Hlynur - 15.10.1966, Blaðsíða 10
Skemmtikvöld
hjá
Véladeild SÍS
Ekki alls fyrir löngu efndu starfs-
menn Véladeildar SÍS til fagnaðar
að kvöldi dags. Tilefnið var upphaf-
lega að kveðja nokkra starfsmenn,
sem voru að láta af störfum hjá
deildinni. Það hafði verið siður áður,
að vinnufélagarnir kæmu saman ef
svo bar við, en nú var ákveðið að
hafa þetta veglega samkomu, þar
sem menn kæmu með konur sínar
og/eða fylgikonur. Raunin varð að
vísu sú, að fæstir þeirra, sem kveðja
átti, komu til leiks, en fagnaðurinn
varð engu að síður vel heppnaður,
meira að segja svo vel, að áformað
er að halda slíkum samkomum
áfram.
Fyrir tilmæli HLYNS brá Kári Jónas-
son sér með myndavélina í félags-
heimili Rafveitnanna við Elliðaár,
þar sem skemmtun Véladeildar var,
og þar lét hann gamminn geysa.
Hér sjá lesendurnir árangurinn (og
þó raunar lítinn hluta hans!).
Hér að ofan sjáum við Gunnar
Gunnarsson, starfsmann Véladeildar.
Hann er mörgum að góðu kunnur
sem hljómlistarmaður, og er að jafn-
aði hrókur alls fagnaðar, þar sem
hann kemur. Gunnar var kynnir
kvöldsins og fórst það vel úr hendi.
Að neðan sýnist okkur fara vel
á með þessum þremenningum, Krist-
jáni, Henný og Jóni, okkur er jafn-
ve! ekki grunlaust um, að Jón hafi
verið að segja góðan brandara.
10 HLYNUR