Fréttablaðið - 28.11.2019, Side 10
BANDARÍKIN Ralph Northam, ríkis-
stjóri Virginíufylkis, úrskurðaði á
mánudag að fyrrverandi elskendur,
Elizabeth Haysom og Jens Söring,
yrðu látin laus úr fangelsi og vísað
til sinna heimalanda. Þau voru hins
vegar ekki náðuð fyrir morðin á for-
eldrum Haysom sem þau frömdu
árið 1985.
Málið vakti mikla athygli þegar
það kom upp á sínum tíma, en þau
voru þá nemendur við Virginíuhá-
skóla. Haysom var 20 ára og Soering
aðeins 18.
Haysom er nú 55 ára gömul. Hún er
kanadískur ríkisborgari, fædd í borg-
inni Salisbury í Ródesíu, nú Harare
í Simbabve. Söring, 53 ára, er sonur
þýsks ríkiserindreka og fæddur í
Bangkok í Taílandi. Þau kynntust í
skólanum og urðu ástfangin.
Þann 3. apríl árið 1985 fundust
foreldrar Haysom, stálmógúllinn
Derek og stjúpmóðirin og listamað-
urinn Nancy, látin á heimili sínu í
bænum Boonsboro í vesturhluta
Virginíu. Þau höfðu verið stungin og
skorin með eggvopni margítrekað.
Líkin voru illa útleikin, nánast
af höfðuð, og fundust ekki fyrr en
nokkrum dögum eftir morðin. Sör-
ing og Haysom voru þá í Washing-
ton og lágu ekki undir grun.
Hálfu ári eftir morðin ferðuðust
Haysom og Söring til London og
voru þar handtekin fyrir ávísana-
fölsun. Skyndilega fór lögregluna að
gruna að ekki væri allt með felldu og
morðrannsóknin beindist að þeim.
Haysom játaði strax aðild að
morðinu en sagði að Söring hefði
framið verknaðinn. Hlaut hún 90
ára fangelsisdóm. Söring háði bar-
áttu gegn framsali en að lokum var
réttað yfir honum í Virginíu árið
1990. Var það eftir að ríkisstjóri
hafði heitið því að ekki yrði krafist
dauðarefsingar yfir honum. Var
hann loks fundinn sekur og dæmdur
í lífstíðarfangelsi.
Ýmsar ástæður hafa verið tíund-
aðar fyrir morðunum. Foreldrum
Haysom líkaði aldrei vel við Söring,
Haysom sjálfri mislíkaði framkoma
stjúpmóður sinnar gagnvart sér og
taldi að foreldrar hennar væru of
stjórnsamir. Saman espuðu Haysom
og Söring hvort annað upp í reiði.
Haysom og Söring hafa bæði
hagað sér vel í fangavistinni en
engu að síður gat reynslulausnar-
nefnd ekki fallist á náðun og mælti
ekki með henni. Eftir að þeim hefur
verið vísað til heimalanda sinna
munu þau ekki fá að stíga á banda-
ríska grundu framar.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Morðhjúum sleppt úr haldi og
þau send til heimalanda sinna
Elisabeth Haysom játaði aðild sína að morðunum á foreldrunum hennar en sagði Jens Söring hafa framið ódæðið.
Fyrrverandi elskend-
um, Elizabeth Haysom
og Jens Söring, hefur
verið sleppt úr fangelsi
í Virginíufylki. Saman
myrtu þau foreldra
Haysom árið 1985. Bæði
hafa þau erlent ríkis-
fang og verður vísað til
heimalanda sinna.
Elizabeth Haysom hlaut
90 ára fangelsi og Jens
Söring lífstíðardóm.
Gerðu þína eiginþakkargjörð
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Sjá allt fyrir
þakkargjörðar
veisluna á
kronan.is/
takk
RÚSSL AND Tæk nirisinn Apple
hefur orðið við kröfum Rússa og
sýnir nú Krímskaga sem rúss-
neskt landsvæði á kortum í Apple-
tækjum þegar þau eru notuð í
Rússlandi. Sama gildir um smá-
forrit Apple sem sýna veðurspá.
Krímskagi er sýndur sem hlutlaust
svæði þegar kort Apple og veður-
forrit eru notuð á öðrum stöðum
í heiminum.
Apple hafði upphaflega í hyggju
að í tækjum sínum tilheyrði svæðið
hvorki Úkraínu né Rússland en lét
undan Rússum er Vasilí Piskarjov,
formaður varnar- og spillingar-
nefndar svæðisins, sagði að ef Apple
segði svæðið hlutlaust bryti það
gegn stjórnarskrá Rússlands. – bdj
Apple lætur
Rússum eftir
Krímskagann
DÓMSMÁL Mál Guðmundar Sparta-
kusar Ómarssonar gegn blaða-
manninum Atla Má Gylfasyni var
flutt í Hæstarétti í gærmorgun. Atli
Már var dæmdur í Landsrétti í mars
síðastliðnum til að greiða Guðmundi
Spartakusi 1,2 milljónir í miska-
bætur og 2,4 milljónir í málskostnað.
Málið snýst um grein sem Atli
Már, sem starfar nú á DV, skrifaði í
Stundina árið 2016 um hvarf Frið-
riks Kristjánssonar í Paragvæ árið
2013. Í dómi Landsréttar sagði að Atli
Már hefði sakað Guðmund Sparta-
kus um svívirðilegan glæp. Voru 23
ummæli dæmd ómerk.
Fram kom í málflutningi Vilhjálms
H. Vilhjálmssonar, lögmanns Guð-
mundar, að Guðmundur hefði aldrei
hitt Friðrik og hefði ekkert með hvarf
hans að gera. Gunnar Atli Jóhanns-
son, lögmaður Atla, var á öðru máli.
„Það kom svo sem ekkert nýtt fram
í þessu máli en minn umbjóðandi
hefur alltaf verið að glíma við það
að hann skilur ekkert af hverju þessi
maður er að höfða þetta mál gegn
sér,“ segir Gunnar. – ab
Mál Atla Más
fyrir Hæstarétti
Atli Már
Gylfason
blaðamaður.
NAMIBÍA Gengið var til kosninga
í Namibíu í gær þar sem bæði var
kosið til þings og um nýjan forseta.
Swapo-f lokkurinn hefur verið
við völd í Namibíu síðan árið 1990
en meint spillingarmál tengd
íslenska útgerðarfyrirtækinu Sam-
herja og óánægja íbúa landsins
setja svip sinn á kosningarnar og
eru talin geta haft áhrif á niður-
stöðurnar.
Kosningarnar gengu ekki snurðu-
laust fyrir sig og myndaðist löng
röð víða á kjörstöðum sem varð til
þess að margir þurftu að bíða lengi
eftir að fá að greiða atkvæði. Einnig
komu upp tæknileg vandamál með
vélar sem notaðar voru við kosning-
arnar. Bæði voru dæmi um bilaðar
vélar og vélar sem gáfu frá sér hljóð
sem gaf til kynna að verið væri að
skila atkvæði þrátt fyrir að það væri
ekki raunin.
Þetta er í annað skipti sem slíkar
vélar eru notaðar í kosningum í
Namibíu en þær voru einnig not-
aðar í kosningum árið 2014. Í þeim
kosningum hlaut Swapo-flokkur-
inn 80 prósent atkvæða og forsetinn
Hage Geingob 87 prósent atkvæða.
Niðurstöður lágu ekki fyrir er
Fréttablaðið fór í prentun. – bdj
Kosningar í Namibíu í gær í skugga Samherjamálsins
2 8 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:0
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
5
C
-0
4
5
0
2
4
5
C
-0
3
1
4
2
4
5
C
-0
1
D
8
2
4
5
C
-0
0
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
7
2
s
_
2
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K