Hlynur - 15.06.1966, Page 2
Hvers vegna að veita
upplýsingar ?
Sérhver starfsmaður, sem verð-
ur fyrir truflunum á daglegum
starfsvenjum sínum, á mjög mikið
undir því komið að honum séu
veittar sem fyllstar upplýsingar. Vit-
að er, að áætlanir um hvers kyns
breytingar kalla oft fram andúð og
óánægju, ef ekki beina mótstöðu, hjá
starfsfólkinu. Því finnst því vera
ógnað af breytingunum, fyrst og
fremst vegna þess að það álítur hin-
ar óþekktu breytingar munu hafa
í för með sér einhverjar þær kring-
umstæður, sem það er ekki visst um
að geta notið sín fyllilega í. Algeng-
ustu rökin í því sambandi eru, að
„maður veit hvað hann hefur, en
ekki hvað hann fær." Breytingin get-
ur haft það í för með sér, að starfs-
maðurinn verði að temja sér nýjar
starfsvenjur, nýja vinnutækni, laga
sig að nýjum vinnufélögum og e.t. v.
skipta um bústað. Því fer fjarri, að
allir séu því hlynntir að þurfa að
leggja slíkt á sig. Innan starfsmanna-
hóps með svipuð vinnuskilyrði og á
svipuðum aldri geta viðbrögðin við
slíkum breytingum orðið hin marg-
víslegustu. Nokkrir líta á þær sem
hvetjandi, örvandi og þroskandi, aðr-
ir líta nánast á þær sem hræðileg
slys. En um breytingar, sem hafa
í för með sér minni tekjur og
erfiðari vinnu, er enginn í vafa. Þær
eru hiklaust neikvæðar, og sama á
við um breytingar, sem hafa í för
með sér minnkandi álit fyrir starfs-
manninn meðal vinnufélaganna, t. d.
fyrir mann, sem er mjög snyrtilegur
í framkomu og klæðaburði og hefur
næg tækifæri til að láta á því bera
í núverandi starfi sínu, en hefur
ekkert tækifæri til sliks eftir breyt-
inguna.
Þannig geta sumir litið á breyting-
ar beinlínis sem hættu. f varnar-
skyni grípa þá sumir til þess að reyna
að koma í veg fyrir að breytingin
nái fram að ganga eða breiðist út,
en afleiðingarnar verða alltaf nei-
kvæðar. í slíkum tilvikum græða
báðir aðilarnir á því að ráðamenn-
irnir í fyrirtækinu gefi sem fyllstar
upplýsingar. Reynslan leiðir í ljós,
að því fyllri upplýsingar sem veittar
eru um áætlaðar breytingar, því
minni andstöðu mæta þær. Til þess
að upplýsingarnar nái tilgangi sín-
um þarf þá að útskýra nákvæmlega
af hvaða ástæðum þær séu gerðar
og fara í smáatriðum gegnum það
hagræði, sem af þeim leiðir. Rétt-
ar upplýsingar, framar öðru gefnar
þegar breytingar eru í undirbún-
ingi, eru mikilvægur liður í stjórn-
arstefnu hvers fyrirtækis. Og auð-
vitað verður sá sem gefur upplýs-
ingarnar að vera vel heima í rekstr-
inum sjálfur. Til þess að geta reikn-
að með góðum árangri af upplýs-
ingunum verður þannig t. d. fræðslu-
fulltrúinn, starfsmannastjórinn eða
annar, sem á að gefa upplýsingarnar,
að vera vel heima í starfsemi fyrir-
tækisins, raunverulegum framtíð-
aráætlunum þess, erfiðleikum þess
og veiku hliðum. Það nægir ekki, að
þeim séu fengnar staðreyndir til að
skýra frá, þeir verða líka að hafa að-
gang að ástæðum sem að baki liggja,
röksemdum og áætlunum til þess að
geta gegnt hlutverki sínu á full-
nægjandi hátt.
Framhald á bls. 14.
2 HLYNUR