Hlynur - 15.07.1960, Page 13

Hlynur - 15.07.1960, Page 13
Guðmundur Tlieodórsson, starfsmaður í mjólkurstöð, Ari Guðmundsson, yfir- bókari, Bjarni Einarsson, vélamaður í frystihúsi, Einar Þorláksson, deildar- stjóri í vörugeymslu, Þórður Jósefsson, afgreiðslumaður. Aftasta röð frá vinstri: Sveinberg Jónsson, skrifstofumaður, Sverrir Kristó- fersson, deildarstjóri í kjötbúð, Þórður Pálsson, gjaldkeri, Skúli Jakobsson, mjólkurbússtjóri, Páll Eyþórsson, starfs- maður í mjólkursamlagi, Iíjálmar Páls- son, bílstjóri, Jón Hannesson, afgreiðslu- maður. A myndina vantar: Pálma Gíslason, deildarstjóra í sölubúð, Þórarinn Þor- leifsson, afgreiðslumann, Zophonías Zophoníasson. bílstjóra, Bergþóru Kristj- ánsdóttur. afgreiðslustúlku í mjólkur- búð. Kennari við Samvinnuskólann Vilhjálmur Einarsson er ráðinn tóm- stundakennari við Samvinnuskólann, tekur hann við þeim störfum af Hróari Björnssyni, sem gegnt hefir þe'.m und- anfarin ár. Vilhjálmur er fæddur 5. júní 1934 á Hafransesi við Reyðarfjörð. Lauk Landsprófi frá Eið- um 1950. Stúdents- prófi úr Stærðfræði- deild Menntaskól- ans á Akureyri 1954 og B.A. prófi úr Dartmouth College í Bandaríkjunum 1956 og prófi í upp- eldislræðum frá Kennnarskóla íslalnds 1959. Vilhjálmur var erindreki Sambands bindindisfélaga í skólum veturlnn 1957 og kennari við Iléraðsskólann að Laugarvatni 1957 til áramóta ’58 og ’59, en þá var hann settur skólastjóri til 1. september 1959. Kennari við Gagnfræðaskóla Austur- bæjar 1959—60. Kona Vilhjálms er Gerður Undórs- dóttir úr Reykjavík og eiga þau tvo syni. Lofaðu engu. Einu sinni var ríkur maður, er var svo nízkur, að hann tímdi aldrei að bjóða vinum sínum til máltíðar. En eitt sinn kom það fyrir, að hann lán- aði hús sitt vini sínum, er hugðist halda veizlu. Vegfarendur urðu furðu- lostnir, er þeir heyrðu glauminn frá húsi nirfilsins, og leituðu frétta hjá dyraverðinum. „0, samsæti, þetta er ekki á vegum húsbónda míns,“ sagði hann. „Slíkan fagnað mun hann ekki halda fyrr en í öðrum heimi.“ Nirfillinn heyrði þetta. Hann æddi út og æpti reiðilega að þjóninum: „Hver hefur leyft þér að gefa loforð fyrir mína hönd?“ Auðugur landeigandi sat að veizlu ásamt gestum sínum. er þjónn hans færði honum seðil, er hann kvað vera frá leiguliða nokkrum er biði svars utan dyra. Letrið á seðlinum var þess efnis, að leiguliðinn bað land- eigandann að lána sér sterkan uxa til áburðar. Landeigandinn kunni hvorki að lesa né skrifa, en vildi ekki láta það spyrjast meðal gesta sinna. Þess vegna þóttist hann lesa það, er á seðlinum stóð, og sagði síðan við þjóninn: „Agætt, segðu honum að ég komi sjálfur strax að máltíð lokinni.“ Vilh jálmur HLYNUR 13

x

Hlynur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.