Fréttablaðið - 27.11.2019, Síða 32
Betra er að þrífa með hreinni tusku.
Það er ekki skemmtilegt að vera með lyktandi borðtusku. Hana þarf að þvo
reglulega, ekki minna en einu
sinni í viku. Setjið í þvottavél
á 60°C. Gott er að skola borð
tuskuna í köldu vatni eftir notkun
og vinda hana vel. Bakteríur þola
illa mikinn kulda. Einnig er hægt
að setja hana í pott með vatni,
þvottalegi og smá matarsóda og
sjóða hana smástund. Við það
drepast bakteríur.
Sumir nota tuskur úr bleyju
efni á meðan aðrir nota mikró
klúta. Báðar gerðirnar skal setja
í þvottavél. Það er engin ástæða
til að kaupa sífellt nýja borðklúta
því þeir endast vel sé þeim haldið
hreinum og fínum. Eldhúshand
klæði og viskastykki á líka að þvo
oft og alltaf á 60°C.
Hreinar og fínar
borðtuskur
Pappírshólkar undan salernispapp-
ír eða eldhúsrúllum eru til margs
nýtilegar í hreingerningum.
Þegar salernispappírinn klárast setja vonandi flestir pappírshólkinn í endurvinnslu því
ekki er sniðugt að henda honum
í ruslið. Það er hins vegar hægt
að nýta hólkinn á margvíslegan
sniðugan hátt. Vissulega er hægt
að föndra með svona hólka en
annað hlutverk er mjög hentugt.
Hólkurinn er settur framan á ryk
sugurörið til að komast að erfiðum
og þröngum stöðum í íbúðinni, þar
má nefna rifur í miðstöðvarofni,
bak við leiðslur eða snúrur, við gólf
lista eða borðfætur og fleiri staði
þar sem erfitt er að komast með
hart millistykkið úr ryksugunni.
Einnig má nota þetta ráð þegar
bíllinn er ryksugaður.
Ef pappírshólkurinn er of stuttur
til að ná bak við eitthvað má einnig
nota hólk úr eldhúsrúllu.
Góð ráð þegar
pappír klárast
Tómatsósa
getur leyst upp
suma erfiða bletti.
NORDIC PHOTOS/
GETTY
Nýlega vakti stutt myndband sem sýndi konu losa erfiða bletti neðan af potti með
tómatsósu mikla athygli á netinu. Í
myndbandinu smyr hún tómatsósu
á helminginn af botni pottsins og
eftir 15 mínútur getur hún ein
faldlega skolað dökka drulluna af
pottinum.
Fæstir tengja tómatsósu við þrif
og kannast frekar við klístraða
bletti eftir hana, en það eru
ediksýrur í tómatsósu sem virka
sérstaklega vel á dökku blettina
sem myndast undir pottum og
pönnum. Sýrurnar leysa nefnilega
upp koparoxíð sem myndast
við eldamennsku og er hluti af
dökku skáninni neðan á þeim.
Í myndbandinu duga 15
mínútur, en almennt er
mælt með að láta hana
liggja á í um hálftíma og
svo skrúbba óhreinindin
af. Eftir það á yfirborðið að
vera eins og nýtt.
Tómatsósa þrífur botn potta
Athugið: Það er
ekki mælt með að
nota tómatsósu til að
þvo fötin sín. Það skapar
fleiri vandamál en það
leysir.
Vesturhrauni 3 | 210 Garðabær | Sími: 480 0000 | www.aflvelar.is | sala@aflvelar.is
Gólfþvottavél sem léttir
vinnuna, sparar tíma og
þrífur ótrúlega vel.
Afkastageta i-mop XL er allt
að 1.000 m2 á klukkustund.
Sjá nánar i-teamglobal.com
Hafðu samband og pantaðu
kynningu fyrir þitt fyrirtæki.
Nú er i-mop fáanleg í
þremur stærðum:
Lite 37 sm, XL 46 sm
og XXL 62 sm
8 KYNNINGARBLAÐ 2 7 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RJÓLAHREINGERNING
2
7
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
5
7
-C
9
C
4
2
4
5
7
-C
8
8
8
2
4
5
7
-C
7
4
C
2
4
5
7
-C
6
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K