Fréttablaðið - 19.01.2019, Blaðsíða 39
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Nýr íslenskur
næringardrykkur
sem fellur vel að
ráðleggingum
um mataræði
eldra fólks.
N Næring+ er nýr næringar-drykkur frá Mjólkursamsöl-unni en um er að ræða orku-
og próteinríkan drykk sem hentar
vel þeim sem þurfa að þyngjast
eða sporna við þyngdartapi, gott
millimál í fernu.
Næring+ er vítamín- og
steinefna bættur og getur m.a.
hentað eldra fólki, en með aldr-
inum minnkar oft matarlystin þó
að þörf fyrir orku, prótein, vítamín
og steinefni sé enn til staðar. Til
að fyrirbyggja vöðvarýrnun og
þyngdartap hjá eldra fólki er mikil-
vægt að það neyti orku og próteina
í ríkum mæli og getur drykkurinn
einnig hentað þeim sem vilja hand-
hægt orku- og próteinríkt millimál.
„Við þróun á Næringu+ var
tekið mið af nýjum ráðleggingum
um mataræði eldra fólks sem
gefnar voru út í desember 2018 af
Embætti landlæknis, ásamt Rann-
Næring+ nýr drykkur frá MS
Næring+ er víta-
mín- og steinefna-
bættur drykkur.
Dr. Björn S. Gunnarsson, vöruþró-
unarstjóri MS.
Tímaritið spurði barþjóna frá 127 vinsælum börum í 38 ólíkum löndum hverjir
væri þeirra tíu mest seldu drykkir.
Þar má sjá þekkta drykki eins og
Martini, Whisky Sour og Aperol
Spritz sem er reyndar afar vinsæll
víðast hvar.
Þrátt fyrir að barþjónar séu
stöðugt að þróa nýja drykki er
eftirspurnin mest eftir „gömlum
kunningjum“, segja þeir. Hins
vegar virðast drykkjuvenjur fólks
vera að breytast. Það hefur aukist
að fólk komi inn á bar hversdags
og fái sér einn drykk. Fólk fær sér
einn gin og tónik eða Aperol Spritz
eftir vinnu.
Kokteilar eru mjög vinsælir,
allt frá einföldum drykk eins og
Whisky Highballs upp í vandaðan
Mojito. Frískandi drykkir og bragð-
miklir verða oft fyrir valinu. Bar-
þjónar benda á að fólk ætti að vera
duglegra að smakka nýjan kokteil.
„Drekkið færri en betri drykki,“
segja þeir. Einnig hafa margir
barþjónar tekið eftir að fleiri og
fleiri velja lægri áfengisprósentu
en áður tíðkaðist, til dæmis hefur
sérrí allt í einu aftur orðið vinsælt
og sama má segja um vermút. Nýtt
einkennisorð hefur rutt sér braut á
barnum en það er NoLo sem þýðir
ekkert eða lítið alkóhól.
Þá hafa drykkir sem endurspegla
menningu þjóða orðið vinsæl vara
á börum, ákavíti frá Danmörku,
mezcal frá Mexíkó eða cachaca frá
Brasilíu.
Hérna eru drykkirnir sem
tróna á topp tíu listanum
Old Fashioned alltaf vinsæll
Negroni ítalskur og heillandi
Whisky Sour ávallt á topp tíu
Daiquiri sá mest seldi með rommi
Manhattan móðir allra kokteila
Þurr Martini gjarnan með ólífu
Espresso Martini vodka, kahlua og
espresso kaffi
Margarita uppáhald margra
Aperol Spritz tískudrykkurinn
Moscow Mule ferskur drykkur með
vodka og engiferöli
Tíu vinsælustu drykkirnir
Kokteilar eru vinsælir þessa dagana víða um heiminn.
Það eru margir
gamlir, þekktir
áfengir drykkir
sem eru með
þeim vinsælustu í
heiminum. Tíma
ritið Drinks Inter
national hefur
birt töflu yfir vin
sælustu drykkina
nú um stundir.
sóknarstofu HÍ og Landspítala í
öldrunarfræðum. Sérstök áhersla
var lögð á að hafa drykkinn eins
prótein- og orkuríkan og hægt var
án þess að láta það bitna á bragð-
gæðum vörunnar,“ segir dr. Björn
S. Gunnars son, vöruþróunarstjóri
MS.
Í ráðleggingunum kemur fram
að til að uppfylla næringarþörf
hjá eldra fólki með minnkaða
matarlyst er mælt með orku- og
próteinríku fæði og m.a. mælt með
mjólkurvörum sem góðum pró-
teingjafa.
Næring+ fæst í 250 ml fernum
með súkkulaðibragði og kaffi-/
súkkulaðibragði, en hver ferna af
drykknum inniheldur 360 kcal
og 22 g prótein. Þrátt fyrir að
drykkurinn sé orkuríkur er gætt að
því að stilla magni viðbætts sykurs í
hóf og engin sætuefni eru í honum.
Búið er að kljúfa allan mjólkur-
sykur (laktósa) í Næringu+, þannig
að drykkurinn á að henta öllum
sem hafa laktósaóþol og þá er hann
einnig án glútens.
Næring+ er góður valkostur til að
hjálpa við að tryggja næga orku-
inntöku og uppfylla próteinþörf
en best er að nota drykkinn milli
mála og gæta jafnframt að því að fá
reglulegar máltíðir.
% 9.4256
% 8.535
% 8.535
% 1.3323
MARKADURINN.IS
NÝR VEFUR FYRIR VIÐSKIPTALÍFIÐ
% 8.535
% 8.535
% 1.3323
% 8.535
• INNLENDAR OG ERLENDAR VIÐSKIPTAFRÉTTIR • GENGI HLUTABRÉFA OG GJALDMIÐLA
• ÁVÖXTUN SJÓÐA OG SKULDABRÉFA • HVAÐ ER Á DÖFINNI Í VIÐSKIPTALÍFINU
• KAUP Á ÁRSSKÝRSLUM OG UPPLÝSINGUM ÚR HLUTHAFASKRÁ
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R