Hlynur - 15.02.1974, Blaðsíða 6

Hlynur - 15.02.1974, Blaðsíða 6
Reynir Ingibjartsson form. LÍS: Ferð um Vestur- og Norðurland Á fyrsta fundi aðalstjórnar Landsambands ísl. samvinnu- starfsmanna i byrjun nóvember s. 1. var m. a. samþykkt að for- maður samtakanna, sem jafn- framt er undirritaður, skyldi leggja land undir fót við fyrstu hentugleika, og heimsækja sem allra flest kaupfélög i þeim til- gangi að kynna hið nýstofnaða landssamband, vinna að stofn- un starfsmannafélaga þar sem það væri mögulegt og stuðla að því, að sem allra flestir sam- vinnustarfsmenn væ:u orðnir félagsbundnir í landssamband- inu fyrir áramótin. í samiæmi við þetta var farið að huga að heppilegustu ferða- tilhögun og þótti ráð að byrja ferðina á Miðvesturlandi og halda síðan norður um allt til Húsavíkur. Mánudaginn 12. nóvember hélt ég svo af stað á fólksvagni sem fararskjóta. Þótti það nokkuð djarft, þar sem vetur var geng- inn í garð og allra veðra von, en það kom á daginn að fólks- vagninn stóð fyrir sínu. Fyrsti áfangastaður var Borgarnes en þar hafði starfsmannafélagið nýlega verið endurlifgað eftir nokkurn svefn. IÍO'garnes Ég náði til Borgarness í tæka tið og um kvöldið var haldinn ágætur fundur í fundarsal kaup- félagsins. Þórir Þorvarðarson, stjórnarmaður í aðalstjórn LÍS og formaður starfsmannafélags- ins og Snæfellingur eins og ég, hafði veg og vanda af öllum undirbúningi, en fundarstjóri var Jón Einarsson. Fundarmenn voru um þrjátíu. Samþykkti fundurinn samhljóða aðild starfsmannafélagsins að LÍS. Það var sérstaklega ánægju- legt að hefja „vísitasíuferð" mína í Borgarnesi. Fyrstu kynni mín af samvinnuhreyfingunni voru i gömlu kaupfélagsverslun- inni í Boi garnesi, þar sem margt girnilegra muna státaði á hill- um og öðrum freistandi stöðum. Þar sem ég ólst upp var reyndar nánast hvert snitti keypt í kaup- félaginu og allt lagt inn i mjólk- ursamlagið og sláturhúsið, og það var mjög merkilegur atburð- ur, þegar ég fékk minn fyrstá reikning frá KBB. Fjórtán- fimmtán ára gamall gekk ég í kaupfélagið og mætti á deildar- fundi í minni sveit vestur í Kol- beinsstaðahreppi, og á þeim fundi var sjálfur Þórður Pálma- son kaupfélagsstjóri, sem ég hafði á tilfinningunni að ríkti nánast sem héraðshöfðingi og réði smáu sem stóru. Einhver fyrstu störf sem ég þáði laun fyrir voru innt af hendi í sláturhúsi kaupfélagsins og þar var nú líf í tuskunum. Þegar ég, nýútskrifaður úr Sam- vinnuskólanum hóf að starfa hjá samvinnuhreyfingunni, sem sjálfsagt þótti i þann tíð, þá var Kaupfélag Borgfirðinga enn einu sinni minn fvrsti viðkomu- staður, og það fyrsta sem ég lærði „sprenglærður verslunar- maðurinn", var að skrifa nótu og ég komst fljótt að því, að eitt er að hafa próf og annað að kunna til þeirra margvíslegu starfa, sem verslun fylgja. Um hásláttinn vann ég m. a. við varahlutaafgreiðslu í sláttuvél- ar, múgavélar og traktora og hafði það á tilfinningunni stundum, að fengist ekki réttur hlutur eða skakkt væri afgreitt, þá fyndist ekki annar öllu óvin- sælli á landinu þá stundina, ekki sist ef það var brakandi þurrk- ur og svo var kaupfélaginu nátt- úrlega bölvað lika. Við hér á Reykjavíkurmölinni gerum okk- ur ekki alltaf grein fyrir því hver lífæð kaupfélagið er venjulegast úti á landi og mikl- ar kröfur gerðar til þess um þjónustu og alls kyns fyrir- greiðslu. Þessi kynni mín af KBB, sem hér eru rakin, eru nú reyndar ekki tilheyrandi þessari ferða- sögu, en þeim er skotið hér að til að sýna, hversu samvinnu- hreyfingin hefur samofist upp- vexti og störfum margra í þessu landi, því margur getur sagt sömu sögu og ég. Víkjum nú aftur að starfs- mannafélaginu. Það hélt á síð- astliðnum vetri árshátíð í félags- heimilinu Lyngbrekku á Mýr- um, þar sem ekkert hús í Borg- arnesi rúmar allt starfsfólk kaupfélagsins. í sumar sem leið var farin skemmtiferð á vegum starfsmannafélagsins. Þá hefur félagið leitað eftir því, að starfs- fólk kaupfélagsins ætti fulltrúa í stjórn kaupfélagsins, en litlar undirtektir fengið fram að þessu. Er það reyndar eitt helsta baráttumál LÍS að vinna að því að starfsmannafélögin eigi full- trúa í stjórnum sem allra flestra kaupfélaga. Á félagsfundinum bárust nokkuð í tal orlofshúsabygging- ar að Hreðavatni og víðar og breytingar á rekstri Bifrastar yfir sumartímann og var svo reyndar á öllum þeim fundum, sem á eftir fylgdu. Hefur komið til tals að Starfsmannafélag KBB eignist hús að Hreðavatni og hefur formaður kaupfélags- ins, Daníel Kristjánsson, bóndi og skógarvörður á Hreðavatni verið þess mjög hvetiandi. Þriðjudagurinn rann upp með fegursta haustveðri, sem hægt er að hugsa sér og ágætur dag- ur var að baki, sem lofaði góðu um framhaldið. Ég hafði líka orðið aðnjótandi góðrar gest- risni þeirra Þóris og konu hans, 6 HLYNUR

x

Hlynur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.