Fréttablaðið - 27.11.2019, Blaðsíða 41
HANDBOLTI „Ég sofnaði í kringum
miðnætti, bara eins og venjulega.
Kannski aðeins seinna en ekkert
meira en það,“ segir Sturla Ásgeirs-
son, leikmaður ÍR, en hann jafnaði
metin fyrir ÍR gegn toppliði Hauka
með marki úr vítakasti f imm
sekúndum fyrir leikslok. Sturla
starfar sem byggingafræðingur hjá
Arkþingi og var mættur til vinnu
venju samkvæmt í gær, eldsnemma
í svartamyrkri. „Ég er búinn að vera
svo lengi í þessu að maður nær að
ná sér niður eftir svona leiki,“ en
viðureignin gæti alveg f lokkast
undir háspennuleik enda endaði
hún 30-30.
„Fyrirfram hefði ég alveg þegið
stig úr þessum leik en við höfðum
tækifæri til að ná góðri forystu
þegar nokkrar mínútur voru eftir.
Þá hefðum við alveg getað klárað
leikinn. En við jöfnum í lokin og stig
er kannski ásættanlegt.“
Sturla hefur stáltaugar og hefur
oftar en ekki stigið á vítapunktinn
eða tekið mikilvæg lokaskot. Hann
segir að hann finni lítið fyrir pressu
eða kvíða áður en kemur að stórum
skotum. „Það þarf bara að setja
boltann í netið. Ég hef verið nokkr-
um sinnum í þessari stöðu áður og
kann ágætlega við mig. Finnst þetta
skemmtilegt og þessu fylgir miklu
meiri tilhlökkun en stress og kvíði.
Það er ekkert svoleiðis. Þetta er við-
ureign gegn markverðinum og hann
er að reyna að verja en ég að reyna
að skora. Þetta er einvígi og yfirleitt
mjög skemmtilegt.“
Heil umferð er búin í Olísdeild
karla og segir Sturla að deildin sé
skemmtileg og jöfn. Lítið dugi að
mæta værukær í leikina gegn liðum
sem eru í neðri hlutanum. „Maður
sér alveg fyrir sér að Valur, ÍBV og FH
nái sér betur á strik og það er spurn-
ing á kostnað hvers það verður. En
við erum brattir og ánægðir með
það sem við höfum gert og stefnum
að því að halda því auðvitað áfram –
við spyrjum að leikslokum.“
Tilhlökkun en enginn kvíði
Sturla hefur skorað 66 mörk í deildinni það sem af er og er búinn að vera
frábær í horninu – rétt eins og venjulega. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Sturla segist hugsa vel um sig.
Hann fær að stjórna æfingaálaginu
og þótt hann sé ekki í gallanum er
hann í íþróttahúsinu á æfingum
enda aðstoðarþjálfari. „Ég spila
þetta eftir eyranu þannig að ef ég
er eitthvað lemstraður þá hægi
ég á. Bjarni, þjálfari, leyfir mér
að spila þetta eftir mínu höfði.
Ég er ekkert að fara að hlaupa hraðar
eða hoppa hærra úr þessu. Það
skiptir líka máli að vera góður í koll-
inum. Ekki að vera búinn að gera út
af við sig á andlega sviðinu.“ – bb
Stress og kvíði. Það
er ekkert svoleiðis.
Þetta er viðureign gegn
markverðinum og hann er
að reyna að verja en ég að
reyna að skora. Þetta er
einvígi og yfirleitt mjög
skemmtilegt.
Reykjavík • Mörkin 3 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
Mánudag til
Laugardags
Opnunartímar
10:00 - 18:00
BLACK FRIDAY!
Af fart
ölvum
Allt að
50.000
Afslátt
ur
25.-30. nóvember
Af yfir
1000
vörum
90%
Afslátt
ur
Allt að
4,98% lán
tökugjald
og 995 kr.
jólareiknin
gsgjald
Aðeins 50 stk1 stk á mann!
70%Afsláttur
LED
LEIKJASE
TT
Leikjalyk
laborð og
6
hnappa l
eikjamús
TILBOÐ DAGSINS
Gildir aðeins miðvikudag
2.997
VERÐ ÁÐUR 9.990
Á VERÐI
FRÁ
29.994
SONY
PS4
27. nóvem
ber 2019 • B
lack Friday tilboð gilda 25-30. nóvem
ber eða m
eðan birgðir endast. B
irt m
eð fyrirvara um
breytingar, innsláttarvillur og m
yndabrengl
FÓTBOLTI Evrópumeistarar Liver-
pool eiga 10 leikmenn sem eru til-
nefndir í lið ársins sem lesendur
UEFA.com munu velja. Alls eru 50
leikmenn valdir, átta koma frá Ajax
og sjö frá Manchester City. Ronaldo
er að sjálfsögðu á sínum stað en hann
hefur verið tilnefndur í 16 skipti í
röð. Hann hefur verið í liði ársins
13 sinnum, sem er met. Lionel Messi
er á listanum í 14. skipti en hann
hefur verið í liði ársins tíu sinnum
og Sergio Ramos fær sína áttundu
tilnefningu. Flestir leikmenn koma
frá enskum liðum eða helmingur en
aðeins fjórir eru enskir leikmenn.
Enginn enskur leikmaður hefur
komist í lið ársins frá UEFA síðan
Ashley Cole gerði það árið 2010. Alls
eru leikmenn frá 21 þjóð, flestir frá
Spáni eða sjö en sex Hollendingar
komast á listann. Andy
Robertson, vinstri bak-
vörður Liverpool, kemst
á listann en enginn Skoti
hefur áður látið sjá sig á
þessum lista. Meðal-
aldur leikmanna er
27,18 ár en Frakkinn
Kylian Mbappé er sá
yngsti og Ronaldo
er sá elsti. Kosningu
lýkur 9. janúar. – bb
10 frá Liverpool
Sadio Mane, leik-
maður Liverpool.
Mo Salah er að sjálfsögðu á listan-
um ásamt meistara Bobby Firmino.
S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17M I Ð V I K U D A G U R 2 7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9
2
7
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
5
7
-A
2
4
4
2
4
5
7
-A
1
0
8
2
4
5
7
-9
F
C
C
2
4
5
7
-9
E
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K