Fréttablaðið - 19.01.2019, Blaðsíða 27
baka án þess að koma auga á að lýð-
ræðislegur vilji hafi nokkuð komið
við sögu.“
Vinnan verður lífsstíll
„Vinnumarkaðurinn, störf og við-
horf fólks til vinnu gjörbreytist á
næstu áratugum,“ segir Ragnheiður
Þorleifsdóttir, framkvæmdastjóri
Hugsmiðjunnar, þegar hún er beðin
um að rýna í framtíðina. Ragnheið-
ur segir tæknibreytingar, umhverfis-
vernd og jafnrétti helstu drifkrafta
breytinga næstu áratuga.
„Það er miklu meiri áhersla á
mannlega þáttinn og að skapa
aðlaðandi vinnuumhverfi. Fólk
lítur í sífellt meira mæli á vinnu-
staðinn sem lífsstíl en lífsviðurværi.
Þess vegna þurfa stjórnendur að
búa til vinnustaðamenningu sem
fólk getur samsamað sig. Næstu
áratugi eiga skipurit eftir að fletjast
út. Fyrirtæki verða vistkerfi frekar
en pýramídi af fólki sem á að fram-
leiða eitthvað fyrir þig,“ segir Ragn-
heiður. „Vinnustaðamenningin þarf
að endurspegla eigin gildi í lífinu, að
geta samsamað sig kúltúrnum og
fíla persónulega það sem er í gangi
á vinnustaðnum, tilgang og mark-
mið fyrirtækisins í heild sinni,“ segir
hún.
Ragnheiður segist verða vör við
að fólk skynji sjálft að það þurfi
breiðari færni en áður. „Mennta-
kerfið þarf að taka við sér, það þarf
breiðari færni fólks á vinnumarkað-
inn. Fólk mun þurfa fleiri verkfæri
og það dugir skammt að einblína á
getu fólks í kjarnafögum.“
Árið 2050, hvernig sérðu það fyrir
þér?
„Vinnumarkaður mun verða
sveigjanlegri þar sem við knýjum
fram aukna framleiðni með því
að gefa starfsfólki aukið traust og
ábyrgð. Starfsfólk ber ábyrgð á
framvindu verkefna sinna með skýr
markmið og tímaramma til að vinna
eftir. Vinnuframlagið sjálft getur
farið fram hvar sem er á hvaða tíma
sem er innan skynsamlegra marka
og þegar það á við,“ segir Ragnheið-
ur en í Hugsmiðjunni hefur vinnu-
dagurinn verið sex klukkustundir
í stað átta í nærri því þrjú ár. „Við
getum stytt viðveru á vinnustöðum
með skilvirku skipulagi og viðhorfs-
breytingu. Að vinna vel á vinnutíma
og fara þegar dagsverkinu er lokið.
Áherslan á að vera á framleiðni og
árangur fremur en viðveru. Vinnu-
veitendur þurfa að gefa eftir til að
uppskera ríkulega í þessum málum,“
segir hún.
Tilfinningagreind mikilvæg
„Tæknibreytingar eru okkar
hjartans mál í Hugsmiðjunni en
við þurfum líka að huga að því
hvernig við þróumst sem mann-
eskjur í þessu breytilega umhverfi.
Breytingar verða sífellt hraðari og
eru lítið fyrirsjáanlegar þó að við
höfum ákveðnar væntingar um til
að mynda gervigreind og framfarir
í vísindum. Stafrænar lausnir eru
að leysa verkefni sem mannauður
gerði áður – það eru auðvitað mjög
jákvæðar en oft á tíðum líka erfiðar
breytingar þar sem fyrirtæki geta
farið að minnka starfsmannafjölda
og hagræða í rekstrinum. Fólk getur
því verið að missa vinnuna, sem
getur verið erfitt.
Viðhorf fólks er algjört grund-
vallaratriði í umhverfi sem þróast
hratt og við sem fyrirtæki þurfum
stöðugt að vera á tánum að skoða
nýjustu trend og tileinka okkur
það sem á við,“ segir Ragnheiður
og segir þá einstaklinga sem hafi
jákvætt viðhorf til þessara áskorana
en festast ekki í fyrri reynslu þá sem
blómstri í síbreytilegu umhverfi.
„Ég vil meina að viðhorf, drif-
kraftur og framsýni séu þeir eigin-
leikar í starfsfólki sem skilur að þá
einstaklinga sem geta tekist á við
þær breytingar sem framtíðin ber
í skauti sér,“ segir hún og bætir við
að í því samhengi sé það alrangt að
eldra fólk heltist úr lestinni. „Það er
oft umræða um það að eldra fólkið
eigi eftir að detta út af vinnumark-
aði vegna tæknibreytinga, það er
alrangt. Það eru vissar manngerðir
sem hafa þessa eiginleika og þær eru
á öllum aldri þó að yngri kynslóðir
séu með öðruvísi áherslur og kjósi
sveigjanleika og nýjar áskoranir
fremur en stöðugleika.“
Hún segir að þegar skipuritin
fletjist út verði það enn mikilvægari
eiginleiki stjórnenda að vera færir
um að eiga í heilbrigðum samskipt-
um. Vera með tilfinningagreind og
gott innsæi.
Framtíðarstjórnandinn býr til
teymi sem leysir krefjandi verkefni
á afmörkuðum tíma og þarf að geta
sett saman góðan hóp fólks. Það er
ekki ávísun á árangur að setja fullt
af hæfu fólki saman í herbergi til að
leysa verkefni. Stjórnandi með góða
tilfinningagreind skilur hvaða fólk
nær best árangri saman og hvernig,“
segir Ragnheiður.
Gagnrýnin hugsun sé einn-
ig nauðsynleg. „Við erum í þeim
atvinnugeira að við þurfum að vera
á tánum, greina strauma og stefnur
með gagnrýnni hugsun, tileinka
okkur þá eða ekki. Það skiptir öllu
máli að vita hvað er að breytast til
frambúðar. Hvað er að verða til
grundvallar og aðlagast fljótt. Fólki
hættir til að festast í því að það hafi
reynslu. En það sem þú gerðir fyrir
tíu árum á ekki við. Það sem þú
gerðir í gær, það er eitthvað sem við
getum talað um,“ segir hún.
Að greina undirölduna
Karl Friðriksson er framtíðar-
fræðingur og forstöðumaður hjá
Nýsköpunarmiðstöð Íslands og
stjórnarformaður Framtíðarseturs
Íslands. „Framtíðarfræði er fræði-
grein sem á sér langa hefð en er
nýleg fræðigrein innan félagsvís-
inda. Innan hennar skoðum við
ólíkar framtíðir og notum aðferða-
fræði til að greina mynstur og laða
fram ólíkar sviðsmyndir,“ segir Karl.
„Við greinum drifkrafta. Annars
vegar þá sem við verðum vör við í
samfélaginu og þá sem liggja undir.
Ef við notum samlíkingu úr nátt-
úrunni, þá er það annars vegar öldur
hafsins, sjávarmálið. Og svo er það
undiraldan sem hefur veruleg áhrif
þegar fram líða stundir. Við höfum
mestan áhuga á undiröldunni, þess-
um stóru kröftum sem koma til með
að breyta samfélaginu, stofnunum
þess og manneskjunni sem slíkri,“
segir Karl og segir að því meiri sem
óvissan sé, því áhugasamari sé hann
um verkefnið. „Framtíðin er í okkur.
Hvert og eitt okkar býr yfir reynslu,
fortíð. Út frá reynslu okkar myndum
við sýn okkar á framtíðina. Þess
vegna þarf að gera sviðsmyndirnar
með ákveðinni aðferðafræði,“ segir
Karl. „Við erum ekki að spá fyrir
um það hvað muni gerast heldur
að reyna að sjá fyrir ákveðnar líkur
og drögum ályktanir út frá aðferða-
fræði,“ segir hann.
„Við segjum oft að það séu óvissu-
þættir og svo verulegir óvissuþættir.
Þessir verulegu óvissuþættir geta
steypt fyrirtækjum og heilu atvinnu-
greinunum þannig að þær hafi ekki
tilvistargrundvöll lengur. Hraði
tæknibreytinga er mikill á öllum
sviðum. Samþætting greina á borð
við erfða- og tölvutækni verður
til þess að sköpunin verður sífellt
meiri og hraðari. Þróunin er miklu
hraðari en fólk gerir sér grein fyrir,“
segir Karl.
Vísindaskáldsögur mikilvægar
Karl segir skapandi hugsun mikil-
væga í því að stilla fram ólíkum
sviðsmyndum. Þannig megi ekki
vanmeta sýn listamanna á fram-
tíðina. „Vísindaskáldsögur eru
mikilvægar, öll skapandi hugsun um
framtíðina á erindi. Mynstur koma
fram í listsköpun og öllu sem brýtur
múra og hefðir. Það sem við erum að
vinna með er að brjóta upp gamlar
hefðir til að koma nýjum að. Reyna
að víkka sjóndeildarhringinn,“
útskýrir Karl.
Hann minnir á að það megi ekki
vanmeta tilgang fræðanna. „Fram-
tíðarfræði náði varanlegri fótfestu í
kringum síðari heimsstyrjöldina og
þá tengt kjarnorkuvánni sem vofði
yfir. Áhrif kjarnorkustyrjaldar, sú
framtíð var teiknuð upp og það
hafði áhrif.
Það skiptir máli að rýna í áhrif
ákvarðana sem við tökum í dag. Ég
man eftir verkefni sem við gerðum
fyrir hrun. Í einni sviðsmyndanna
var teiknað upp bankahrun og þar
var fólk úr ráðuneytum sem sagðist
ekki taka þátt í þessari vitleysu.
Þetta myndi aldrei gerast. Við þurft-
um að hlaupa á eftir því og biðja það
um að sitja áfram. Eftir hrunið og
ræðu Geirs Haarde fékk ég símtal
frá einum þessara starfsmanna sem
sagðist hafa lært af þessu og ætlaði
að tileinka sér aðferðafræðina. Í
dag er fólk opnara fyrir því að velta
þessu fyrir sér,“ segir hann.
Karl segir að á næstu árum muni
samfélög gjörbreytast vegna auk-
innar sjálfvirknivæðingar. „Þjarkar
munu vinna erfiðustu störfin. Skrif-
stofustörf munu gjörbreytast. Það er
ekkert langt í að fjöldi starfa verði
úreltur og taki breytingum. Ef við
horfum aðeins lengra fram í tímann
sjáum við enn meira samspil véla og
manna og því tengdar breytingar á
hinu samfélagslega mynstri, viðmið-
um okkar. Við erum að vanrækja þá
umræðu í dag. Við þurfum að ræða
hvað er í vændum ef við viljum að
þróunin verði okkur hliðholl.“
„Eðlisfræðingar munu fjalla um eðlisfræði flókinna kerfa,“ segir Viðar.
Hver einasta tækninýjung skapar siðferðileg álitamál, segir Henry.
Ragnheiður hjá Hugsmiðjunni segir viðveru minnka. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
Karl segir að ekki megi vanmeta tilgang fræðanna. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
Framtíðarspár samtímans
Vísindamenn, listamenn, hönnuðir og áhugafólk um
framtíðina lögðu til framtíðarspár fyrir Kaspersky Lab,
fyrirtæki sem vinnur að veflausnum og tölvuöryggi.
2030 í Moskvu: Risastórar loftslags- og gróður-
hvelfingar
Til þess að verja fólk fyrir áhrifum loftslagsbreytinga
rísa byggingar eða öllu heldur hvelfingar sem viðhalda
ákjósanlegum skilyrðum loftgæða, gróðurs og birtu.
Reyndar eru til slík verkefni nú þegar í smærri mynd.
Til dæmis í Gardens by the Bay í Singapúr.
2040 í Singapúr: Vélpöddur vakta þig
Árið 2040 verða drónarnir sem fylgjast nú þegar með
mannlífi í Singapúr enn smærri. Þeim mætti líkja við
vélpöddur.
2050 í Singapúr: Tréhús
Umhverfisvænn arkitektúr leiðir til byltinga í borgum
heimsins. Byggð, eða öllu frekar ræktuð, risatréhús
segja spekingar Kaspersky að verði að veruleika í
Singapúr.
2050: Rafrænn og persónulegur minnisþjónn
Maðurinn mun kjósa að reiða sig á rafrænt minni
þegar kemur að minningum. Með nýrri tækni og gervi-
greind verður hægt að útbúa eins konar rafrænan og
persónulegan aðstoðarmann sem geti kallað fram
minningar um allt sem viðkemur lífinu.
2050: Vitvélarnar vinna fleiri störf
Enski stjarneðlisfræðingurinn Martin John Rees hefur
spáð því að árið 2050 muni vitvélar hafa tekið við
flestum störfum sem mannfólk sinnir núna. Á hinn
veginn verði sérhæfð störf í þjónustu þar sem krafist
er sértækrar alúðar, yfirsýnar og verkvits eftirsótt.
2050: Við búum á vinnustaðnum
Við eyðum ekki tíma í umferðinni, segir Vladislav
Biryukov hjá Kasp ersky. „Það er enginn tilgangur með
því að eyða öllum deginum á skrifstofunni. Auk þess
verða ekki margir með skrifstofu, eða í fullu starfi,“
segir hann. Fólk hefur val, það getur reitt sig á lágar
tekjur og lifað fábrotnum lífsstíl. Eða það getur lært
eitthvað sem er ekki hægt að vitvélavæða.
Gardens by the Bay í Singapúr.
1 9 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð