Hlynur - 15.02.1974, Blaðsíða 10

Hlynur - 15.02.1974, Blaðsíða 10
ar hefur tekið fyrir bréf Bréfa- skóla SÍS og ASÍ um fundarstj. og fundarreglur og hinn bréf skólans um betri verslunarstjórn. Gunnlaugur P. Kristinsson hef- ur stjórnað þessum námshringj- um og lét hann vel af þeirri reynslu, sem komin væri. Les- hringastarfsemi er svo til óþekkt hérlendis. Á Gunnlaugur og þeir KEA-menn þakkir skildar fyrir frumkvæði í þessum málum. Nýmæli má nefna og það er, að s. 1. sumar fékk KEA veiði- réttindi í nokkrum vötnum á Skaga og hefur gefið starfs- mönnum kost á veiði þar endur- gjaldslaust. Starfsmannafélagið á fulltrúa í stjóm Lífeyrissjóðs KEA, þ. e. einn af þremur og sit- ur Finnbogi Jónasson nú í sjóðs- stjórninni af hálfu starfsmanna. Sunnudaginn 18. nóvember var svo boðað til félagsfundar hjá Starfsmannafélagi Verksmiðja Sambandsins á Akureyri. Eitt- hvert fjúk var á götunum þann daginn, og til fundar mættu 5!, en starfsmenn verksmiðjanna eru nú um sjö hundruð. Ekki vil ég nú segja að ég hafi sérstakt aðdráttarafl fyrir fólk, hvorki á fundum né annars staðar, en þessu bjóst ég nú ekki við. Þar sem stjórn félagsins var ekki einu sinni öll mætt, var fundi frestað til næsta laugardags, en þá gerði Sigurður Þórhallsson grein fyiir starfsemi LÍS, og á þeim fundi var samþykkt aðild að landssambandinu. Við þessi fáu, sem mættum á sunnudeg- inum snérum þessu upp í spjall um félagið og ýmis verkefni. Var vissulega af nógu að taka, og hafa starfsmenn Sambands- verksmiðjanna vissulega öll tækifæri til að drífa upp fjöl- þætt félags- og menningarlíf. Á s. 1. ári var félaginu afhentur mjög glæsilegur salur til afnota. Þar eru 350 stólar og prýðis að- staða fyrir allt að tvö hundruð manns að hafa þar borðhald og dans. Þarna er gott leiksvið og fullkomin hljómflutningstæki eru til staðar. Svo eru smærri herbergi til fundarhalda og eld- hús. í spjalli við þá Ingólf Ölafs- son, formann starfsmannafé- lagsins, og Þórarin Magnússon, varaformann og stjórnarmann LÍS, kom fram, að verið væri að gera tilraun með klúbbstarfsemi. Hefðu eftirtaldir klúbbar verið stofnaðir: Skákklúbbur, bridge- klúbbur, íþróttaklúbbur, ferða- klúbbur, spilaklúbbur, leikklúbb- ur, kvikmyndaklúbbur, söng- klúbbur og borðtennisklúbbur. Á s. 1. sumri tók ferðaklúbburinn sig til og fjölmennti til Gríms- eyjar með Drangi. Þótti það mikil og góð ferð. Bridgemenn kepptu við Sambandsmenn í Reykjavík s. 1. vetur á heima- vígstöðvum og stefna að suður- ferð í vetur. Þá eru opin kvöld fyrir skák, spil og borðtennis og kvikmyndaklúbburinn er að út- vega sér 16 mm sýningarvél fyr- ir salinn. Það kom fram í þessu rabbi um félagið að barnaheim- ilismál hefur borið nokkuð á góma, og hafa forráðamenn verksmiðjanna og Iðnaðardeild- ar sýnt áhuga á því. Málið hef- ur borist til bæjaryfirvalda varð- andi lóð, en litið orðið um svör þaðan ennþá. Þetta er mjög brýnt mál fyrir bæði verksmiðj- urnar og starfsfólkið m. a. með tilliti til þess, að um eða yfir helmingur starfsfólksins er kon- ur. Þá var pöntunarfélag á dag- skrá og kom þar fram að verk- stjórar verksmiðjanna hafa sér- stakt pöntunarfélag. Er vissu- lega ástæða til þess að allir starfsmenn sitji þar við sama borð. Starfsmannafélagið kýs tvo menn í stjórn lífevrissjóðs verksmiðjanna af fimm. Full- trúar félagsins eru nú Jóhann Bjarmi Simonarson og Hafliði Guðmundsson. Starfsmannafélag Verksmiðja Sambandsins var stofnað 3. maí 1936, og því annað elsta starfs- mannafélag samvinnustarfs- manna. Aðeins KEA-félagið er eldra. Ég varð þess áþreifanlega var á Akureyri að félagslíf sam- vinnustarfsmanna á þar erfitt uppdráttar. Mik.il vinna á þar vissulega nokkra sök en þó ekki nema að hluta. Það er því vissulega mjög brýnt að forráðamenn KEA og Iðnaðardeildar Sambandsins og starfsmannafélögin geri í sam- einingu átak til að snúa ræki- lega við þessu undanhaldi. Þarna á LÍS líka vissulega verk að vinna. Það er vonlaust að gera eitthvað svo vit sé í án starfs- manns, sem tima hefur til að sinna félagsmálum sem aðal- Lesliringur útibússtjóra Matvörudeildar KEA í „Betri verzlunarstjóm“ ásamt Gunnlaugi P. Kristinssyni. 10 HLYNUR

x

Hlynur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.