Fréttablaðið - 19.01.2019, Blaðsíða 85
Ég er með mjög gott
minni og finnst til
dæmis mokfyndið hvað
allt var kreisí og þótti
bara eðlilegt þegar ég var
barn.
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
Það ætti ekki að koma á óvart að hin 56 ára gamla Anna Þóra Björnsdóttir skuli hafa
byrjað á uppistandi á rúmlega
miðjum aldri enda hefur kvikind-
isskapur og illkvittnislegur húmor
fylgt henni frá fæðingu. Anna Þóra
er einn fimm meðlima uppistands-
hópsins Bara góðar sem kemur
fram í fyrsta sinn opinberlega á
morgun, sunnudag, í Þjóðleikhús-
kjallaranum í Reykjavík. Hópinn
skipa fimm konur á ólíkum aldri,
sú yngsta er 25 ára en sú elsta 83
ára.
Upphafið að uppistandinu má
rekja til námskeiðs hjá Þorsteini
Guðmundssyni, leikara og grínista,
sem hún sótti árið 2014. „Ég er
mikið kvikindi og finnst gaman
að stríða fólki en það hefur fylgt
mér allt líf. Foreldrar mínir áttu
þetta líka til þannig að stríðni og
kvikindisskapur er svo sannarlega
í fjölskyldunni. Þrátt fyrir það hef
ég aldrei átt þann draum að verða
uppistandari. Hugmyndin að nám-
skeiði Þorsteins kviknaði bara í
góðra vina hópi á Jómfrúnni og þá
var ekki um annað að ræða en að
hella sér á fullu í þetta.“
Námskeiðið var það fyrsta sem
Anna Þóra klárar á ævinni. „Það
kom ekki vinum og vandamönn-
um á óvart að ég skyldi sækja þetta
námskeið. Ég kom hins vegar sjálfri
mér meira á óvart og þá aðallega út
af aldri mínum, mér fannst ég full
gömul til að láta svona. Þótt ég taki
oft völdin í partíum og veislum
kom það mér á óvart að ég skyldi
hafa hugrekki til að fara á svið og
segja brandara. Á sviðinu er maður
svo berskjaldaður og getur ekkert
annað en staðið með sjálfum sér.“
Sækir í fortíðina
Anna Þóra sækir hugmyndir sínar
fyrst og fremst í eigið líf auk þess
fólks sem hefur verið samferða
henni gegnum lífið undanfarna
áratugi. „Fortíðin á hug minn allan
um þessar mundir og ég er mest
að vinna með sögur og minningar
um sjálfa mig og fólk í kringum
mig. Ég er með mjög gott minni
og finnst til dæmis mokfyndið
hvað allt var kreisí og þótti bara
eðlilegt þegar ég var barn. Þar má
til dæmis nefna námsefni í barna-
skóla sem var allt öðruvísi þá en
í dag. Áherslurnar voru talsvert
öðruvísi, þá mátti alls ekki kenna
okkur neitt um kynlíf og blæðingar
og helst átti að sleppa þeim síðum,
en móðuharðindin fengu afar gott
pláss. Þegar ég leggst á koddann
á kvöldin fer hugurinn oft á flug
og ég fæ ýmsar hugmyndir sem ég
krota niður í bók sem ég hef alltaf á
náttborðinu. Síðan skoða ég þessa
punkta daginn eftir. Sumt er ekki
fyndið en annað lifir og verður að
einhverju skemmtilegu.“
Sparkar í stóla
Grínið gefur henni svakalega
mikið. „Uppistandinu fylgir
heilmikill kvíði sem ég þarf að
sigrast á. Það er æðislegt að finna
adrenalínið fljóta um æðarnar
eftir sýningu, algjörlega tjúlluð
tilfinning. Hins vegar getur tíminn
fyrir sýningu verið erfiður og ég er
yfirleitt mjög skapvond í tvo daga
fyrir sýningu. Þá blóta ég fram og
til baka, sparka í stóla og tauta
með sjálfri mér hvaða andskotans
vitleysu ég sé nú búin að koma mér
út í. En ég hef sjálf glímt við alvar-
legan kvíða og meðal annars lagst
inn á spítala út af honum. Fyrir
mér er þetta ákveðin tækni, að
koma sér inn í kvíðann og sigrast
svo á honum.“
Hún er afar sátt við grín- og
uppistandslandslagið á Íslandi
í dag og segir þjóðina eiga flotta
uppistandara. „Við Íslendingar
erum mjög góð í öllu sem við
tökum okkur fyrir hendur. Ef ég
ætti að nefna leikara og grínista
sem eru í mestu uppáhaldi verð
ég fyrst að nefna Ladda, hann er
nú alltaf fyndnastur. Einnig er
Eggert Þorleifsson algjört æði. Af
uppistöndurum finnst mér þó Ari
Eldjárn vera mörgum ljósárum á
undan öllum öðrum hér á landi,
hann er hrikalega góður.“
Kvikmyndin sígilda Stella í
orlofi á alltaf vísan stað í hjarta
hennar og segist hún alltaf hlæja
jafn mikið að henni. „Ég er með
fortíðarþráhyggju og sæki mikið
í gamalt efni og grín. Mér finnst
Frasier, Staupasteinn og Seinfeld
ógeðslega fyndnir þættir og Goldie
Hawn og Dudley Moore í kvik-
myndinni Foul Play frá 1978 fá mig
enn til að pissa í mig.“
Þarf að láta vaða
Það þarf átak til að brjótast úr viðj-
um vanans á rúmlega miðjum aldri
eins og Anna Þóra hefur gert. Hún
hvetur sem flesta til að gera það
og reyna að láta draumana rætast
eða takast á við nýjar áskoranir í
lífinu. „Þetta er bara spurning um
að brjóta ísinn sem er utan á okkur
flestum. Við eigum það til að vera
eins og klaki sem frýs og höldum
um leið að við þurfum að vera
svoleiðis alla ævi. Það sem þarf er
að þýða klakann, láta bara vaða
og gera það sem við viljum gera í
lífinu. Það gerist nefnilega ekkert
ef okkur mistekst eða klúðrum
aðeins hlutunum. Þótt ég klúðri
uppistandi þá heldur jörðin áfram
að snúast og heimur verður eins.
Því segi ég, maður verður að láta
reyna á draumana.“
Góðar stundir
Henni finnst frábært að vera hluti
af svo öflugum hópi. „Það er ein-
manalegt uppi á sviðinu og ekki
auðvelt að koma niður af því eftir
sýningu, afar hátt uppi, og þurfa
svo að keyra ein heim og skríða
upp í rúm. Núna sitjum við saman
eftir sýninguna og tölum saman en
þar er ekkert heilagt. Þar hvetjum
við hver aðra áfram og komum
með gagnlegar ábendingar um
hvað sé gott og hvað mætti vinna
betur.“
Hún segir þær vera ákveðnar í
því að meika það, ekkert annað sé
í boði. „Við ætlum að taka þennan
markað með trompi. Planið er að
fara með sýninguna út á land á
næstunni og vonandi gengur það
bara vel. Markmiðið er að sigra
Ísland en ekki heiminn. Það er
enda erfitt að þýða uppistand á
annað tungumál, við leyfum bara
Ara Eldjárn að sjá um það.“
Markmiðið er að sigra Ísland
Kvikindisskapur og illkvittnislegur húmor hefur fylgt Önnu Þóru Björnsdóttur frá fæðingu. Hún er
einn meðlima uppistandshópsins Bara góðar sem treður upp í fyrsta sinn á morgun, sunnudag.
Anna Þóra ásamt öðrum meðlimum hópsins Bara góðar. Þær koma fram í
fyrsta sinn á morgun, sunnudag, í Þjóðleikhúskjallaranum í Reykjavík.
„Þótt ég taki oft völdin í partíum og veislum kom það mér á óvart að ég skyldi hafa hugrekki til að fara á svið og segja
brandara,“ segir Anna Þóra Björnsdóttir, uppistandari og meðlimur hópsins Bara góðar. MYND/SIGTRYGGUR ARI
BÆJARLIND 14 - 16 KÓPAVOGUR SÍMI 553 7100 WWW.LINAN.IS
2 0 - 5 0 % a f s l át t u r a f ú t s ö l u v ö r u m
1 0 % a f s l át t u r
a f n ýj u m v ö r u mJ A N Ú A R Ú T S A L A
ALLIR PÚÐAR
20 - 40% AFSLÁTTUR
Shady lampi kr. 23.400
Nú kr. 14.040
-40%
Candy pulla kr. 23.600
Chester sófi kr. 194.900 Nú kr. 16.520
Nú kr. 155.920
-30%
-20%
-30%
Tray hliðarborð kr. 23.900
Nú kr. 16.730
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R