Hlynur - 15.02.1974, Blaðsíða 9
Stjórn Starfsviannafélags Kf. Skagfirðinga (frá vinstri): Sveinn Friðvinsson gjaldk., Friðrik Sigurðsson varaform., Gunn-
ar Haraldsson ritari og Alfur Keiilsson form. A myndina vantar Ola M. Þorsteinsson meðstj. — Stjórn Starfsmannafélags
KEA (frá vinstri): Anna Tryggvadóttir meðstj., Einar Gunnarsson gjaldk., Guðmundur Búason form., Davíð Jóhannsson
ri.ari og Sigríður Helgadóttir varaform. Myndin er tekin í starfsmannasal KEA.
vinnutryggingum, og héldum
við hópinn á Hótel KEA. Strax
a föstudeginum var haldinn
sameiginlegur fundur stjórna
starfsmannafélaga KEA og verk-
smi'öj a Sambandsins ásamt
stjó:narmönnum í aðalstjórn
f'Is> þeim Gunnlaugi P. Krist-
ínssyni og Þórarni Magnússyni.
Kom reyndar upp úr dúrnum,
a3 þetta var í fyrsta sinn að
stjórnir þessara félaga hittust
til fundar. Á þessum fundi var
fjallað um sameiginleg mál LÍS
°g þessara félaga og félagsfundi
þeirra þá um helgina, en þar
átti að leita staðfestingar félag-
anna á inngöngu í LÍS. Á laug-
a"deginum var svo félagsfundur
1 Starfsmannafélagi KEA og var
öann heldur fásóttur, þegar
tekið er tillit til hinna nærri
f.íögurhundruð félagsmanna.
^undurinn var haldinn í vist-
iegum og notalegum sal, sem
starfsmannafélagið hefur til
umráða. Samþykkt var sam-
hljóða á fundinum aðild Starfs-
mannafélags KEA að LÍS, og
spunnust á fundinum fjörugar
umræður um landssambandið og
verkefni þess. Var m. a. rædd
sú hugmynd að hluti af tekjum
landssambandsins rynni beint
til starfsemi á Akureyri, og
möguleika á því að fá starfs-
mann til að vinna að málum
samvinnustarfsmanna á Akur-
eyri en þeir eru á annað þúsund.
Slíkur starfsmaður gæti þá jafn-
framt unnið fyrir LÍS og verið
tengiliður þess við aðra sam-
vinnustarfsmenn á Norðurlandi.
Formaður Starfsmannafélags
KEA nú er Guðmundur Búason
og stýrði hann þessum félags-
fundi. í spjalli við hann og
Gunnlaug P. Kristinsson, stjórn-
armann LÍS, um starfsemi
starfsmannafélagsins, kom fram
eftirfarandi. Starfsmannafélag
KEA er elsta félag samvinnu-
starfsmanna hérlendis, stofnað
1931. Eitt fyrsta veikefni félags-
ins var að reisa sér skála í
Vaglaskógi, sem nefnist „Bjark-
arlundur“. Skáli þessi hefur not-
ið mikilla vinsælda á liðnum ár-
um, en hins vegar fullnægir
hann ekki lengur þörf félagsins
fyrir orlofsaðstöðu og ekki eru
möguleikar á byggingu fleiri
húsa í Vaglaskógi. Hefur starfs-
mannafélagið haft uppi áform
um það að eignast tvö hús að
Hreðavatni í næsta áfanga þar.
Árshátið og barnaskemmtun
eru fastir liðir hjá félaginu. Hins
vegar hefur lítið farið fyrir
ferðalögum hin síðari ár. Starf-
andi eru innan félagsins m. a.
bridgenefnd, skáknefnd og í-
þróttanefnd. Hafa bridgemenn
þreytt keppni við Sambands-
menn í Reykjavík í fjölda ára
og oft haft sigur. Nú er keppt
um bikar, sem Valur Arnþórsson
kaupfélagsstjóri hefur gefið og
hefur hvort lið unnið hann einu
sinni. Þá hefur einnig verið
keppt við starfsmenn verksmiðj-
anna í bridge, og staðið fyrir
tvímenningskeppnum,. Skák-
menn á KEA marga góða, m. a.
er formaðurinn þar með þeim
snjöllustu. S. 1. vetur kom sveit
suður til Reykjavíkur til keppni
við skákklúbb Hamragarða og
vann sigur. Fara Reykvíkingar
væntanlega norður í vetur og
endurgjalda heimsóknina. Þá
hafa skákmenn KEA árlega
þreytt keppni við Skákfélag Ak-
ureyrar og nemendur Mennta-
skólans. íþróttamenn á KEA
marga og góða. Er árlega tekið
þátt i firmakeppnum í fótbolta
og handbolta. Á s. 1. ári urðu lið
Starfsmannfélags KEA i öðru
sæti í báðum þessum keppnum.
í vetur tók starfsmannafélag-
ið upp samstarf við Námsflokka
Akureyrar um kennslu í ensku
og dönsku, og greiðir KEA náms-
gjöld þeirra, sem ljúka námi í
þessum greinum. Þá hafa starf-
að í vetur tveir námshringir
meðal starfsmanna KEA. Ann-
HLYNUR 9