Hlynur - 15.07.1960, Qupperneq 16
8. árg., 6.—7. TBL. Júní—Júlí 1960.
f
ott aí uiía .
að sala Ferðahandbókarinnar 1960, sem
Hótel Bifröst gaf út hefir gengið mjög
vel. Bókinni var dreyft bæði í Reykja-
vík og útt á land og gekk sá hlutinn,
sem ætlaður var Reykjavík, upp fyrstu
tvær vikurnar.
að frú Hrafnliildur Helgadóttir, stýrir
Hótel Bifröst í sumar. Hrafnhildur er
kona Cuðbjörns Guðjónssonar, sem lengi
stýrði Hótel Bifröst.
að umsetning Kaupfélags Húnvetninga
jókst um kr. 1.846.712.93 síðasta reikn-
ingsár. Kaupfélagið lagði kr. 45.000.00
í lengingu Blönduóssbryggju.
að í næsta blaði verður viðtal við Jón
Þórðarson, prentara í Eddu. Jón hefir
unnið í Eddu frá fyrstu tíð og sett
flest blöð HLYNS.
að Guðlaug Gunnarsdóttir, sem HLYNUR
birti mynd af á forsíðu í síðasta marz-
hefti tók þátt í síðustu fegurðarsam-
keppni og krækti þar í góð verðlaun.
að fræðsludeild SÍS hefir boðizt til kaups
ný kvikmyndasýningavél af Bell &
Howell gerð, en það er sú tegund véla,
sem notuð hefir verið af erindrekum
Sambandsins með mjög góðri raun.
Deildin þarf ekki á vélinni að halda.
en kemur þessu hér með á framfæri,
ef einhver kaupfélaganna hefðu ætlað
sér að kaupa slíka vél.
að inntökupróf í Samvinnuskólann verða
að venju í lok septembermánaðar í
Reykjavík. Hafa þegar borizt allmargar
umsóknir, en umsóknarfrestur er til
1. september.
að fræðsludeild SÍS biður öll kaupfélögin
að senda sér ætíð ársskýrslur sínar. I
þeim er margháttaður fróðleikur, sem
deildinni getur komið að góðu gagni í
starfi sínu.
að í setustofu Bifrastar hefir verið kom-
ði fyrir stórri og fagurri klukku, sem
KEA gaf Samvinuskólanum. Sýnir
KEA mikinn og góðan hug til Sam-
vinnuskólans með gjöfinni og á þakkir
skyldar fyrir.
að blaðamaður frá Samvinnunni fór um
borð í skemmtiferðaskipið Gripsholm,
þegar það var í Reykjavík á dögun-
um. Náði hann tali af skipstjóra og
öðru starfsliði, auk ýmissa farþega,
og kemur frásögn af förinni í ágúst-
hefli Samvinnunnar. Munu margar, góð-
ar myndir, teknar af Þorvaldi Agústs-
syni, fylgja greininni.
að Olga Agústsdóttir, húsmæðrafulltrúi,
fer milli kaupfélaganna í sumar og
heldur húsmæðrafundi að vanda. Verð-
ur að þessu sinni lögð áherzla á
kennslu í hraðfrystingu matvæla.
HLYNUR
, BLAÐ SAMVINNU-
STARFSM ANNA
cr gefinn úl af Sambandi íslenzkra samvinnufél., Starf-
mananfélagi SÍS og Félagi kaupfélagsstjóra. Ritstjóri er
Örlygur Flálfdanarson, en auk hans í ritnefnd Jón Ás-
geirsson og Gunnar Sveinsson, Keflavík. Ritstjórn og af-
greiðsla hjá fræðsludeild SÍS, Sambandshúsintt, Rvík.
Verð: 50.00 kr. árg., 5.00 kr. hefti. Kemur út mánaðarl.