Fréttablaðið - 28.11.2019, Page 16
Hægt að gera hvar sem er
Bókin er fallega myndskreytt teikn-
ingum eftir Auði Ýri Elísabetar-
dóttur þannig að börnin geta líka
sjálf f lett bókinni og valið hvað þau
vilja gera þann daginn. Allar hug-
myndirnar er hægt að framkvæma
hvort sem fjölskyldan er í Þórshöfn,
Ósló, Boston eða á Vopnafirði, að
sögn Sabínu.
Sabína segir skemmtilegra að
vera úti með barni sem gengur illa
að virkja ef það eigi hugmyndina
sjálft. Hún hefur haldið fjölmarga
fyrirlestra fyrir foreldrafélög og
í leikskólum og hafði því orðið
áþreifanlega vör við að foreldra
vantaði hugmyndir að einhverju til
að gera með börnum sínum úti við,
til dæmis í vetrarfríinu. „Fólki dett-
ur oft bara í hug að fara í trampólín-
garð, Smáralind eða Kringluna, sem
eru allt tilbúnar aðstæður,“ segir
hún.
Veðrið ekki hindrun
„Það er ekkert sem heitir vont veður
heldur er þetta spurning um að vera
klæddur eftir veðri. Það að fara út í
vont veður hefur líka jákvæð áhrif,“
segir hún og bendir á að það æfi
kvið og bak hjá börnum að standa af
sér vindinn. „Þarna fá börn tækifæri
til að þjálfa sína miðju,“ segir hún.
„Hreyfing er ekki að eiga kort í
líkamsræktarstöð og leggja sem
næst stöðinni svo þú getir hlaupið
inn í fínu spandexfötunum þínum.
Hreyf ing er allt það sem við
gerum frá morgni til kvölds.“
Hún notar orðið útivera oftar en
ekki í stað útivistar því það sé orðið
gildishlaðið orð í dag, þegar enginn
er maður með mönnum nema hann
eða hún gerist landvættur eða fari
langar leiðir á gönguskíðum.
„Mig langar miklu frekar að vera
fyrirmynd að því leyti að fara út
daglega í allt veður og barnið mitt
fái að njóta gæðastunda með mér
úti í náttúrunni frekar en að ég setji
það í pössun af því að ég þurfi að
fara á gönguskíðaæfinguna mína,“
segir Sabína.
„Útivera er að opna dyrnar heima
hjá þér og fara út. Það mæta þér
ævintýri ef þú ert opinn fyrir þeim.“
Sjálf hefur hún kennt útikennslu
og rifjar upp eitt skipti þegar hún
fór út með börn með það að mark-
miði að kenna þeim að hoppa. Þá
hafi fugl f logið hjá og skemmtilegar
samræður spunnist út frá því hvort
þetta hafi verið haförn eða ekki.
„Þarna gefast mörg tækifæri til að
vinna með vitsmunaþroskann. Þú
færð líka tækifæri til að vinna með
frásagnarhæf ileika, sköpun og
ímyndunaraflið.“
Framtíðin er í náttúrunni
Hún heldur mikið upp á
bækur eftir Richard Louv, til
að mynda Vitamin N. „Hann
vill meina að við séum búin
að mynda með okkur ákveðið
náttúruónæmi. Vð séum búin
að tapa færninni, börn þekki
ekki nóg úr jurta- og steina-
ríkinu eða örnefni í kringum
sig,“ segir hún.
„Við getum öll verið sam-
Teitur Guðmundsson
læknir
Hlauptu, drengur, hlauptu!
Látið ævintýrin gerast
Sabína var fús til að deila hugmyndum úr nýju bókinni sinni að útiveru með fjölskyldunni. Í bókinni er ekki tilgreint við hverja hugmynd hvað verið er að þjálfa. Hún segir að það sé hægt
að treysta því að það sé verið að hafa jákvæð áhrif á heilsu barnsins til æviloka. Hún útskýrir hins vegar hér fyrir Fréttablaðinu hvað verið er að vinna með hverju sinni.
Næturbrölt
Áhöld: Vasaljós, eitt eða fleiri, og
jafnvel bók.
Hvenær: Skemmtilegast þegar
það er farið að dimma, hvort sem
er snemma að morgni eða seint á
daginn.
Hvernig: Mikilvægast er að
eiga vasaljós og rafhlöður fyrir
gönguna. Vasaljósagöngu þarf
ekki að skipuleggja heldur er best
að leyfa ævintýrunum að gerast.
Skemmtilegt að hafa fleiri en eitt
vasaljós meðferðis.
Tillögur:
n Skiptist á að hafa vasaljós og
leiða gönguna.
n Feluleikur – felið ykkur á ein-
hverjum stað en blikkið ljósinu
við og við.
n Einn í einu vísar veginn og
stjórnar þrautakóng.
n Leggist á góðan stað og segið
sögu.
n Hafið bók meðferðis og lesið á
góðum stað.
n Útbúið dulmál með vasaljósinu,
eitt blikk táknar til dæmis hæ,
eða tvö blikk tákna komdu.
n Þykist vera leynilögregla og
læðist um, reynið að komast
óséð frá A til B.
„Í næturbrölti getið þið farið í
þrautakóng og fengið barnið til að
hoppa, stökkva, kasta, grípa og
fleira. Einn í einu vísar þá veginn
með vasaljós og stjórnar ferðinni.
Þegar einn í einu leiðir gönguna
með vasaljós þurfa allir að vinna
með sjónina því undirlag kann að
vera mismunandi og þá þarf sam-
hæfingu augna og fóta.
Næturbröltshugmyndin hefur
áhrif á allan skynþroskann þar sem
þið eruð að snerta á alls konar hlut-
um, nýtið sjónina, jafnvægisskynið
fær ögrun, rúmskynið umtalsvert
líka og vöðva- og liðamótaskynið,
þar sem þið þurfið að aðlagast
undirlagi og fleira.
Síðast en ekki síst er það gæða-
stundin sem hefur áhrif á andlega
og félagslega heilsu. Leggjast á
góðan stað, segja sögu og/eða lesa
bók við vasaljós úti í náttúrunni.“
Plús plús mínus
Áhöld: Vasareiknir, einn eða fleiri.
Hvernig: Þið getið farið af stað
með fyrirfram ákveðin verkefni
í huga eða látið hugmyndaflugið
ráða hvað þið viljið kanna og
hvernig.
Tillögur
n Reiknið út fjölda glugga, ljósa-
staura, hellna, flaggstanga eða
annars sem ykkur langar að telja
en það ræðst af því umhverfi
sem þið eruð í hverju sinni.
n Hoppið frá stað A til staðar
B, skráið hoppin hjá ykkur og
endurtakið nokkrum sinnum.
n Gerið 100 hreystiæfingar og
skráið eftir hverja lotu fjöldann
sem þið gerið og þannig draga
frá 100 eða bæta við frá 0 og
upp í 100.
n Gerið ákveðinn fjölda af
hreystiæfingum saman og
skráið hjá ykkur.
n Safnið saman efniviði og skráið
með aðstoð vasareiknisins. T.d.
10 könglar, 14 steinar, 23 lauf-
blöð og fleira spennandi.
n Hafið stílabók og blýant með-
ferðis til að skrá efniviðinn og
reikna.
n Byrjið að vinna með mínus,
margföldun og deilingu.
„Þarna eru allar grunnhreyfingar
barna örvaðar á einn eða annan
máta þar sem þið eruð á ferð um
umhverfi ykkar og mætið alls
konar áskorunum þar sem barnið
þarf að hoppa, stökkva, ganga og
jafnvel kasta.
Sjónskynið er þjálfað þar sem
barnið er að skima eftir til dæmis
fjölda glugga, ljósastaura, hellna,
flaggstanga eða annars sem
barnið vill telja í umhverfi sínu.
Með því að hoppa frá A til B er verið
að vinna með eina af grunnhreyf-
ingunum.
Með því að skrá á vasareikninn
eruð þið farin að leggja inn stærð-
fræði eða vinna með vitsmuna-
þroska. Þegar safnað er saman
ólíkum efniviði er verið að vinna
með skynþroskann eins og snerti-
skyn, sjónskyn og lyktarskyn þegar
þið handfjatlið hlutina.”
mála um það að við þurfum að
ná meiri tengingu við náttúruna.
Núvitund er vinsæl núna en að
mínu viti erum við búin
að tapa hlutum sem við
áttum áður eins og að
staldra við og að vera ekki
alltaf í tilbúnum aðstæðum.
Það að fara út í náttúruna og
finna lykt og leggja við hlustir,
það er núvitund fyrir mér. Til að
kenna barni umhverfislæsi og til
dæmis hvernig við umgöngumst
rusl, þarf að fara út með barnið.
Hvað er bláklukka og hvað er
sóley? Það þarf að fá að tengjast
hlutunum til að bera meiri virðingu
fyrir þeim,“ segir Sabína.
„Framtíðin er í náttúrunni. Við
þurfum að fá f leira ungt fólk til að
mennta sig í hlutum sem tengjast
náttúrunni okkar og umhverfis-
vernd. Lítil börn þurfa að fá nátt-
úrukennslu, kennslu í náttúrufræði
líffræði og umhverfisfræði. Læknar
eru farnir að ávísa hreyfiseðlum,
ávísa hreyfingu fyrir þunglyndi,
kvíða og streitu. Útivera og nátt-
úran er alltaf lokasvarið. Það er full
þörf á því að hvetja til meiri útiveru
og útivistar,“ segir hún.
„Við viljum öll gæðatíma og við
viljum öll verja meiri tíma með
fjölskyldunni,“ segir Sabína en
orðavalið „verja“ er meðvitað. „Við
„eyðum“ tíma í Smáralind en við
„verjum“ tíma þegar við verjum
honum í eitthvað sem okkur þykir
vænt um og við viljum hlúa að og
rækta,“ segir hún.
„Tími er auðlind. Það vilja allir
meiri tíma. Í stóra samhenginu
verðum við að velta fyrir okkur
spurningunni: Hvar gerast gæða-
stundirnar?“
Hún segir að ef laust fyrir ein-
hverja gerist þær í trampólíngarði
en litlu hlutirnir geti verið ekki
síður eftirminnilegir. Það sitji
eftir að fara í „nestisferð, að labba
saman að sækja mjólk eftir vinnu,
fara í sund á föstudögum og svo
pitsukvöld. Börn muna frekar eftir
vasaljósagöngunni með mömmu
og pabba en þegar þau fóru í bíó að
sjá Pókemon. Því stærri sem gleði-
stundin verður og dýrari, þá þarftu
alltaf að toppa þig, gera meira og
stærra svo þetta verði frábært og
æðislegt.”
Kyrrsetan hættulegust
Sabína segir að hreyfifærni barna sé
ástríða hjá henni. „Það er svo gróið
í mig að fá f leiri í mitt lið, að finna
hvað það er gott að fara út. Fyrstu
sex árin í lífi barns skipta öllu
máli. Þú ert að skapa þeim grunn.
Við erum að byggja hús. Þú vilt að
grunnurinn sé sterkur því stoð-
kerfið á að halda okkur alla ævi.“
Það verður að gefa börnum tæki-
færi fyrir frjálsan leik og hreyfingu.
„Í lok dags er sófinn alltaf hættu-
legri en plástur. Kyrrsetan er alltaf
hættulegust. Við viljum fá börn í
meiri hreyfingu gegnumgangandi
yfir allan daginn. Ekki að þau æfi
einni íþrótt f leira heldur að það sé
minni kyrrseta og þau séu í virkni
allan daginn. Við þurfum að auka
hreyf ingu í athöfnum daglegs
lífs. Við erum sköpuð til að hreyfa
okkur.“
80% ungmenna á heimsvísu ná því ekki að hreyfa sig í klukkutíma á dag, eða 85% stúlkna og 78% drengja.
Mér er minnisstæð þessi bók sem ég las sem unglingur eftir höfundana Nicky Cruz
og James Buckingham þar sem fjallað
er um sanna sögu af táningsstráknum
Nicky á götum New York borgar sem
snýr af glæpabraut til betra lífs. Titill-
inn er stílfærður og vísar í f lótta
viðkomandi frá átökum, eitur-
lyfjafíkn og volæði.
Ég hef ekki lesið þessa
bók aftur en mér þótti
hún átakanleg og
ég man að mér
leið vel í kjölfar
lestrarins þar
sem aðalsögu-
hetjan hafði náð
tökum á lífinu.
Vafalaust hafa
margir lesið
bókina og sitt sýn-
ist hverjum, en það má að
vissu leyti heimfæra titilinn
á henni yfir á baráttuna
fyrir betri lífsstíl og bættri heilsu.
Það er nauðsynlegt að nýta hvert
tækifæri sem gefst til að minna á mikil-
vægi hreyfingar og þá staðreynd að það
er fátt mikilvægara en að koma fólki á
öllum aldri úr sófanum og fá það til að
reyna á hjarta, lungu og stoðkerfi. Það
skiptir ekki máli hvaða hreyfingu þú
velur þér svo lengi sem hún er reglu-
bundin. En gættu þess að fylgja leið-
beiningum og fara ekki of geyst af stað.
Vísindamenn hafa sýnt fram á
lækkun á tíðni hjarta- og æðasjúk-
dóma, lækkun blóðþrýstings, jákvæð
áhrif á andlega heilsu, þ.m.t. þunglyndi
og kvíða auk minnisskerðingar. Þá
hefur reglubundin hreyfing dregið úr
verkjum og bólgu hjá gigtarsjúklingum,
minnkað líkur á sykursýki, dregið úr
beinbrotum hjá konum eftir tíðahvörf
og svona mætti lengi telja. Það sem er
þó sennilega besti mælikvarðinn eru
lífsgæðin, en það hefur verið sýnt fram
á að þau eru verulega aukin hjá þeim
sem stunda reglubundna hreyfingu.
En ef þetta er svona einfalt af hverju
gengur okkur þá svona illa að fylgja
þessum einföldu leiðbeiningum?
Margir kenna tímaskorti um, aðrir
að þeim passi ekki að fara í ræktina, þá
eru alltaf einhverjir sem segjast ekki
eiga pening, listinn er endalaus hvað
snertir afsakanir fyrir hreyfingarleysi
einstaklingsins og satt best að segja eru
þær allar lélegar og við vitum betur.
Þeir sem koma til læknis eru oftsinnis
að leita að skyndilausnum á vanda
sínum sem eru auðvitað ekki til þegar
rótin er fólgin í lífsstíl viðkomandi.
Þess vegna voru til dæmis innleiddir
hreyfiseðlar á heilsugæslunni, þar
sem læknar geta ávísað hreyfingu sem
meðferð í stað lyfja, en slíkt hefur gefist
ágætlega.
Ég tel að rót vandans liggi að vissu
leyti í þeirri einstöku hæfni okkar
mannfólksins til að beita hinni svo-
kölluðu afneitun og plata sjálfan sig
upp úr skónum og upp í sófa. En það
koma að sjálfsögðu f leiri þættir til eins
og erfðir, reykingar, mataræði, streita
og sitthvað f leira sem hefur áhrif á
þróun sjúkdóma.
Hvað er þá til ráða og er yfirhöfuð
hægt að kenna gömlum hundi að sitja?
Áskorunin sem felst í því að bæta
lýðheilsu er að ná með góðri fræðslu á
mannamáli til einstaklinganna, vinna
markvissar með börnin okkar og
byggja upp einhvers konar hvatakerfi
í tengslum við hreyfingu. Hreyfingar-
leysi er líklega einn stærsti kostnaðar-
liðurinn í rekstri heilbrigðiskerfisins
en það er undirrót þeirra lífsstílssjúk-
dóma sem við þekkjum í dag. Því segi
ég: Ef þú getur hreyft þig á annað borð
þá hefur þú enga afsökun og það gildir
fyrir alla aldurshópa.
Með vísan í titilinn að ofan eru skila-
boðin einföld; hreyfðu þig, hreyfðu þig,
hreyfðu þig!
Framhald af síðu 14
TILVERAN
2 8 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R16 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:0
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
5
B
-D
7
E
0
2
4
5
B
-D
6
A
4
2
4
5
B
-D
5
6
8
2
4
5
B
-D
4
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
7
2
s
_
2
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K