Fréttablaðið - 28.11.2019, Síða 32

Fréttablaðið - 28.11.2019, Síða 32
Petra er þessa dagana á Íslandi í smá hléi frá náminu í New York og hefur verið að ein- beita sér að hönnuninni og að koma fötunum sínum á framfæri. „Ég ætla aftur út í janúar til að halda áfram í náminu. Ég varð að taka mér smá hlé því námið er dýrt,“ segir hún. Petra segir að það sem henni finnist helst áhugavert við fata- hönnunina sé hvað föt geta verið mikið tjáningarform. „Þú getur tjáð hver þú ert með fötum, hver þú ert í dag eða hver þú vilt vera á morgun. Það er oft mismunandi eftir dögum hvernig fólk vill tjá sig með fötum, eða hversu mikla þörf það hefur til þess, einn daginn viltu kannski vera í miklum litum en annan ekki.“ Einnig finnst Petru áhugavert að hugsa um þau áhrif sem tíska hefur á umhverfið. Samfélagið er að breytast og tískan breytist með því. „Núna til dæmis er ég nánast hætt að kaupa föt og reyni frekar að nýta allt. Það er frekar ólíkt því sem ég var vön áður þegar ég var alltaf að kaupa ný föt. Núna pæli ég meira í hvernig fötin voru fram- leidd og hvort þau séu gæðaföt svo ég geti átt þau lengur. Ég kaupi líka svolítið af notuðum fötum.“ Petra segir að hún heillist mest af sportfatnaði og þægilegum fötum. „Ég vann á auglýsingastofu í London og þar vorum við að gera innsetningu fyrir Nike. Það var þá sem ég fór að heillast meira og meira af sportfatnaði og fór að hugsa um að búa til fatnað fyrir fólk sem er mikið á hreyfingu. Fyrir fólk sem er kannski að koma úr ræktinni og að fara á kaffihús beint á eftir. En ég gerði sjálf mikið af því þegar ég bjó úti.“ Fatnaðurinn sem Petra hannar er fyrir einstaklinga sem eru mikið á ferðinni. „Fötin eru hugsuð fyrir bæði kynin og ég nota þægileg efni. En aðaláherslan mín er á mynsturgerð sem er það sem ég sérhæfi mig í,“ segir Petra. Endurskinsföt „Það mynstur sem mér þykir vænst um er endurskinsmerki sem ég bjó til. Það er með bletta- tígursmynstri. Ég hugsaði það svolítið fyrir Íslendinga á þessum árstíma þegar það þarf að vera sýnilegur í myrkrinu. Fötin eru úr mjúku, þykku efni og henta þessari árstíð því vel.“ Petra segir að það sé líka and- legur þráður í hönnun hennar. „Ég Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook SVARTUR FÖSTUDAGUR 20% afsláttur fimmtudag og föstudag AF ÖLLUM • Kjólum • Túnikum • Peysum • Bolum • Jökkum • Toppum • Skyrtum Str. 36-56 Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Petra Bender er núna tímabundið á Íslandi þar sem hún einbeitir sér að því að koma hönnun sinni á framfæri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Love-bolurinn sem Petra hannaði fer vel við endurskins- buxurnar. MYNDIR/BERG- LAUG PETRA GARÐARS- DÓTTIR Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Framhald af forsíðu ➛ bjó til dæmis til boli sem heita Loved. Á þeim er mynd af tveimur sæhestum sem speglast á móti hvor öðrum, en það er líka lógóið mitt. Ég fékk þá hugmynd út frá andlegum pælingum sem ég var í á þeim tíma,“ segir Petra og bætir við að nýir bolir séu væntanlegir frá henni á næstunni. Fyrsta fatalína Petru leit dagsins ljós árið 2018 svo hún er alveg ný í bransanum en hún segir að sig hafi þó dreymt um að koma með eigin línu frá því hún man eftir sér. „Ég á ekki neinn uppá- haldshönnuð í augnablikinu en ég fylgist samt alltaf vel með því sem er að gerast í tískuheiminum. Hönnun mín er ekki innblásin af neinum sérstökum, hún kemur bara frá sjálfri mér og minni þörf fyrir að tjá mig.“ Fötin frá By Petra Bender eru seld í versluninni Akkúrat á Laugavegi og í Aðalstræti en núna 14. desember tekur Petra, ásamt öðrum hönn- uðum, þátt í pop-up verslun sem verður haldin í Hafnar- húsinu. „Þar verður fullt af hönnuðum með sínar vörur og ég hvet alla til að koma og kíkja,“ segir Petra að lokum. Aftan á bolnum er lógó By Petra Bender, tveir sæhestar sem speglast. Þessi endurskinsföt henta fullkom- lega í skamm- deginu. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 8 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 2 8 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 7 F B 0 7 2 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 5 B -F 5 8 0 2 4 5 B -F 4 4 4 2 4 5 B -F 3 0 8 2 4 5 B -F 1 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 7 2 s _ 2 7 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.