Fréttablaðið - 19.01.2019, Blaðsíða 93
Starfandi forseti
hefur tekið við í
Venesúela eftir að
kjörtímabili Nicolás
Maduro lauk. Sam-
tök Ameríkuríkja
viðurkenna hinn
nýja forseta en það
gerir Maduro ekki og
heldur enn í völdin.
Sérkennileg staða er komin upp í sósíalistaríkinu Venesúela. Staðan þar hefur vissulega ekki verið stórkostleg að undan-förnu. Nú er hins vegar
hnakkrifist um forsetastól landsins.
Nýr, starfandi forseti er tekinn við af
Nicolas Maduro, allavega samkvæmt
venesúelska þinginu. Maduro kveðst
hins vegar enn vera forseti.
Efnahagshamfarir
Til þess að útskýra þá stöðu sem
komin er upp þarf að leita aftur í
tímann. Venesúela er mikið olíuríki.
Þegar sósíalistinn Hugo Chávez
komst til valda um aldamótin jókst
mikilvægi olíunnar fyrir hið nýja,
sósíalíska hagkerfi enn meira. Þetta
svarta gull stendur nú undir 95 pró-
sentum af öllum útflutningstekjum
ríkisins.
Samkvæmt skýringu BBC kom
landið því afar illa út úr því er olíu-
verð hrundi árið 2014. Gjaldeyris-
forði ríkisins tæmdist einfaldlega
og erfitt var að flytja i n n
nauðsynjar. Þar af leiddi
hækkað vöruverð og
þar með verðbólgu.
Peningar íbúa ríkisins
urðu verðminni og verð-
minni og ríkisstjórnin
hefur til að mynda brugðist
við með því að prenta meiri
peninga og hækka lág-
markslaun. Þessar aðgerðir
voru olía á eld verðbólg-
unnar. Í þokkabót gengur
illa að borga af lánum og
enn verr að fá ný lán. Og þótt
Venesúela hafi kynnt nýjan
gjaldmiðil til sögunnar í ágúst
síðastliðnum hafði það einfald-
lega engin jákvæð áhrif.
Verðbólga á síðasta ári, fram í nóv-
ember, mældist 1.300.000 prósent.
Þetta þýðir að verð hefur tvöfaldast
á um nítján daga fresti. Spá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins fyrir næsta ár
stendur í tíu milljónum prósenta.
Þótt Maduro kenni Bandaríkj-
unum og Kólumbíu um ástandið,
segi ríkin stunda spellvirki og efna-
hagsleg hryðjuverk, hafa mótmæli
gegn ríkisstjórninni orðið æ tíðari í
Venesúela. Óánægja íbúa er sem sagt
að aukast.
Kosið á ný
Þann 20. maí í fyrra gengu íbúar í
Venesúela að kjörborðinu til þess
að kjósa sér forseta. Ætla má að í ríki
með milljón prósenta verðbólgu
væri forsetinn ekki vinsæll. Skoðana-
kannanir í aðdraganda kosninganna,
meðal annars frá Varianzas, Hercon
og Datanalisis sýndu stjórnarand-
stæðinginn Henri Falcón með meira
fylgi en Maduro.
Framboð Falcóns var reyndar
ekki óumdeilt. Bandalag stjórnar-
andstöðuflokka hafði ákveðið að
sniðganga kosningarnar á þeim
grundvelli að þær stæðust ekki
grundvallarkröfur um sanngjarnar,
frjálsar kosningar. Landskjörstjórn
hafði verið sökuð um hlutdrægni
enda var tveimur sigurstranglegustu
frambjóðendum andstöðunnar
meinað að bjóða sig fram.
Könnun Meganálisis í apríl 2018
sýndi að 65 prósent aðspurðra teldu
Falcón í raun samverkamann Mad-
uro. Hann væri einungis í framboði
til þess að láta kosningarnar líta út
fyrir að vera raunverulegar. Falcón
þvertók fyrir allt slíkt á sínum tíma.
Sagði pólitíska sniðgöngu einfald-
lega ekki virka.
Umdeildur sigur
Þegar talið var upp úr kjörkössunum
kom í ljós að Maduro fékk 67,8 pró-
sent atkvæða. Falcón ekki nema 20,9
prósent. Kjörsókn undir fimmtíu
prósentum. Maduro lýsti yfir sigri.
En sá sigur var, og er, umdeildur.
Sameinuðu þjóðirnar, Evrópu-
sambandið, Bandaríkin, Ástralía,
Samtök Ameríkuríkja og Lima-
hópurinn [samtök tólf ríkja sem leita
að friðsamlegri lausn á krísunni í
Venesúela] lýstu nær samstundis yfir
alvarlegum efasemdum um kosn-
ingarnar og neituðu að viðurkenna
niðurstöðurnar. Það gerðu fleiri ríki
sömuleiðis en ríki á borð við Kúbu,
Íran, Norður-Kóreu, Sýrland og Kína
sögðu Maduro réttkjörinn forseta.
Áskorandinn
Venesúelska þingið er í höndum
stjórnarandstöðunnar og hefur verið
frá árinu 2015. Það þóknast Maduro
ekki. Hæstiréttur Venesúela, hlið-
hollur Maduro, úrskurðaði í mars
2017 að þingið skyldi ekki hafa nein
völd lengur. Í framhaldinu ákvað
ríkisstjórnin að mynda nýtt þing,
stjórnlagaþing, og í því sitja nú ein-
göngu menn úr Sósíalistaflokknum.
Úrskurður hæstaréttar orsakaði
mikil og mannskæð mótmæli og
ákvað hæstiréttur því að draga
úrskurð sinn til baka. Þingið ákvað
að skipa nýjan hæstarétt sem situr
nú í útlegð í Panama en ríkisstjórn
Maduro viðurkennir útlæga dóm-
stólinn ekki.
Gamla þingið starfar hins vegar
enn þótt stjórnlagaþingið hafi verið
myndað og Maduro hlusti einungis
á hið nýja þing. Gamla þingið kaus
sér nýjan þingforseta í desember
síðastliðnum. Sá heitir Juan Guaidó
og er maðurinn sem nú tekst á við
Maduro um forsetastólinn.
Guaidó var tiltölulega óþekktur á
heimsvísu áður en hann tók við sem
forseti þingsins og hefur verið við-
riðinn stjórnmál í tiltölulega stuttan
tíma. Hann tók virkan þátt í mann-
skæðu mótmælunum árið 2017 og
uppskar ör á hálsi eftir að öryggis-
sveitir skutu hann með gúmmí-
kúlum.
Þessi 35 ára gamli jafnaðarmaður
lofaði því er hann sór embættiseið
að hann myndi veita Maduro sterka
andstöðu. Ættingjum pólitískra
fanga var boðið á innsetningar-
athöfnina sem fór fram þann
5. janúar.
Nýr forseti
Fimm dögum síðar, þann 10., rann
kjörtímabil Maduro út. Þótt formleg
innsetningarathöfn fyrir Maduro
hafi farið fram viðurkennir þingið
ekki lögmæti kosninga síðasta árs
og lítur því svo á að það sé ekki búið
að kjósa næsta forseta ríkisins.
Guaidó hóf því myndun eins
konar starfsstjórnar þangað til nýr
forseti hefur verið kjörinn. Í ræðu á
þingi sagði hann að Venesúela væri
í raun orðið einræðisríki og lýsti
Guaidó því yfir neyðarástandi.
Maduro-stjórnin brást illa vil
þessu. Sjálfur líkti Maduro stjórnar-
andstöðunni við skólastráka og sagði
Guaidó einfaldlega óþroskaðan. Iris
Varela fangelsismálaráðherra sagðist
svo vera búin að velja sérstaklega
fangaklefa fyrir uppreisnarsegginn
Guaidó. Hún biði nú eftir því að
hann tilkynnti um ríkisstjórn svo
hún vissi hverjir gætu fylgt honum
í steininn.
Beint í kjölfar ræðunnar birtist
hins vegar yfirlýsing á vef þingsins
þar sem sagði að Guaidó væri tekinn
við sem starfandi forseti Venesúela
á grundvelli greina 233, 333 og 350 í
venesúelsku stjórnarskránni. Sama
dag barst svo bréf frá hinum útlæga
hæstarétti Venesúela, það er að segja
þeim dómurum sem sitja í Panama,
þar sem Guaidó var beðinn um að
taka við sem starfandi forseti.
Stuðningur við Guaidó
Samtök Ameríkuríkja lýstu yfir
stuðningi við Guaidó. „Við fögnum
því að Juan Guaidó sé orðinn starf-
andi forseta Venesúela í samræmi
við 233. grein stjórnarskrárinnar.
Við, alþjóðasamfélagið og venesú-
elskir borgarar styðjum þig,“ sagði í
tísti frá samtökunum.
Fleiri fylgdu í kjölfarið. Brasilía
og Kólumbía, kaþólska kirkjan í
landinu og Lima-hópurinn. Þann 15.
janúar kvaðst Donald Trump Banda-
ríkjaforseti vera að íhuga hvort hann
ætti að viðurkenna Guaidó sem
nýjan forseta Venesúela. Hann þurfti
ekki að hugsa sig lengi um og gerði
það degi seinna.
Guaidó var handtekinn á sunnu-
daginn fyrir viku eftir að lögregla
stöðvaði för hans norður af höfuð-
borginni Caracas. Ekki liggur fyrir
hvers vegna en honum var sleppt um
klukkustund síðar. Samkvæmt Jorge
Rodríguez, upplýsingamálaráðherra
í Maduro-stjórninni, handtóku lög-
reglumenn hinn starfandi forseta
í leyfisleysi. Guaidó er ekki á sama
máli. Sagði við AP-fréttaveituna að
handtakan hafi verið að beiðni hátt-
settra.
Framhaldið
Venesúelska stjórnarandstaðan
stendur að baki Guaidó og vonast
til þess að hinn ungi þingmaður,
þingforseti og starfandi forseti nái
að hrifsa völdin af Maduro svo hann
geti næst boðað til nýrra kosninga.
Á þessari fyrstu viku hans sem starf-
andi forseti hefur hann ekki náð að
taka við völdum nema að nafninu til.
Þingið ætlar að freista þess að fá
herinn til liðs við sig í átökunum
um forsetastólinn. Það samþykkti
ályktun um að allir þeir hermenn
sem „endurreisa lýðræði Venesúela“
fái algjöra friðhelgi.
„Þau eru að leggja grunninn að
því að fá bæði herinn og lögreglu til
liðs við sig. Það gefur hermönnum
ástæðu til þess að skipta um lið
í staðinn fyrir að halda áfram að
styðja Maduro,“ sagði Diego Moya-
Ocampos, venesúelskur stjórn-
málaskýrandi, við Wash-
ington Post í vikunni.
Moya-Ocampus sagði
svo við AFP að herinn
væri í rauninni lykill-
inn að þessu öllu
saman.
V l a d i m i r
Padrino López
va r n a r m á l a -
ráðherra sór
Maduro holl-
u s t u e i ð á
þriðjudaginn.
„Venesúelskir
hermenn eru
reiðubúnir til þess að
verja stjórnarskrána,
stofnanir ríkisins og
þig, forseta Venesúela,“
sagði ráðherrann.
Pattstaða er enn í
deilunni um venesú-
elska forsetastólinn.
Hins vegar hefur
Guaidó boðað til
mótmæla um land
allt þann 23. janúar.
Þá verður 61 ár liðið
frá því Marcos Pérez
Jiménez herforingja var
steypt af forsetastóli.
Tveir forsetar
5. mars 2013
Nicolás Maduro verður forseti
Venesúela og tekur við af Hugo
Chávez.
2014
Olíuverð hríðlækkar og efna-
hagshamfarir byrja af alvöru í
Venesúela
2017
Mannskæð fjöldamótmæli fara
fram. 165 láta lífið, þúsundir eru
handteknar og enn fleiri særast.
29. mars 2017
Hæstiréttur Venesúela sviptir
þingið völdum en snýr úrskurð-
inum við þann 1. apríl.
21. júlí 2017
Hæstiréttur Venesúela í útlegð er
stofnaður í Panama.
30. júlí 2017
Kosið er í nýtt stjórnlagaþing.
Einungis Sósíalistaflokksmenn
taka sæti á þinginu.
20. maí 2018
Forsetakosningar fara fram í
Venesúela. Stjórnarandstaðan
sniðgengur þær að mestu þar sem
frambjóðendum hennar var mein-
að að bjóða sig fram. Kannanir
sýndu takmarkaðan stuðning við
Maduro sem vann engu að síður
stórsigur. Fjölmörg ríki neita að
viðurkenna lögmæti kosninganna
og það gerir þingið ekki heldur.
5. janúar 2019
Juan Guaidó verður forseti
venesúelska þingsins
10. janúar 2019
Kjörtímabil Maduro rennur út.
Hann er svarinn aftur inn í emb-
ætti en þingið velur sinn eigin
forseta, þingforsetann Guaidó.
Samtök Ameríkuríkja, Brasilía,
Kólumbía og Lima-hópurinn á
meðal þeirra sem viðurkenna
Guaidó sem nýjan forseta.
13. janúar 2019
Guaidó er handtekinn. Yfirvöld
segja það ekki hafa verið að
þeirra beiðni en Guaidó er ósam-
mála.
16. janúar 2019
Bandaríkin viðurkenna Guaidó
sem nýjan forseta.
Maduro heldur ræðu í minning-
arathöfn um Hugo Chávez.
NORDICPHOTOS/AFP
Mannskæð mótmæli voru um allt
land árið 2017. NORDICPHOTOS/AFP
Henri Falcón, mótframbjóðandi
Maduro, greiðir atkvæði í forseta-
kosningunum. NORDICPHOTOS/AFP
Juan Guaidó er orðinn starfandi
forseti. Eða að minnsta kosti sam-
kvæmt þinginu. NORDICPHOTOS/AFP
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
Nicolás Maduro,
forseti Venesúela.
Juan Guaidó,
forseti Venesúela.
1 9 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð