Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.11.2019, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 28.11.2019, Qupperneq 26
Fjölmennt, símenntunar- og þekkingarmiðstöð hefur það hlutverk að sinna símenntun fullorðins fatlaðs fólks sem þarfnast sérstaks stuðnings í námi. Er þar einkum litið til fólks með þroska- hömlun, einhverfurófsraskanir og geðfötlun. Fjárhagur Fjölmenntar hefur verið erfiður mörg undanfarin ár vegna stöðugrar raunlækkunar fjárveitinga til miðstöðvarinnar af hendi ríkisins. Nú liggur fyrir áætlun ríkisins um að skerða fjárveitingar til Fjölmenntar um 15,1 milljón árið 2020 miðað við fjárveitingar 2019 samkvæmt fyrirliggjandi frumvarpi til fjárlaga. Íslenska ríkið hefur undirritað Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og fullgilt hann. Samningurinn kveður á um rétt fatlaðs fólks til menntunar á öllum skólastigum. Það er á ábyrgð stjórn- valda að tryggja að slík menntun sé í boði. Það er því óskiljanlegt að gert sé ráð fyrir lækkun framlaga til Fjölmenntar sem er nánast eina menntastofnunin sem sinnir námi fyrir þennan hóp. Ef af þessari fyrir- huguðu lækkun verður þýðir það niðurskurð á námstilboðum sem eru of fá fyrir. Vert er að benda á að þessum hópi bjóðast fá námstækifæri á vegum annarra menntastofnana í landinu. Menntavísindasvið HÍ tekur inn 15 nemendur annað hvert ár á diplóma- braut fyrir fólk með þroskahömlun. Við Myndlistaskólann í Reykjavík bjóðast nú sex pláss á heildstæðri braut fyrir þennan hóp. Annað námsframboð er nánast eingöngu á vegum Fjölmenntar sem undan- farin ár hefur mátt draga úr náms- tilboðum ár frá ári vegna stöðugs raunniðurskurðar af hálfu ríkisins. Að auki á þessi hópur oft erfitt með, fötlunar sinnar vegna, að nýta tóm- stundir sem í boði eru í þjóðfélaginu og atvinnutækifæri eru fá. Starfsemi Fjölmenntar er þessum hópi því afar mikilvæg og niðurskurður í starf- semi Fjölmenntar hefur mikil áhrif á lífsgæði nemenda. Niðurskurður á starfsemi Fjöl- menntar bitnar ekki síst á ungu fólki sem nýlokið hefur námi á starfs- brautum framhaldsskóla. Á síðasta ári var sett á laggirnar nefnd til að skoða náms- og atvinnutækifæri fyrir ungt fólk með þroskahömlun. Skipun nefndarinnar kom í kjöl- far mikillar umræðu um skort á náms- og atvinnutækifærum fyrir þennan hóp sem fram fór bæði í samfélaginu og á Alþingi. Umrædd nefnd lauk störfum sl. vor en skýrsla nefndarinnar hefur enn ekki verið gerð opinber og engar tillögur liggja fyrir um hvernig bæta megi stöðu þessa hóps. Niðurskurður á starf- semi Fjölmenntar rímar illa við umræðu um bætt námstækifæri fólks með þroskahömlun. Þvert á móti er ljóst að verði af fyrirhug- uðum niðurskurði sem boðaður er í frumvarpi til fjárlaga 2020 verður afleiðing þess enn frekari skerðing námsframboðs. Slík staða gengur þvert gegn þeim skuldbindingum sem stjórnvöld hafa tekið á sig með fullgildingu Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þvert á orð ráðamanna er öllum ljóst að fatlað fólk nýtur ekki jafnréttis til náms á Íslandi og fyrirhuguð áform um frekari skerðingar fjármagns auka enn fremur á það óréttlæti og mismunun sem fatlað fólk býr við af hendi ríkisins. Stjórn Fjölmenntar, símenntunar- og þekkingarmiðstöðvar skorar á ráðherra menntamála og alþingis- menn að endurskoða fyrirhugaðan niðurskurð á fjármagni til starfsemi Fjölmenntar og tryggja miðstöðinni nægilegt fjármagn til starfseminnar. Þá skorar stjórnin á sömu aðila að tryggja að fólk með þroskahömlun njóti fjölbreyttra tækifæra til mennt- unar í samræmi við alþjóðlega mannréttindasáttmála og þá mögu- leika sem ófatlað fólk nýtur. Jafnrétti til náms – er það svo? Lífey rissjóður star fsmanna ríkisins, LSR, fagnar nú 100 ára afmæli. Á svona tímamótum gefst tækifæri til að horfa til baka og sjá þær breytingar sem orðið hafa. Sjóðurinn sem stofnaður var árið 1919 var einfaldur eftirlaunasjóður og fólst starfsemin eingöngu í því að halda utan um ellilífeyri sjóðsfélaga. Rekstur lífeyrissjóða hefur gerbreyst á þessum 100 árum og í dag snýst umfangsmikill hluti starfseminnar um fjárfestingar. Með stofnun LSR var lagður grunn- urinn að því lífeyriskerfi sem við höfum í dag. Í kjölfar stofnunar LSR voru smátt og smátt stofnaðir fleiri lífeyrissjóðir. Fyrirkomulagið þró- aðist svo í þá átt sem það er í dag; að safna í sjóð, ávaxta og greiða út lífeyri í samræmi við fjárhæð inngreiðslna og ávöxtun. Þrátt fyrir langa sögu þá er því þannig farið að við höfum ekki enn séð heila kynslóð fara í gegnum lífeyrissjóðakerfið í þeirri mynd sem það nú er í sem sjóðasöfnunarkerfi. Lífeyrissjóðakerfið er enn að stækka, þar sem meira er greitt inn en fer út. Þegar við náum þeim áfanga að sú kynslóð sem er á eftirlaunum hafi greitt í söfnunarsjóð frá upp- hafi starfsævinnar mun kerfið hafa stækkað verulega. Líklegt er að stærð lífeyrissjóðakerfisins verði á þeim tímamótum vel yfir 200% af vergri landsframleiðslu. Þeirri stærð fylgir mikil ábyrgð og að mörgu er að huga þegar sýslað er með svo stóra sjóði. LSR hefur sett sér metnaðarfull markmið. Við leggjum áherslu á að fjárfestingar okkar standist viðmið okkar í samfélagsábyrgð en í því felst að horfa til umhverfisins, félagslegra þátta og stjórnarhátta. Við verðum að leitast við að fjárfesta í betri fram- tíð. Það að leggja okkar lóð á vogar- skálarnar til þess að svo verði lítum við á sem mikilvægan þátt í því að fólk geti notið eftirlaunaáranna. Við þurfum líka að huga að því að við getum ekki eingöngu fjárfest á Íslandi. Stærð sjóðanna er orðin slík að nauðsynlegt er að huga að því að ef eingöngu er fjárfest innanlands getur það skapað eignabólu. Heimurinn er enda stór og það eru miklir kostir við að fjárfesta bæði innanlands og erlendis. Með því dreifum við betur áhættunni og aukum fjölbreytni fjárfestinganna. En að sama skapi og fjárfestingar innanlands geta skapað bólu, geta fjárfestingar erlendis haft áhrif á gengi krónunnar á meðan sjóðirnir eru að stækka. Þetta eru allt þættir sem við þurfum að huga að við fjárfestingar: Að fjárfest sé á skynsamlegan og samfélagslega ábyrgan hátt, varast bólumyndun með of miklum fjár- festingum innanlands og að fara ekki of hratt út með fjármagn erlendis svo áhrifin á gengi krónunnar verði ekki of mikil á hverjum tíma. Þannig er rekstur stórra lífeyris- sjóða í litlu landi eins og Íslandi ákveðin jafnvægislist. En við munum líka sjá það að þegar heil kynslóð hefur farið í gegnum núverandi kerfi, kynslóð sem hefur alltaf greitt inn og fengið réttindi háð inngreiðslum, þá mun komast á meira jafnvægi. Þá mun haldast betur í hendur það sem kemur inn í formi iðgjalda og það sem fer út í greiddum lífeyri. Þær áskoranir sem fylgja því að reka lífeyrissjóð tengjast þjóðarhag sterkum böndum. Við gerum okkur grein fyrir þeirri ábyrgð sem liggur á herðum okkar og viljum gera okkar besta í því að reka LSR á sem bestan og ábyrgastan hátt. Við viljum fjár- festa í umhverfisvænum verkefnum, starfa á gagnsæjan hátt, hugsa um hvernig við getum best stuðlað að jafnvægi íslensks efnahags og síðast en ekki síst tryggja það að sjóðfélagar geti gengið að öruggum eftirlauna- sjóði. Stór og samfélagslega ábyrgur lífeyrissjóður Þann 15.12.2019 eru 1.111 dagar til stefnu þar til Vatnsmýrar-f lugvöllur skal í síðasta lagi víkja úr Vatnsmýri. Árið 2001 kusu Reykvíkingar þennan f lug- völl í burt fyrir árslok 2016 en í samkomulagi ríkis og borgar 2013 er brottför hans frestað til ársloka 2022. Byggingarland undir f lugvell- inum er a.m.k. 300 milljarða kr. virði og því er árlegt samfélags- tjón af f lugstarfseminni a.m.k. 15 milljarðar miðað við 5% vexti af bundnu fé eða uppsafnað frá 01.01. 2017 a.m.k. 45 milljarðar án vaxta og vaxtavaxta. Land Reykvíkinga undir f lug- vallarmalbikinu er a.m.k. 200 milljarða kr. virði og því er van- greidd lóðarleiga miðað við 1% af atvinnulóðum 2 milljarðar kr. á ári eða 6 milljarðar frá 01.01. 2017. Í júlí 1946 tók ríkið við herf lug- velli Breta í Vatnsmýri og gerði strax að borgaralegum f lugvelli í stað þess að skila landinu til rétt- mætra eigenda. Jónas Jónsson frá Hrif lu hafði lagt fram á Alþingu þingsályktunartillögu um að her- f lugvöllurinn skyldi rifinn „… því ört vaxandi höfuðborg Íslands þarf á þessu dýrmæta landi að halda“. Hópur Akureyringa tileinkaði sér f luglistina snemma á 20. öld annaðhvort af ævintýraþrá eða þörf til að rjúfa einangrunina í höfustað Norðurlands. Slóð þeirra er enn mjög áberandi í sögu íslenskra f lugfélaga allt til þessa dags. Forkólfar f lugsins á Akureyri og samherjar þeirra á landsbyggðinni hafa áratugum saman misbeitt illa fengnu valdi atkvæðamisvægisins til að viðhalda Vatnsmýrarvelli, sem allt eins mætti nefna Akur- eyrarvöll hinn syðri. Þessi hópur forkólfa ræður einn- ig stefnumótun á LANDSFUNDUM Sjálfstæðisf lokksins í málefnum Vatnsmýrarf lugvallar og í öðrum meiri háttar skipulags- og sam- göngumálum í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu. Líklega er eins háttað um stefnumótun ann- ara landsmálaframboða. Forkólfarnir og samherjar þeirra hafa á sínum snærum hóp f lug- áhugamanna og nytsamra sakleys- ingja, svokallaða f lugvallarvini, sem njóta verulegs fjárstuðnings og óhefts aðgangs að stórum fjölmiðl- um. Þessir hópar líta báðir fram hjá þjóðarhag en beita rangfærslum, hálfsannleik og útúrsnúningum til framdráttar þröngum sérhags- munum. Af ótta við áhrifavald forkólf- anna og samherja þeirra hafa kjörnir fulltrúar Reykvíkinga á Alþingi og í borgarstjórn Reykja- víkur áratugum saman unnið gegn mikilsverðum hagsmunum borgar- búa með beinum og óbeinum hætti til mikils tjóns fyrir borgarsam- félagið og landsmenn alla. Uppsafnað þjóðhagslegt tjón af því að festa í sessi og viðhalda ára- tugum saman f lugvelli þar sem ella hefði risið þétt og blómleg mið- borgarbyggð er að sönnu óskap- legt og ólýsanlegt. En tækifæri og samlegðaráhrif sem raungerast þegar f lugvöllurinn víkur úr Vatns- mýri eigi síðar en fyrir árslok 2022 eru að sama skapi gríðarleg. Virði byggingarlands þar er eins og áður sagði a.m.k. 300 milljarðar kr. og tapið af því að fresta brottför f lugs- ins er a.m.k. aðrir 300 milljarðar á hverju 20 ára tímabili auk vaxta, vaxtavaxta og tjóns vegna glataðra tækifæra. 1.111 dagar til stefnu – Samherjar gegn borgarhagsmunum Gerður Aagot Árnadóttir formaður stjórnar Fjölmenntar Helga Gísladóttir forstöðumaður Fjölmenntar Niðurskurður á starfsemi Fjölmenntar bitnar ekki síst á ungu fólki sem nýlokið hefur námi á starfsbrautum framhaldsskóla. Harpa Jónsdóttir framkvæmda- stjóri LSR Örn Sigurðsson arkitekt Uppsafnað þjóðhagslegt tjón af því að festa í sessi og viðhalda áratugum saman flugvelli þar sem ella hefði risið þétt og blómleg mið- borgarbyggð er að sönnu óskaplegt og ólýsanlegt. Café AUSTURSTRÆTI SKÓLAVÖRÐUSTÍG LAUGAVEGI AKUREYRI VESTMANNAEYJUM Komdu í kaff i 2 8 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R26 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 8 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 7 F B 0 7 2 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 5 B -F A 7 0 2 4 5 B -F 9 3 4 2 4 5 B -F 7 F 8 2 4 5 B -F 6 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 7 2 s _ 2 7 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.