Fréttablaðið - 27.11.2019, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 27.11.2019, Blaðsíða 36
Stjórnendur íslenska nýsköp­unarfyrirtækisins Kerecis áætla að tekjur félagins á þessu fjár­ hagsári, sem hófst 1. október síðast­ liðinn, verði samtals um 24 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði um þriggja milljarða íslenskra króna, og þre­ faldist þannig frá fyrra ári. Þetta kom fram á aðalfundi Ker­ ecis sem fór fram í gærmorgun, sam­ kvæmt heimildum Markaðarins, en reksturinn á fyrstu tveimur mán­ uðum fjárhagsársins er í samræmi við áætlanir félagsins. Gert er ráð fyrir að aukin velta Kerecis muni fyrst og fremst koma til vegna vaxtar á Bandaríkjamarkaði. Kerecis, sem er með höfuðstöðvar sínar á Ísafirði, framleiðir afurðir sem byggðar eru á affrumuðu þorsk­ roði sem inniheldur fjöl ómettaðar fitusýrur. Afurðirnar hafa jákvæð áhrif á frumuvöxt og eru seldar til meðhöndlunar á þrálátum sárum og brunasárum. Stjórnendur gera ráð fyrir að salan á Bandaríkjamarkaði, sem hafi geng­ ið vel að undanförnu og skilningur félagsins og fótfesta á þeim markaði styrkst ört, muni halda áfram að aukast verulega. Þannig kom fram í máli Guðmundar Fertrams Sigur­ jónssonar, framkvæmdastjóra Ker­ ecis, á fundinum að fyrirtækið búist við því að vera komið með yfir 200 sölumenn í Bandaríkjunum 2022. Þá er gert ráð fyrir því í langtíma­ áætlunum félagsins að heildarvelta Kerecis verði komin yfir 200 millj­ ónir dala eftir fimm ár, að því er fram kom á aðalfundinum. Kerecis lauk fyrr á þessu ári fjár­ mögnun fyrir sextán milljónir Bandaríkjadala. Félagið seldi þá nýtt hlutafé til núverandi hluthafa og nýrra fyrir um 1.250 milljónir og auk þess var kröfum skuldbreytt í hlutafé að upphæð um 750 milljónir. Á meðal þeirra sem bættust þá við hluthafahóp Kerecis voru samtökin Emerson Collective, sem voru stofn­ uð af Laurene Powell Jobs, ekkju Steve Jobs, stofnanda Apple, en þau breyttu kröfum sínum í hlutafé fyrir 390 milljónir og settu jafnframt inn nýtt fjármagn í félagið. Er Emerson Collective nú á meðal stærstu hlut­ hafa Kerecis. Miðað við almenna gengið í hlutafjárhækkuninni, um 2.000 krónur á hlut, gæti virði Ker­ ecis verið allt að 12,4 milljarðar. Óla f u r R ag na r Gr í m s son, fyrrverandi forseti Íslands, var kjörinn í stjórn Kerecis í ágúst. Var Ólafur tilnefndur í stjórn af Laurene Powell Jobs. – hae Tekjur Kerecis verði um þrír milljarðar   200 sölumenn verða starfandi fyrir Kerecis í Bandaríkj- unum árið 2022, samkvæmt áætlunum. Kínverska f lug félagið Juneyao Air mun í lok mars hefja f lug milli Keflavíkur og Sjanghæ, með viðkomu í Hels­ inki. Þetta staðfestir Xu Xiang, forstöðumaður félagsins á Norður­ löndum. Flogið verður tvisvar í viku allt árið en áætlanir félagsins gera ráð fyrir að um 20 þúsund farþegar verði f luttir til landsins á næsta ári. Xu segir að Juneyao Air hafi verið að byggja upp sterkar tengingar við Evrópu. Félagið vinni nú þegar náið með Finnair en vilji sé til þess að auka umsvifin á Norðurlöndum. Þá hafi félagið fundið fyrir miklum áhuga kínverskra ferðalanga á Íslandi. Þess vegna séu mikil tæki­ færi fólgin í f lugi til Íslands. „Í dag eru að koma til Íslands um 100 þúsund kínverskir farþegar. Við áætlum að um 20 þúsund farþegar á okkar vegum komi til landsins á næsta ári. Við viljum verða fyrstir til að bjóða upp á beint flug milli land­ anna. Eftir það gerum við ráð fyrir 10 prósenta árlegri aukningu,“ segir Xu. Aðspurður segir Xu að Juneyao sé ekki lággjaldaflugfélag. „Við bjóðum fulla þjónustu og erum fjögurra stjörnu flugfélag. Í leiðakerfi okkar eru um 160 f lugleiðir sem tengja stærstu borgir Kína við nágranna­ ríkin. Á síðasta ári f luttum við yfir 18 milljónir farþega,“ segir Xu. Félagið, sem var stofnað 2006, rekur nú um 72 vélar en f lotinn samanstendur af Airbus A320 og Boeing 787 Dreamliner vélum. Xeng Dewei, sem mun stýra starf­ semi Juneyao Air á Íslandi, segist vona að Íslendingar verði meðal viðskiptavina og heimsæki Kína á næsta ári. „Það er okkur mikilvægt. Flugið frá Íslandi til Kína er langt og við erum flugfélag sem býður fulla þjónustu.“ Flogið verður með Boeing 787 Dreamliner vélum en í boði verða sæti í almennu farrými og við­ skiptafarrými. Verð á f lugi fram og til baka á almennu farrými verður frá 500 evrum, sem jafngildir um 68 þúsund krónum. Sæti í viðskiptafar­ rými munu kosta frá 1.500 evrum, eða um 204 þúsund krónur. Fréttablaðið greindi fyrst frá áformum kínverska félagsins í október. Félagið er nú í miklum vexti á Evrópumarkaði en tilkynnt hefur verið um flug milli Sjanghæ og Manchester sem verður þrisvar í viku og hefst á sama tíma og flugið til Kef lavíkur. Þá mun skömmu síðar hefjast beint f lug milli Sjang­ hæ og Aþenu. Juneyao Air rekur einnig lág­ gjaldaf lugfélagið 9 Air sem f lýgur frá alþjóðaf lugvellinum í Guang­ zhou. Aðspurður segist Xu ekki hafa áhyggjur af þessum mikla vexti félagsins og hvort hann sé sjálf bær. Félagið sé með sterkar fjárhagslegar rætur í Sjanghæ. Móður félag Juneyao Air er JuneYao Co Ltd. sem var stofnað árið 1991. Það er sagt vera eitt af hundrað stærstu einkafyrirtækjum Kína. Starfsemin nær til ólíkra sviða en auk flugreksturs sinnir félagið meðal annars fjármálaþjónustu, fræðslu­ þjónustu og vísindarannsóknum. Starfsmenn eru meira en 18 þúsund talsins. Um síðustu helgi var tilkynnt að Juneyao væri orðið þriðji stærsti eigandi China Eastern Airlines, með um tíu prósenta hlut. Móðurfélag þess er að meirihluta í eigu kínverska ríkisins en afgangurinn er skráður í alþjóðlegum kauphöllum. Xeng Dewei var spurður nánar út í áætlanir flugfélagsins fyrir Ísland og hvort það sjái Keflavík fyrir sér sem tengistöð til dæmis við austurströnd Bandaríkjanna. „Keflavík er áhuga­ verð stöð fyrir tengiflug. Við eigum eftir að þróa þessar tengingar en áhugi okkar er til staðar,“ segir hann. En hafið þið leitað eftir samvinnu við íslensk félög? „Við munum deila f lugnúmerum með Finnair til Sjanghæ. Finnair er einnig með sama fyrirkomulag með Icelandair. Við eigum í viðræðum við Icelandair um mögulega svipaða samvinnu. En það er þó ekki víst að af því verði,“ segir Xu Xiang. En hvað með önnur íslensk félög? „Við sjá mikinn framtíðarvöxt í ferðaþjónustu á Íslandi. Við erum rétt byrjaðir að safna upplýsingum um íslenska ferðaþjónustuaðila og hyggj­ umst eiga viðræður við þá á næstu vikum og mánuðum. Hafi íslensk félög áhuga á samstarfi þá ættu þau að hafa samband,“ segir hann. Upplýsingar á kínversku En hvernig geta Íslendingar undir- búið komu f leiri kínverskra ferða- manna og boðið f leiri Kínverja vel- komna hér? „Það er til að mynda hægt að bjóða upp á meiri upplýsingar á kínversku, svo sem með kínversku ritmáli á Kef lavíkurf lugvelli og hugsanlega á f leiri stöðum,“ segir Xeng Dewei. Hann nefnir til að mynda upplýsingar í sundlaugum eða matseðla á veitingastöðum. Hann segir að Finnar hafi undir­ búið þetta nokkuð vel. Meira sé af upplýsingum á kínversku í Helsinki, til að mynda á flugvellinum. Xu Xiang vill lítið gefa út á mögu­ lega samkeppni við önnur kínversk flugfélög og segist lítið kannast við slík áform. Munuð þið opna skrifstofu hér í Reykjavík? „Já, við stefnum á að opna skrif­ stofu hér í ársbyrjun, ráða starfs­ menn og Xeng Dewei mun leiða það starf.“ Öll tilskilin leyfi í húsi Loftferðasamningar milli ríkja kveða á um að f lugfélög njóti til­ nefningar frá viðkomandi stjórn­ valdi. Juneyao Air hefur loks fengið slíka tilnefningu frá kínverskum stjórnvöldum og því er ekkert að vanbúnaði. Xu Xiang staðfestir að félagið hafi lokið samningum við Isavia á Keflavíkurflugvelli sem og samningum við samgöngustofu. Þótt f lug Juneyao frá Sjanghæ sé með viðkomu í Helsinki telst það utan Schengen­svæðisins við kom­ una til Keflavíkur. Áhugi fleiri flugfélaga Fréttablaðið greindi frá því 25. októ­ ber síðastliðinn að fjögur kínversk f lugfélög væru að íhuga f lug til Íslands á næsta ári. Auk Juneyao skoða Air China og Beijing Capital Airlines f lug til Íslands. Ríkisf lug­ félagið Air China er langstærsta f lugfélag Kína og eitt stærsta f lug­ félag heims. Beijing Capital er mun minna flugfélag en í eigu flugrisans Hainan Airlines. Meiri líkur eru taldar á f lugi Air China. Það f lug yrði þá frá höfuðborginni Peking til Íslands um Kaupmannahöfn. Fjórða f lugfélagið sem hefur skoðað f lug til Íslands er Tinajin Airlines og hefur það þegar sótt um þrjá afgreiðslutíma í viku hverri á Keflavíkurflugvelli. Þar var gert ráð fyrir f lugi frá Wuhan til Helsinki og þaðan til Íslands. Þeim áformum hefur nú verið seinkað. Ef af verður er líklegt að félagið fljúgi frá Wuhan­ borg til Keflavíkur í gegnum Brussel í Belgíu. Flug milli Kína og Keflavíkur hefst í vor Fyrsta flug kínverska flugfélagsins Juneyao Air frá Sjanghæ til Íslands með viðkomu í Helsinki verður 31. mars næstkomandi. Flogið verður hingað tvisvar í viku út árið. Félagið áætlar 20 þúsund farþega á næsta ári. Miðaverð báðar leiðir er frá 68 þúsund krónum. Davíð Stefánsson david@frettabladid.is Xu Xiang, for- stöðumaður Juneyao Air í Finnlandi. Xeng Dewei, forstöðumaður Juneyao Air á Íslandi. Kvika banki fest kaup á hug­búnaðarlausn íslenska fjár­tæknifyrirtækisins Lucinity í því skyni að styrkja varnir bankans gegn peningaþvætti og auka skil­ virkni. Lausnin er nýstárlegt varn­ arkerfi sem byggir á hjálpargeind og tryggir skilvirkari afgreiðslu pen­ ingaþvættismála ásamt því að lág­ marka villuhættu. Hjálpargreindin gerir það einnig að verkum að kerfið lærir stöðugt og styrkist enn frekar með tímanum. „Við stöndum í þeirri trú að lausn Lucinity muni styrkja varnir Kviku gegn peningaþvætti umtalsvert og leika lykilhlutverk í áhættumið­ uðu eftirliti í samræmi við nýjar lagakröfur. Um leið mun sjálf­ virkni lausnarinnar auka skilvirkni mikið, án þess að slaka á kröfum,“ segir Daníel Pálmason, regluvörður Kviku banka. Guðmundur Kristjánsson stofn­ aði Lucinity á síðasta ári eftir að hafa unnið sem yfirmaður sam­ skiptaeftirlits og gervigreindar hjá fjármálarisanum Citigroup. Í sumar var greint frá því að Lucinity hefði safnað sprotafjármagni fyrir tvær milljónir dollara. – þfh Kvika banki eflir varnir gegn peningaþvætti Við lítum á kaup Kviku á lausn okkar sem skýr merki þess að bankinn ætli sér að vera í fararbroddi varna gegn peninga- þvætti. Guðmundur Krist- jánsson, framkvæmda- stjóri Lucinity 2 7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN 2 7 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 5 7 -D 8 9 4 2 4 5 7 -D 7 5 8 2 4 5 7 -D 6 1 C 2 4 5 7 -D 4 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 2 6 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.