Fréttablaðið - 28.11.2019, Page 66
Tryggðu þér áskrift
ARSENAL
FRANKFURT
v
Í KVÖLD 19:50
Myndlistarmaðu r i n n To l l i Morth ens hvikar hverg i f rá þeirri rótgrónu jólahefð sinni
að vera með opið hús á vinnustofu
sinni þann 1. desember ár hvert og
fagna þannig fullveldisdegi Íslend
inga um leið og jólastemningin er
keyrð í gang með góðra vina hjálp.
Engin breyting verður á þessu í
ár og Tolli býður gesti og gangandi
velkomna til sín á Héðinsgötu 2 í
Laugarnesi á sunnudaginn þegar
hann stillir upp einvalaliði til að
skemmta gestum sínum.
„Þetta er áralöng hefð hjá mér
og mér þykir afar vænt um þetta
verkefni og þakklátur að vinir
mínir vilja koma með mér í þetta,“
segir Tolli sem opnar vinnustof
una klukkan 15 og reiknar með að
hátíðarhöldin standi í tvær klukku
stundir, til klukkan 17.
Það fossar ferskt blóð …
„Ég nýti líka alltaf þetta tækifæri
til að taka með mér ungt, upprenn
andi og kraftmikið listafólk til að
kynna fyrir gestunum mínum.
Það er ábyrgðarhluti að við sem
eldri erum greiðum götu þeirra
sem eru að byrja á þessari vegferð
sem við þekkjum svo vel,“ heldur
Tolli áfram. „Í þessu tilfelli rennur
mér blóðið til skyldunnar í orðsins
fyllstu merkingu.“
Skáldkonan Ásdís Þula Þorláks
dóttir mun lesa úr nýútkominni
ljóðabók sinni, Sólstöfum, en þar
yrkir hún í anda gömlu þulnanna
og kallast þannig á við kveðskap
inn sem finna má í „Vísnabókinni
okkar“ og þulum Theodóru Thor
oddsen, sem svo skemmtilega vill
til að er langamma Ásdísar.
… í eldri höfunda slóð
Þá ætlar rithöfundurinn Einar
Már Guðmundsson að lesa upp
úr verkum sínum og sjálfur Bubbi
Morthens, bróðir Tolla, mun einn
ig fara með nokkur ljóð úr nýrri
ljóðabók sinni. Hann mun einnig
og að sjálfsögðu grípa í gítarinn og
taka nokkur lög. Einar og Bubbi eru
fyrir löngu orðnir fastir gestir hjá
Tolla í upphafi aðventu enda hafa
drengirnir úr Vogahverfinu haldið
hópinn í gegnum ófáa áratugina.
Myndlistin er eðli málsins sam
kvæmt í öndvegi en af því sem
verður til sýnis að þessu sinni má
nefna verk eftir Kristínu Morthens.
Hún hefur numið, starfað og sýnt
myndlist í Kanada og reyndar úti
um allan heim. Hún ætlar að sýna
kraftmikil og litrík olíumálverk sem
hafa vakið mikla athygli.
Það er gott að elska á striga
Þá stígur Bubbi einnig fram sem
myndlistarmaður og sýnir málverk
sem hann hefur unnið að undan
förnu og hann lýsir sem minnum
við lögin sín og óneitanlega verður
forvitnilegt að sjá hvernig lögin
hans Bubba birtast honum á striga.
„Ég hef verið með stóra bróður að
mála og átt geggjaðar stundir og ég
fer í gymmið mjög snemma og kem
svo til hans. Nokkrum sinnum í
viku kemur til hans þjálfari í bar
dagaíþróttum, þá mála ég meðan
Tolli er frjáls í f læðinu,“ sagði Bubbi
nýlega á Fésbókinni um glímu sína
við Svartan afgan, Öskur trúðsins,
Hiroshima og fleiri lög í olíu á striga
en afraksturinn verður til sýnis á
sunnudaginn.
Allir eru velkomnir þegar gleðin
hefst klukkan 15 á sunnudaginn en
auk alls þessa andans fóðurs verða
veitingar frá Jóa í Múlakaffi á boð
stólum á meðan þær endast.
benediktboas@frettabladid.is
Bubbi málar lögin sín
á meðan Tolli slæst
Löng hefð er fyrir því að Tolli Morthens opni vinnustofu sína al-
menningi á fullveldisdeginum og á sunnudaginn býður hann upp
á veraldlegar veitingar og andlegar kræsingar, meðal annars mál-
verk sem Bubbi, bróðir hans, málaði af lögum sínum.
Bræðurnir Morthens með dóttur Tolla, skáldkonuna Ásdísi Þulu, á milli sín en öll leggja þau sín andans lóð á full-
veldisvogarskálarnar á sunnudaginn. Neðarlega til hliðar við Bubba sést lagið hans góðkunna, Það er gott að elska,
eins og það birtist honum sem málverk. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
15
TOLLI ÆTLAR AÐ OPNA
VINNUSTOFUNA SÍNA KLUKKAN
15 Á SUNNUDAGINN.
ÞAÐ ER ÁBYRGÐAR-
HLUTI AÐ VIÐ SEM
ELDRI ERUM GREIÐUM GÖTU
ÞEIRRA SEM ERU AÐ BYRJA Á
ÞESSARI VEGFERÐ SEM VIÐ
ÞEKKJUM SVO VEL.
Tolli Morthens
2 8 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R54 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:0
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
5
B
-E
B
A
0
2
4
5
B
-E
A
6
4
2
4
5
B
-E
9
2
8
2
4
5
B
-E
7
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
7
2
s
_
2
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K