Fréttablaðið - 27.11.2019, Side 40
Fyrir mér er Ísland
land tækifæranna.
Mér finnst að fólk eigi að
láta drauma sína rætast.
Það á að sjálfsögðu við um
Ragnar Þór eins og aðra
Íslendinga.
Halldór Benjamín Þorbergs-
son, framkvæmdastjóri SA
26.11.2019
MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is
Miðvikudagur 27. nóvember 2019FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL |
Þorsteinn Friðrik
Halldórsson
SKOÐUN
Breska apótekakeðjan LloydsPharm acy hefur keypt hugbúnað frá LS Retail sem er sniðinn að rekstri apóteka.
Í keðjunni eru 1.600 apótek en andvirði
samningsins , sem er til fimm ára, fyrir LS
Retail nemur um tveimur milljörðum.
Magnús Norddahl, forstjóri LS Retail,
segir um heildarlausn að ræða sem veiti
fyrirtækjum upplýsingar um hvernig megi
straumlínulaga reksturinn og hjálpi til við að
þjónusta viðskiptavini með persónulegum hætti.
LloydsPharmacy er í eigu lyfja- og heil-
brigðisfyrirtækisins McKesson UK. Það
rekur að auki apótekin Careway og John
Bell & Croyden í Bretlandi. LS Retail hefur
áður unnið með móðurfélaginu í Skand-
inavíu. Hugbúnaðarlausn LS Retail er nýtt í
320 apótekum NMD (Norsk Medisinalde-
pot AS) í Noregi og í 70 apótekum Lloyd-
sApotek í Svíþjóð.
LS Retail var rekið með 5,3 milljóna evra hagn-
aði í fyrra og veltan nam 50 milljónum evra. – hvj
Milljarða samningur við LloydsPharmacy
Magnús
Norddahl.
PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is
PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar,
endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar
viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn.
Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur | Vestmannaeyjar
2019
Verðmæti
Hafðu samband því þinn árangur er mikils virði.
Hámarkaðu árangurinn þinn og verðmæti með
því að nýta þér fjölbreytta þekkingu og víðtæka
reynslu PwC á öllum sviðum rekstrar.
Atvinnulífið er næmt fyrir nýjum
hugmyndum og hugtökum rétt eins
og önnur svið samfélagsins. Þær
fara eins og eldur um sinu og orð-
ræðan tekur skyndilegum breyting-
um. Sumar hverfa á braut en aðrar
taka sér bólfestu og ryðja burt eldri
viðhorfum. Hin svonefnda fjórða
iðnbylting varð tilefni margra
morgunfunda og greinaskrifa í
ár eða tvö. Eitthvað hefur þeim
fækkað á síðustu mánuðum en svo
virðist sem heimsmarkmið Sam-
einuðu þjóðanna hafi fyllt tómið.
Íslandsbanki tók nýverið upp
fjögur heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna og hefur í kjölfarið hafið
innleiðingu á ýmsum aðgerðum
sem eiga að tryggja að bankinn fylgi
þessum markmiðum. Þær aðgerðir
sem eiga að snúa að fjölmiðlum ollu
miklu fjaðrafoki eins og kunnugt er.
Landsbankinn hefur einnig skrifað
undir viðmið sem ætlað er að tengja
starfsemi bankans við heimsmark-
miðin. Báðir bankarnir þurfa að
glíma við minnkandi arðsemi.
Icelandair greindi síðan nýlega frá
því að stjórnendur flugfélagsins
hefðu valið fjögur heimsmark-
mið til grundvallar stefnunni og
jafnrétti kynjanna er eitt þeirra.
Icelandair stefnir að því að fjölga
konum í stétt flugvirkja og körlum
í stétt flugþjóna. Flugfélagið ætlar
jafnframt að tryggja jöfn kynjahlut-
föll í stjórnendastöðum. Markmið
flugfélagsins snýst um að vera með
blönduð teymi og taka ákvarðanir
með fjölbreyttum hóp til að ná sem
bestum árangri. Aðgerðir sem miða
að því að auka fjölbreytni en byggja
á einföldu viðmiði geta hins vegar
verkað í þveröfuga átt. Það sást í
nýlegu stjórnarkjöri Símans þar
sem útlendingur þurfti að víkja úr
stjórn til að jafna kynjahlutföllin.
Ef Icelandair ber einhvers konar
samfélagsábyrgð hlýtur hún fyrst
og fremst að felast í því að tryggja
rekstrargrundvöll félagsins. MAX-
vélarnar eru enn kyrrsettar og
launakostnaðurinn er enn of hár.
Oft er það svo að framfarir eiga
sér stað án miðstýringar og án þess
að alþjóðleg viðmið liggi að baki.
Nærtækasta dæmið er íslenskur
sjávarútvegur sem hefur minnkað
losun kolefnis meira en allar aðrar
atvinnugreinar og er í raun eina
atvinnugreinin á Íslandi sem hefur
náð markmiðum Parísarsam-
komulagsins fyrir sitt leyti. Þetta er
afleiðing gríðarlegrar fjárfestingar í
tækjabúnaði. Engin heimsmarkmið
þurfti til, hagnaðarsjónarmiðin
dugðu.
Stjórnarfundum hjá fjármála-
fyrirtæki var hins vegar lýst þannig
að meirihluti tímans hefði farið í
umræðu um algjörlega ófjárhags-
lega þætti. Minni tími gafst til að
ræða þær miklu áskoranir í rekstr-
inum sem fyrirtækið stóð frammi
fyrir. Þessi þróun hlýtur að vera
umhugsunarefni.
Hrifnæmt
atvinnulíf
2
7
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
5
7
-B
1
1
4
2
4
5
7
-A
F
D
8
2
4
5
7
-A
E
9
C
2
4
5
7
-A
D
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K