaði að fara
að steikja eitthvað í potti svo hún
setti olíu í pott og kveikti undir
en gleymdi sér svo, þannig að það
kviknaði í feitinni. Hún ætlaði að
setja vatn á eldinn en þá vissi sá
litli að maður á að kæfa svona eld
en ekki setja vatn á hann, því vatn
á logandi feiti framkallar eld-
sprengingu!
Við erum mjög ánægð með
áhuga barnanna og fjölskyldna
þeirra,“ segir Magnús. „Við tökum
eftir því að þetta hefur jákvæð
áhrif og að fólk tekur mjög vel í
þetta verkefni.“
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók þátt í setningu Eldvarnaátaksins í Kópavogsskóla 21. nóvember síðastliðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Magnús segir að nýja teiknimyndin geti látið börnin læra án þess að þau viti að það sé verið að kenna þeim.
Framhald af forsíðu ➛ Það verður sífellt
algengara að
heimili hafi reykskynj-
ara, slökkvitæki og
eldvarnateppi, en þessir
hlutir eiga að vera fyrir
hendi á hverju heimili.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R
2
7
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
5
7
-D
8
9
4
2
4
5
7
-D
7
5
8
2
4
5
7
-D
6
1
C
2
4
5
7
-D
4
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K