Hlynur - 15.07.1960, Blaðsíða 6
Nýtt
Kaupfélag
/
i
Njarðvíkum
Stjórn hins nýja kaupféiags, talið f. v.: Ólafur Thord-
arsen, Bjarni Einarsson, Jón Bjarnason, Ólafur Sig-
urjónsson og Helgi Helgason.
Kaupfélagið Bjarmi
Föstudagskvöldið 2ð. marz var haldinn stofn-
fundur kaupfélags í Ytri-Njarðvík. Var fund-
urinn haldinn í nýbyggðu verzlunarhúsi, sem
er 320 fermetrar, og sameignarfélag Njarðvík-
inga byggði.
Að stofnun kaupfélagsíns stóðu 150 manns.
Var stjórn felagsins kosin strax á fundinum og
skipa hana þessir menn: Jón M. Bjarnason, for-
maður, Bjarni Einarsson, Olafur Thordarsen,
Olafur Sigurjónsson og Helgi Helgason. Kaup-
félagsstjóri var síðar ráðinn Sæmundur R. Jóns-
son_, áður sölumaður hjá innflutningsdeild SIS.
A neðstu hæð verzlunarhússins er kjörbúð
fyrir matvörur og nýlenduvörur, ennfremur fisk-
búð og mjólkurbúð. A efri hæðinni verða skrif-
stofur, vefnaðarvörudeild og fleira.
Teikningar að hús-
inu geðri Teikni-
stofa SIS og búða-
Sæmundur
eftirlitsmaður SÍS,
Kristinn Ketilsson,
aðstoðaði við upp-
setningu innréttinga.
I buösbænum gættu þess að
skjóta ekki niður flugvélar. Eg
er bara ekki borgunarmaður fyr-
ir slíku.
6 HLYNUR