Fréttablaðið - 27.11.2019, Síða 30

Fréttablaðið - 27.11.2019, Síða 30
Ég er viðskiptafræðingur og starfa hjá augnlæknastöðinni Sjónlagi í Glæsibæ ásamt því að vera bloggari á Fagurkerar.is. Ég er þó eins og stendur í fæð­ ingarorlofi en ég eignaðist seinna barnið mitt fyrir 4 vikum,“ segir Hrönn, sem býr í Kópavogi ásamt manni og tveimur börnum. Fyrsta heimilið kveikjan Ástríða Hrannar fyrir þrifum hófst af alvöru þegar hún fór að búa. „Áhuginn kviknaði að mestu þegar ég f lutti sjálf að heiman og fór að reka mitt eigið heimili. Þá komst ég að því hvað mér fannst ótrúlega gaman að þrífa og halda öllu hreinu. Mamma varð þó ekkert sérstaklega vör við þennan þrifaáhuga þegar ég bjó hjá henni en ég man þó að þegar ég var lítil fannst mér rosalega gaman að taka til í herberginu hjá öðrum krökkum og það var oft mjög vin­ sælt að fá mig í heimsókn!“ Hrönn segir ítarleg heimilis­ þrif ekki endilega þurfa að vera bundin við þennan tíma árs. „Jólahreingerning er auðvitað alls ekkert eitthvað sem er nauðsyn­ legt að gera fyrir jólin og það má alveg eins gera vorhreingerningu eða hausthreingerningu en ég tel að það sé mikilvægt að taka eina svona allsherjar hreingerningu einu sinni á ári.“ Í hennar tilfelli var jólahrein­ gerningin órjúfanlegur hluti af æskujólunum og hafa þær áherslur fylgt henni alla tíð. „Ég geri mína hreingerningu fyrir jólin af því að ég var alin upp við það og það var bara hluti af jólaundirbúningnum hjá mömmu og pabba að taka allt húsið í gegn, þrífa inni í og ofan á skápum og skrúbba allt hátt og lágt. Mér finnst þetta vera alveg jafnmikill hluti af jólastemningunni eins og að baka piparkökur eða sörur.“ Þrifin eru framkvæmd á skil- virkan og hnitmiðaðan hátt „Ég skipti hreingerningunni í þrif og tiltekt og finnst þessir þættir báðir jafn mikilvægir. Ég fer í gegnum alla skápa, skúffur og hirslur á heimilinu, endurraða og reyni að losa mig við eins mikið og ég get af óþarfa og hlutum sem eru ekkert notaðir eða ónýtir. Það fylgir því ótrúlega góð tilfinn­ ing að ná að losa aðeins um og minnka dótið á heimilinu. Það er líka alveg á hreinu að það verður síður drasl hjá þér ef þú átt minna af óþarfa dóti.“ Lykillinn felst í skipulagningunni Hrönn ráðleggur fólki að undir­ búa þrifin með góðum fyrir­ vara. „Það sem er mikilvægast er að vera skipulagður og ákveða snemma hvað það er sem þú vilt gera og hvenær þú ætlar að gera það. Fyrir fólk sem finnst leiðin­ legt að þrífa er tilvalið að skipta þessum verkefnum niður á nokkrar helgar í nóvember og gera smá um hverja helgi, þá er þetta ekki eins óyfirstíganlegt og tekur styttri tíma í hvert skipti. Svo er auðvitað ekkert eins leiðin­ legt og að eiga þetta allt eftir 20. desember og vera í einhverju stressi korter í jól.“ Það er fátt betra en að geta notið helgarinnar í hreinu umhverfi, segir Hrönn, og því reynir hún að þrífa vikulega. „Ég er rosalega skipulögð manneskja og eftir að ég f lutti að heiman var ég f ljót að búa mér til svona þrifatékklista sem ég fór alveg eftir í mínum heilögu vikuþrifum en ég hef alltaf gert heimilisþrif vikulega og þá helst á fimmtudögum en ég elska að koma heim úr vinnunni á föstudögum í hreint hús og geta byrjað að njóta helgarinnar. Fyrir þá sem vilja komast betur í þrifa­ gírinn og fara að þrífa oftar og meira mæli ég hiklaust með því að velja einn vikudag fyrir heimilis­ þrifin og reyna að standa við það, auðvitað getur alltaf eitthvað komið upp á en þá má alltaf bara þrífa degi fyrr eða degi seinna. Eins er gott að gera tékklista yfir þau verkefni sem þarf að gera og þið viljið gera vikulega og svo er bara farið eftir honum.“ Þá sé snjallt að fá fjölskylduna með sér í lið. „Það er auðvitað mjög sniðugt að reyna að virkja alla fjöl­ skyldumeðlimi í þetta verkefni og gera það að sameiginlegu verkefni fjölskyldunnar. Dóttir mín sem er að verða þriggja ára er alla­ vega mjög til í að hjálpa ef hún fær tusku og smá vatn, þá fæ ég frið til að vinna mín verkefni.“ Hrönn segir að sér þyki best að byrja á tiltekt og það komi henni iðulega í gírinn. „Mér finnst langbest að byrja á því að taka til og fara svo í þrifin en ég get ekki byrjað að þrífa fyrr en ég er búin að ganga frá öllu dóti og drasli og allt komið á sinn stað. Oft finnst mér ég líka komast í þrifagírinn við að taka til svo ég mæli með því fyrir fólk að byrja á því að ganga frá öllu dóti og drasli og finna þrifa­andann koma yfir sig og demba sér svo í þrifin.“ Mikilvægt sé að stilla hugann rétt og einblína á lokaútkomuna, enda fátt betra en leggjast upp í hreint rúm, á hreinu heimili, eftir annasaman dag. „Best að hugsa ekkert um hvað þetta er leiðinlegt eða tekur langan tíma og henda sér bara í verkið áður en maður freistast til að henda sér upp í sófa í staðinn. Mér finnst allavega fátt betra en tilfinningin þegar ég er búin að þrífa allt húsið og allt er orðið hreint og fínt, allir hlutir á sínum stað, komin hrein rúmföt á rúmið og ég á leiðinni upp í rúm eftir langan dag.“ Áhugasamir geta fylgst með Hrönn á Snapchat og á fagurkerar.is. Þrif og bakstur jafn mikilvægt Hrönn Bjarnadóttir viðskiptafræðingur, fagurkeri og þrifagúru ásamt fjölskyldu sinni. MYND/KRISSÝ Hrönn Bjarna- dóttir er áhuga- kona og sérfræð- ingur í þrifum. Hún tekur til og þrífur vand- lega vikulega en í aðdraganda jólanna gefur hún í og þrífur hvern krók og kima heimilisins. Mér finnst alla­ vega fátt betra en tilfinningin þegar ég er búin að þrífa allt húsið og allt er orðið hreint og fínt, allir hlutir á sínum stað, komin hrein rúm­ föt á rúmið og ég á leiðinni upp í rúm eftir langan dag. Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is • Sími: 553 1380 Eru sparifötin hrein? FJÖ LSKY LDUFYRIRTÆKI Í 65 ÁR STOFNAÐ 1953 6 KYNNINGARBLAÐ 2 7 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RJÓLAHREINGERNING 2 7 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 5 7 -B 6 0 4 2 4 5 7 -B 4 C 8 2 4 5 7 -B 3 8 C 2 4 5 7 -B 2 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 2 6 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.