Fréttablaðið - 19.01.2019, Blaðsíða 34
leika sér í snævi prýddri umgjörðinni
og njóta veitinga og samveru í gamla
skíðahótelinu og uppi í Strýtuskála
við enda stólalyftunnar. Nú er tím-
inn fram undan að koma norður og
njóta vetrarsports og ef fólk er ekki
vant á skíðum eða tók ekki búnað-
inn með sér eigum við 300 frábær
skíði á skíðaleigunni, allan útbúnað
og meira að segja hlífðarfatnað ef
fólk fær þá skyndihugdettu að skella
sér á skíði. Og vitaskuld er hægt að
bóka skíðakennslu í fjallinu,“ segir
Stefán en undanfarin misseri hefur
færst í aukana að erlendir ferðamenn
leigi sér skíði og prófi að renna sér á
skíðum í Hlíðarfjalli þar sem nóg er
plássið.
„Hlíðarfjall er ævintýrastaður þar
sem allur aldur nýtur lífsins saman,
hver sem búnaðurinn er, skíði eða
bretti. Svo hittist fólk til að fá sér
í gogginn saman og heldur síðan
áfram að leika sér í snjónum og að
sjálfsögðu tökum við vel á móti
öllum af alkunnri norðlenskri gest-
risni.“
Hægt er að fylgjast með opn-
unartímum, veðurspá og færi á
hlidarfjall.is og á Facebook og fá allar
nánari upplýsingar í síma 462 2280.
Í því felst fúttið; að
komast á ótroðnar
slóðir og helst púðursnjó
sem enginn hefur snert.
Við eigum 300
frábær skíði á
skíðaleigunni, allan
útbúnað og meira að
segja viðeigandi hlífðar-
fatnað.
Axel Ernir.
Nú er flennifæri í Hlíðarfjalli og aftur kominn nægur snjór í vetrarparadísina Akur-
eyri. Höfuðborgarbúar hafa beðið
óþreyjufullir eftir að komast aftur
norður á skíði og nú er vertíðin að
hefjast af fullum krafti. Eftir góðan
dag í Fjallinu er síðan fátt betra en
að láta líða úr sér í heitum pott-
unum og gufunni í Sundlaug Akur-
eyrar. Skemmtanalífið í bænum er
einnig með líflegasta móti á þessum
árstíma og má benda á að Græni
hatturinn er trúlega vinsælasti
og besti tónleikastaður landsins.
Þá er mikið um spennandi
viðburði í Hofi og söfnin á
Akureyri geyma fjársjóði.
Sýningar á söngleiknum
ógleymanlega Kabarett
verða í Samkomuhúsinu
fram í febrúar. Kíktu á
dagskrána á visitakur-
eyri.is.
Að eiga fjallið einn
Fjallaskíðamennska snýst
um að fara á tveimur jafn
fljótum upp á fjall og renna
sér niður ósnortna brekku, helst í
púðursnjó sem enginn hefur snert
áður. Í því felst fúttið; að komast
ótroðnar slóðir,“ segir norðan-
maðurinn Axel Ernir, fjallaskíða-
kappi og framkvæmdastjóri
vetrarhátíðarinnar Iceland Winter
Games, sem fer fram í Hlíðarfjalli
dagana 22. til 24. mars.
Axel hefur skíðað frá því hann
man eftir sér en kynntist fjalla-
skíðum fyrir um áratug og þá varð
ekki aftur snúið.
„Þeir sem stunda vetrarsport vita
að Eyjafjörðurinn og Tröllaskaginn,
hæsti fjallgarður Íslands, eru para-
dís fyrir fjallaskíði og útivist af öllu
tagi. Þessi stóru fjöll og nálægðin
við þau; það er örstutt að komast
yfir í vetrarríki náttúrunnar og á vit
ævintýranna,“ segir Axel sem getur
klætt sig í skíðaklossana heima og
gengið upp á topp Hlíðarfjalls úr
hverfinu .
„Það er náttúrlega geggjað. Það
tekur ekki nema fimm mínútur að
komast á bíl á skíðasvæðið í Hlíðar-
fjalli eða að gönguleiðinni á Súlur,
og þótt maður þurfi að keyra í 30
til 40 mínútur yfir til Dalvíkur,
Ólafsfjarðar eða Siglufjarðar
er það enginn akstur til
að vera kominn í einskis
manns land á Trölla-
skaganum með enda-
lausa möguleika. Í því
felast líka töfrarnir við
norðrið,“ segir Axel.
Fjallaskíði eru breiðari
en hefðbundin svigskíði og
í þeim er meira flot. Sett eru
sérstök skinn undir skíðin
sem gefa gott grip og er losað
um hælfestinguna til að ganga upp
snævi þaktar brekkur.
„Vinsælt er að skinna sig upp af
skíðasvæðinu og á topp Hlíðar-
fjalls en vinsælastur er þó Kald-
bakur ofan við Grenivík og Kerling
í Eyjafirði, inn fyrir Hrafnagil. Þá er
líka gríðarlega vinsælt að fara inn í
Glerárdal, þar sem er fullt af spenn-
andi fjöllum, og á Tröllaskagann í
gegnum Dalvík, Ólafsfjörð og Siglu-
fjörð, þar sem eru endalaus fjöll
og draumalendur fyrir hvers kyns
vetrarsport,“ útskýrir Axel.
Allur er varinn góður í fjalla-
skíðamennsku.
„Fjallaskíðamennska, eins og öll
vetrarútivist í óbyggðum Íslands,
krefst undirbúnings og varkárni.
Menn þurfa að vera meðvitaðir um
mögulega snjóflóðahættu og allir
sem stunda fjallaskíði og vetrarúti-
vist ættu að hafa tekið námskeið
í snjóflóðaleit og hægt er að taka
námskeið í fjallaskíðamennsku.
Eins ættu allir að vera með heilaga
þrenningu fjallaskíðamannsins í
bakpokanum; snjóflóðaýli, skóflu
og snjóflóðastöng, og kunna að
nota það til að bjarga sér og félög-
unum ef til þess kemur,“ upplýsir
Axel.
„Fjallaskíðamennska stendur
fyrir frelsi, að vera einn með nátt-
úrunni og eiga fjallið aleinn. Vita-
skuld er skemmtilegast að stunda
vetrarsport í heiðríkju, frosti og
stillu en það er líka vel hægt að gera
það þótt skýjað sé. Þá verður maður
bara að fara sér hægar og passa sig
betur,“ segir Axel og hlakkar mikið
til Iceland Winter Games í mars,
einnar stærstu vetraríþróttahátíðar
landsins.
„Þar er keppt í ýmsum vetrar-
íþróttagreinum, meðal annars „free
ride“ skíðamennsku þar sem farið
er upp með troðara og valin leið
niður, sem er gríðarlega skemmti-
legt,“ segir Axel en dagskrána má
sjá á icelandwintergames.com.
Heillandi vetrarparadís í norðri
Paradís vetraríþrótta er á Akureyri og í Eyjafirði. Þar er hægt að njóta dekurs og vellystinga á frá-
bærum veitinga- og skemmtistöðum, skoða spennandi söfn, freistandi verslanir og upplifa metn-
aðarfulla menningardagskrá í einstakri vetrardýrð í einum af fegurstu bæjum lýðveldisins.
Hlíðarfjall er fyrir alla; káta krakka, konur og karla,“ segir Stefán Gunnarsson, svæðis-
stjóri á skíðasvæði Akureyringa í
Hlíðarfjalli.
„Það er rótgróin skíðamenning
hér nyrðra og skíðafólk sækir mikið
í fjallið, bæði heimamenn og gestir,
enda tekur ekki nema sjö mínútur
að keyra upp í skíðasvæðið sem
lokkar og laðar með sínum tindr-
andi ljósum og náttúrufegurð. Við
erum því dekruð hvað þetta varðar,“
segir Stefán kátur á dásemdar skíða-
svæði Akureyringa sem skíðandi
landsmenn elska.
Alls eru sjö skíðalyftur í Hlíðar-
fjalli og 25 mismunandi skíðaleiðir,
þegar allt er opið. Þá eru samtals 15
kílómetra langar gönguskíðabrautir
í fjallinu, upplýstar um ævintýra-
lönd.
„Við erum með frábæra aðstöðu
fyrir svigskíði, fjallaskíði og snjó-
bretti. Þar af tvær mjög byrjenda-
vænar skíðalyftur, eins og Töfratepp-
ið sem er færiband sem skíðafólkið
stendur á, upp í afbragðs aðstöðu
fyrir keppnisfólk. Skíðabrekkurnar
eru flokkaðar í fjórum litum: grænar,
bláar, rauðar og svartar, en grænar
og bláar eru fyrir byrjendur, rauðar
fyrir lengra komna og svartar fyrir
þá allra reyndustu,“ útskýrir Stefán.
Í Hlíðarfjalli er snjóframleiðsla og
framleiddur dúnmjúkur púðursnjór
í helstu skíðaleiðir þegar aðstæður
leyfa og snjólétt er nyrðra.
„Skíðabærinn Akureyri er
heillandi vetrarparadís. Á fallegum
degi er engu líkt að njóta ægifagurs
útsýnis út og yfir fjörðinn úr fjallinu,
Leikvöllur fyrir alla fjölskylduna
Í Hlíðarfjalli eru fyrsta flokks aðstæður til skíða- og brettaiðkunar og næg tækifæri til ógleymanlegra samverustunda.
Vetrarríkið á Akureyri er engu líkt í dýrð sinni og sneisafullt af spennandi afþreyingu. MYNDIR/AUÐUNN NÍELSSON
KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 1 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9 VETRARSPORT OG FERÐIR