Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.11.2019, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 28.11.2019, Qupperneq 28
Ofbeldi gegn boltastrákum Eden Hazard lét reka sig út af eftir að hafa sparkað í boltastrák Swansea. Atvikið varpaði skugga á Belgann sem var þá ekki orðinn sú stórstjarna sem hann síðar varð. Boltinn hafði farið út af í markspyrnu og Hazard fannst boltadrengurinn eitthvað lengi svo hann sparkaði í síðuna á kauða sem lá eftir sárþjáður. Í fyrra spilaði svo Shaktar Donetsk við Roma í Meistaradeild- inni þar sem Facundo Ferreyra henti boltastrák yfir auglýsingaskilti fyrir að drolla eitthvað um of. Hann baðst auðmjúkur afsökunar. Tár, bros og boltastrákar Jose Mourinho, þjálfari Tottenham, var í skýj- unum með boltastrák félagsins í Meistaradeildar- leiknum gegn Olympiakos. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem boltastrákur hefur stolið fyrirsögnunum eins og dæmin sanna. Tottenham - Olympiakos Boltastrákurinn var fljótur að hugsa og kom boltan- um til Serge Aurier sem gat þar með tekið snöggt inn- kast. Kastaði á Lucas Moura sem sendi á markavélina Harry Kane sem sá um afganginn og jafnaði leikinn. Eftir markið og fagnaðarlætin stökk Mourinho til boltastráksins og knúsaði kappann. „Ég elska gáfaða boltastráka eins og ég var. Þessi strákur er snillingur, hann las leikinn, skilur leikinn og gaf okkur mikil- væga stoðsendingu,“ sagði Mourinho eftir leik. Liverpool - Barcelona Einn ótrúlegasti leikur í sögu Meistaradeildarinnar fór fram á Anfield í maí þegar Liverpool vann Barce- lona 4-0. Síðasta markið kom einmitt eftir að Oakley Cannonier, fjórtán ára boltastrákur, hafði látið Trent Alexander-Arnold fá boltann hratt og örugglega svo að taka mætti hornspyrnuna með hraði. Fjórða markið og það sem tryggði Liverpool í úrslitaleikinn kom upp úr þessari hornspyrnu. Liverpool stuðnings- menn og knattspyrnuspekingar hrósuðu drengnum og gera trúlega enn. Wolves - Leicester Stundum þarf líka að flýta leik með því að reima. Þessi ágæti boltastrákur sýndi Rui Patricio hvernig á að gera tvöfaldan rembihnút á núll einni. Og fékk hrós fyrir. Blackburn Rovers - Sheffield United Undir lok leiksins, sem fram fór í deildarbikarnum, var Tony Mowbray, stjóri Blackburn, rekinn af velli fyrir að húðskamma boltastrák. Honum fannst hann einfaldlega vera of lengi að koma boltanum í leik og hans lið var jú að eltast við jöfnunarmarkið. „Ég æsti mig ekki, ég var bara að reyna að kenna ungum dreng,“ sagði þjálfarinn hálf skömmustulegur. Bournemouth - Tottenham Boltastrákurinn var eitthvað leiður yfir að hans menn voru að tapa fyrir Tottenham og þegar Jan Vertong- hen ætlaði að vera snöggur að taka innkast til að sækja hratt upp völlinn tók guttinn upp boltann og neitaði að láta Vertonghen fá hann. Mike Dean stoppaði leik- inn og sendi vörð til að skamma guttann. Svona mætti ekki gera. En trúlega kom hann í veg fyrir mark. Vitoria Guimares - Arsenal Þessi boltastrákur hjálpaði reyndar ekki til við að búa til mark en varamenn Arsenal vantaði mann í reit og buðu guttanum að vera með. Þar sýndi hann fína takta og skemmtu leikmenn sér vel – eitthvað sem hefur ekki gerst mjög oft á vellinum upp á síðkastið. Fabio Cannavaro Ítalska goð- sögnin byrjaði á að sitja á hliðarlínunni hjá Napolí og sótti bolta fyrir Diego Mara- dona. Raúl Byrjaði að sækja bolta fyrir Atletico Madrid á meðan hann var í unglingaliði félagsins. Svo sagði Atletico bara nei takk, við viljum þig ekki og guttinn fór til Real og varð einn mesti markaskorari allra tíma. Mateo Kovacic Til er fræg mynd af Kovacic að grátbiðja Steven Gerrard um handa- band eða eftirtekt eftir leik í Meistaradeildinni en Gerr- ard hunsar litla drenginn. Síðan hefur Kovacic alltaf haft horn í síðu Liverpool. Phil ipp Lahm Auðvitað byrjaði einn magnaðasti fyrirliði síðari ára sem boltadrengur. Hann geirnegldi sig fastan í bakverði FC Bayern í mörg herrans ár og fyrir utan titla með félaginu lyfti hann Heimsmeistarabikarn- um árið 2010. Gylfi Sigurðsson Gylfi Þór fór til reynslu hjá Everton ungur að árum og fékk að vera boltastrákur á einum leik. „Það eina sem ég man eftir leiknum er að ég henti boltanum til Paolo Di Canio og sem barn er það eitthvað sem þú manst eftir alla ævi,“ sagði hann við blaðamenn þegar hann var kynntur sem leik- maður Everton. 2 8 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R28 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 2 8 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 7 F B 0 7 2 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 5 C -0 E 3 0 2 4 5 C -0 C F 4 2 4 5 C -0 B B 8 2 4 5 C -0 A 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 2 7 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.