Hlynur - 15.07.1960, Blaðsíða 14
Geir Andersen, hótelstjóri,
ásamt eiginkonu og barni.
Knattspyrnan ...
Framh. af 9. síðu.
knattspyrnulið. Væri nær að Olíufélag-
ið léki með Samvinnutryggingum.
Síðan þessi leikur var háður hefir lið
STS farið mikla frægðarför móti mörg-
um liðum úr Reykjavík og einnig keppt
á Akureyri, en fékk þar varmar við-
tökur. Verður nánar sagt frá því síð-
ar. Ö.H.
BEÐIST
AFSÖKUNAR
Eg bið alla kaupendur HLYNS pers-
ónulega afsökunar á þeim seinagangi,
sem verið hefir á útkomu blaðsins
í sumar. Ástæðan fyrir þessum drætti
er fyrst og fremst sú, að ég varð að
taka mér ýmiss önnur störf og láta
blaðið sitja á hakanum þeirra vegna.
Ber þar sérstaklega að nefna Ferða-
handbókina. Skal ég ekki fjölyrða meir
um þessi mál, en vona að héðan í frá
verði betur haldið í horfinu.
Orlygur Hálfdanarson.
Hótelstjóri
KEA
1. maí, s. 1. tók til starfa nýr liótel-
stjóri að Hótel KEA. Hann heitir Geir
Ragnar Andersen, fæddur í Reykja-
vík 8.9 1934. 13 ára gamall hóf hann
framreiðslustörf sem ungþjónn á Hótel
Borg í Reykjavík og starfaði þar í 5
sumur. Einnig var hann þjónn á m. s.
Gullfossí um það leyti.
Hann útskrifaðist úr Verzlunarskól-
anum 1956, vann síðan í Landsbank-
anka Islands í Reykjavík um eins og
hálfs árs skeið, eða þar til hann fór
út til Sviss, og var þar á skóla ECOLE
IIOTELIERE heitir hann, í borginni
Lausanne er stendur skammt frá Genf.
I skóla þessum, sem Geir segir að sé
afar strangur, er kennt allt það, er
lýtur að hótelrekstri. Skólinn er starf-
ræktur í þremur deildum (eldhús-,
framreiðsla- og hótelrekstur) til þess
að gefa ihnsýn í alhliða hótelrekstur.
Geir útskrifaðist úr öllum þessum þrem-
ur deildum.
Geir fékk starfstilboð frá
Svissnesku fjallahóteli, en
hafnaði því tilboði, þar sem
honum hafði þá borist tilboð
frá íslandi, þ. e. Hótel KEA.
Geir er kvæntur Brynhildi
Kristinsdótur úr Rvík og eiga
þau einn son, 2 ára.
Slarfsfólk hótelsins er um
:!() manns. Herbergi eru alls
29, eins og tveggja manna,
með 58 rúmum. I hótelinu er
1 stór veitingasallur og 2
minni salir.
14 HLYNUR