Fréttablaðið - 28.11.2019, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 28.11.2019, Blaðsíða 66
Tryggðu þér áskrift ARSENAL FRANKFURT v Í KVÖLD 19:50 Myndlistarmað­u r i n n To l l i Morth ens hvik­ar hverg i f rá þeirri rótgrónu jólahefð sinni að vera með opið hús á vinnustofu sinni þann 1. desember ár hvert og fagna þannig fullveldisdegi Íslend­ inga um leið og jólastemningin er keyrð í gang með góðra vina hjálp. Engin breyting verður á þessu í ár og Tolli býður gesti og gangandi velkomna til sín á Héðinsgötu 2 í Laugarnesi á sunnudaginn þegar hann stillir upp einvalaliði til að skemmta gestum sínum. „Þetta er áralöng hefð hjá mér og mér þykir afar vænt um þetta verkefni og þakklátur að vinir mínir vilja koma með mér í þetta,“ segir Tolli sem opnar vinnustof­ una klukkan 15 og reiknar með að hátíðarhöldin standi í tvær klukku­ stundir, til klukkan 17. Það fossar ferskt blóð … „Ég nýti líka alltaf þetta tækifæri til að taka með mér ungt, upprenn­ andi og kraftmikið listafólk til að kynna fyrir gestunum mínum. Það er ábyrgðarhluti að við sem eldri erum greiðum götu þeirra sem eru að byrja á þessari vegferð sem við þekkjum svo vel,“ heldur Tolli áfram. „Í þessu tilfelli rennur mér blóðið til skyldunnar í orðsins fyllstu merkingu.“ Skáldkonan Ásdís Þula Þorláks­ dóttir mun lesa úr nýútkominni ljóðabók sinni, Sólstöfum, en þar yrkir hún í anda gömlu þulnanna og kallast þannig á við kveðskap­ inn sem finna má í „Vísnabókinni okkar“ og þulum Theodóru Thor­ oddsen, sem svo skemmtilega vill til að er langamma Ásdísar. … í eldri höfunda slóð Þá ætlar rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson að lesa upp úr verkum sínum og sjálfur Bubbi Morthens, bróðir Tolla, mun einn­ ig fara með nokkur ljóð úr nýrri ljóðabók sinni. Hann mun einnig og að sjálfsögðu grípa í gítarinn og taka nokkur lög. Einar og Bubbi eru fyrir löngu orðnir fastir gestir hjá Tolla í upphafi aðventu enda hafa drengirnir úr Vogahverfinu haldið hópinn í gegnum ófáa áratugina. Myndlistin er eðli málsins sam­ kvæmt í öndvegi en af því sem verður til sýnis að þessu sinni má nefna verk eftir Kristínu Morthens. Hún hefur numið, starfað og sýnt myndlist í Kanada og reyndar úti um allan heim. Hún ætlar að sýna kraftmikil og litrík olíumálverk sem hafa vakið mikla athygli. Það er gott að elska á striga Þá stígur Bubbi einnig fram sem myndlistarmaður og sýnir málverk sem hann hefur unnið að undan­ förnu og hann lýsir sem minnum við lögin sín og óneitanlega verður forvitnilegt að sjá hvernig lögin hans Bubba birtast honum á striga. „Ég hef verið með stóra bróður að mála og átt geggjaðar stundir og ég fer í gymmið mjög snemma og kem svo til hans. Nokkrum sinnum í viku kemur til hans þjálfari í bar­ dagaíþróttum, þá mála ég meðan Tolli er frjáls í f læðinu,“ sagði Bubbi nýlega á Fésbókinni um glímu sína við Svartan afgan, Öskur trúðsins, Hiroshima og fleiri lög í olíu á striga en afraksturinn verður til sýnis á sunnudaginn. Allir eru velkomnir þegar gleðin hefst klukkan 15 á sunnudaginn en auk alls þessa andans fóðurs verða veitingar frá Jóa í Múlakaffi á boð­ stólum á meðan þær endast. benediktboas@frettabladid.is Bubbi málar lögin sín á meðan Tolli slæst Löng hefð er fyrir því að Tolli Morthens opni vinnustofu sína al- menningi á fullveldisdeginum og á sunnudaginn býður hann upp á veraldlegar veitingar og andlegar kræsingar, meðal annars mál- verk sem Bubbi, bróðir hans, málaði af lögum sínum. Bræðurnir Morthens með dóttur Tolla, skáldkonuna Ásdísi Þulu, á milli sín en öll leggja þau sín andans lóð á full- veldisvogarskálarnar á sunnudaginn. Neðarlega til hliðar við Bubba sést lagið hans góðkunna, Það er gott að elska, eins og það birtist honum sem málverk. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 15 TOLLI ÆTLAR AÐ OPNA VINNUSTOFUNA SÍNA KLUKKAN 15 Á SUNNUDAGINN. ÞAÐ ER ÁBYRGÐAR- HLUTI AÐ VIÐ SEM ELDRI ERUM GREIÐUM GÖTU ÞEIRRA SEM ERU AÐ BYRJA Á ÞESSARI VEGFERÐ SEM VIÐ ÞEKKJUM SVO VEL. Tolli Morthens 2 8 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R54 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 8 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 7 F B 0 7 2 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 5 B -E B A 0 2 4 5 B -E A 6 4 2 4 5 B -E 9 2 8 2 4 5 B -E 7 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 7 2 s _ 2 7 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.