Hlynur - 15.02.1974, Side 2
Iðnaðardeild
Sambandsins 25 ára
Viðtal við Harry Frederiksen
framkvæmdast j óra
Um s. 1. áramót voru rétt 25
ár liðin frá því að Iðnaðardeild
Sambandsins var stofnsett. Að
vísu er iðnrekstur samvinnu-
manna mun eldri að árum, en
áður en deildin kom til sögunn-
ar, heyrði rekstur verksmiðjanna
undir Innflutnings- og Útflutn-
ingsdeildir og var ekki undir
sameiginlegri yfirstjórn. Þess
gerist naumast þörf að fjalla
hér í löngu máli um þann um-
fangsmikla rekstur, sem nú fer
fram á vegum Iðnaðardeildar-
innar, svo kunnur sem hann og
framleiðsluvörur hans eru jafnt
lesendum HLYNS sem öðrum
landsmönnum, en nefna má þó
verksmiðjur deildarinnar, þar
sem fyrst og fremst er að geta
um hinar svo nefndu Sambands-
verksmiðjur á Akureyri, þ. e.
Ullarverksmiðjuna Gefjun,
Skinnaverksmiðjuna Iðunni,
Fataverksmiðjuna Heklu og
Skóverksmiðjuna Iðunni. Á Ak-
ureyri rekur deildin einnig á-
samt Kaupfélagi Eyfirðinga
Efnaverksmiðjuna Sjöfn og
Kaffibrennslu Aku ey ar, en
verksmiðjur hennar annars
staðar á landinu eru Fataverk-
smiðjan Gefjun i Reykjavík,
Rafvélaverksmiðjan Jötunn í
Reykjavík og Húfuverksmiðjan
Höttur i Borgarnesi. Auk þess
rekur deildin í Reykjavík verk-
smiðjuútsölu að Hringbraut 119
og verzlunina Gefjun í Austur-
stræti 10, og i tengslum við hana
enn fremur Hugmyndabankann.
Sem forstöðumaður Iðnaðar-
deildar var hinn 1. janúar 1949
ráðinn Harry Frederiksen, sem
þá átti þegar að baki langan
starfsferil hjá Sambandinu, því
að hann kom fyrst til starfa þar
í októbermánuði 1927. í ársbyrj-
un 1950 var hann svo skipaður
framkvæmdastjóri deildarinnar,
en því starfi hefur hann siðan
gegnt nær samfellt. Það lætur
þess vegna að líkum, að hann
er manna kunnugastur þeirri
þróun mála, sem orðið hefur í
iðnrekstri Sambandsins síðustu
áratugina, svo að í tilefni af
þessum tímamótum fengum við
hann til að rekja í stuttu sam-
tali helztu áfangana í iðnaðar-
uppbyggingunni, ásamt því sem
hann svaraði nokkrum spurn-
ingum varðandi ástand og horf-
ur innan þessarar greinar. Við
hófum samtalið með því að
víkja að þeim þætti í iðnaðinum,
sem snýr að úrvinnslu land-
búnaðarafurða og spurðum,
hvað verksmiðjur deildarinnar
hefðu imnið úr miklu magni af
hráefnum frá landbúnaðinum á
s. 1. ári.
— S. 1. ár var unnið úr rúm-
lega 474 lestum af íslenzkri ull
í Ullaverksmiðjunni Gefjun,
svarar Harry — og til viðbótar
við það kemur svo erlend ull-
arkemba, sem notuð er í kamb-
garnsdúka og fíngerðari fatnað,
og einnig ýmis gerviefni, sem
notuð eru til iblöndunar, þar
sem það þykir henta. Magnið,
sem notað var af þessu tvennu,
var samtals 185 lestir, svo að
samtals er hráefnisnotkunin í
Gefjun á siðasta ári 659 lestir.
í Skinnaverksmiðjunni Iðunni
var svo hins vegar á síðasta
framleiðsluári unnið úr um 370
þúsund gærum og um 4.500
hrossa- og trippahúðum.
— En hverjar voru samsvar-
andi tölur fyrir 25 árum siðan?
— Árið 1949 vann Gefjun úr
176 lestum af ull, en Iðunn sút-
aði um 24 þúsund gærur. Enn
fremur vann Iðunn þá rúmlega
4.200 hrosshúðir og 6.720 naut-
gripahúðir, sem þá voru sútaðar
í leður, fyrir skóverksmiðju
Sambandsins og fleiri skóverk-
smiðjur, og auk þess fyrir ýms-
an annan smáiðnað, svo sem
söðlasmíði, fatasaum og fleira.
Þess má jafnframt geta í þessu
sambandi, að hrosshúðirnar eru
nú loðsútaðar sem skrautskinn,
og fæst fyrir þær mun hærra
verð þannig unnar en áður, þeg-
ar þær voru sútaðar í leður, en
leðursútun hefur legið niðri hjá
okkur síðan 1969, er leðurdeildin
varð eldi að bráð. Það má líka
nefna, að árið 1949 seldi deildin
vörur fyrir 18,4 miljónir króna,
en á s. 1. ári nam salan 1.350
milj ónum.
— Hvert var annars upphaf
verksmiðjurekstrar Sambands-
ins á Akureyri, og var hann ekki
fyrir talsvert löngu kominn til
sögunnar, þegar Iðnaðardeildin
var stofnsett?
— Jú, upphaf verksmiðju-
rekstrar Sambandsins miðaði
aðallega að því að auka atvinnu
í landinu á tímum, þegar at-
vinnuleysi var algengt, jafn-
framt því sem stefnt var að því
að gera innlendu hráefnin verð-
meiri en áður með því að full-
vinna þau í landinu. Eiginlegur
verksmiðjurekstur Sambandsins
hófst árið 1923, þegar hafizt var
handa um afullun á gærum.
Þessi verksmiðjurekstur var
settur upp á Akureyri og starf-
aði um nokkurt, árabil, en leður-
sútun hófst svo árið 1935 á veg-
um Skinnaverksmiðj unnar Ið-
unnar, sem þá var sett á stofn
þar, og árið 1936 var síðan sett
upp innan hennar skóverk-
smiðja, sem framleiddi úr leðri
frá sútunarverksmiðju hennar.
2 HLYNUR