Hlynur - 15.06.1966, Síða 15
Vörurýrnun
Frarahald af bls. 12.
Skrásetning.
Alla skemmda ávexti ber að taka strax úr ávaxta- og grænmetisborði
og færa magn og verð í rýrnunarbók.
3. Benzin.
í sambandi við ágóðann verður að álíta, að rýrnunaráhættan sé mikil á
þessari vörutegund.
Sem orsakir rýrnunarinnar má nefna:
a. Starfsfólkið gleymir að skrifa niður selt magn.
b. Viðskiptavinurinn setur sjálfur benzín á og gleymir að borga.
Rýrnun fyrirbyggist með eftirfarandi:
a. Rýrnun af þessari orsök má takmarka með því, að starfsfólkið, strax
eftir áfyllingu (við tankinn), skrifi númer og nafn viðskiptavinarins,
ásamt lítrafjölda og upphæð í skrifblokkina, sem hvort sem er á að
vera í vasanum. Við innborgun í kassann eða við skrásetningu í út-
tektarbók, er annað hvort skrifað greitt eða innfært á frumnótuna,
sem síðan er geymd (á prjóni eða í möppu) til seinni samanburðar við
magn það sem tekið er af tankinum.
b. Tankurinn á að vera læstur.
Forstöðumaðurinn skal jafnaðarlega aðgæta, að farið sé eftir fyrirmælum
og að salan samsvari því magni, sem tekið hefir verið af tankinum.
V. kafli
REIKNINGSHALD
(Búðarbókhald)
Rýrnun í sambandi við búðarbókhald er tekið til meðferðar í neðan-
greindum 9 liðum:
1. Skrásetningarvillur.
2. Gleymist að skrásetja.
3. Vörusendingareikningur.
4. Umbúðareikningur.
5. Vörunotkun í búð.
6. Millireikningur við önnur kaupfélög.
7. Afslættir.
8. Almennt uppgjör.
9. Uppgjör á vörulager.
1. Skrásetningarvillur.
Rýrnunarorsakir eru eftirfarandi:
a. Slæm eða engin verðmerking.
b. Hirðuleysi.
Ráð til úrbóta:
a. Fullkomin og greinileg verðmerking.
b. Duglegt og áhugasamt starfsfólk.
Framhald í næsta blaði.
HLYNUR 15