Hlynur - 15.02.1974, Blaðsíða 14
Jónas Valdimarsson er fæddur 25.
júlí 1898 í Keflavík. Foreldrar hans
voru Valdimar Jónasson stýrimað-
ur og kona hans Júlía Jónsdóttir.
Þegar Jónas var fimm ára gamall,
fórst faðir hans í fiskiróðri. í fram-
haldi af þeim atburði lá leið hans
vestur í Dýrafjörð, þar sem hann
ólst upp hjá vandalausum manni,
Finnboga Friðrikssyni á Núpi. Frá
14 ára aldri stundaði Jónas sjó-
mennsku, unz hann réðist til Sam-
bandsins 1. júní 1947, fyrst sem
lausráðinn vikukaupsmaður og síðar
fastráðinn starfsmaður á smurstöð
Sambandsins, unz henni var lokað
fyrir rúmu ári síðan. Vinnur hann
nú um stund við móttöku og hreins-
un bíla. —• Jónas er kvæntur Krist-
björgu Þóroddsdóttur, og áttu þau
saman fimm börn. Mynd af Jónasi
var því miður engin til.
Skarphéðinn Kristjánsson er
fæddur að Hraunsmúla í Staðar-
sveit á Snæfellsnesi 17. maí 1922.
Foreldrar hans voru Danfríður
Brynjólfsdóttir og Kristján Páls-
son búendur þar. Hann ólet þar unp
við almenn sveitastörf, en lagði því
næst fyrir sig akstur bifreiða. Til
Véladeildar Sambandsins réðst hann
1. sept. 1948 til afgreiðslu varahluta
og hefur unnið hjá deildinni síðan.
— Kvæntur er Skarphéðinn Ágústu
Guðmundsdóttir, og eiga þau fimm
börn.
Svavar Sigurðsson er fæddur 23.
júní 1918 að Litlu-Ásgeirsá í Vest-
ur Húnavatnssýslu. Foreldrar hans
voru Sigurður Jónsson og Guðbjörg
Símonardóttir búendur þar. Svavar
fluttist með foreldrum sínum til
Reykjavíkur 8 ára að aldri. Að loknu
skyldunámi stundaði hann sjó-
mennsku um 20 ára skeið, þar á
meðal hjá Eimskipafélagi íslands.
í maímánuði 1946 réðist hann til
Skipadeildar Sambandsins á
Hvassafell og var þar um 10 ára
skeið. Þá gerðist hann verkstjóri hjá
Sambandinu, um árabil í Þorláks-
höfn og nú við Sundahöfn. — Svav-
ar er kvæntur Erlu Valdimarsdótt-
ur, og eiga þau þrjú börn.
★
Úr
ýmsum
áttum
Afmælisrit Pf. Eskfirðinga
Pöntunarfélag Eskfirðinga á
fjörutíu ára starfsafmæli um þess-
ar mundir, og af því tilefni hefur
félagið gefið út myndarlegt af-
mælisrit, um 70 lesmálssíður að
stærð. Samningu ritsins hefur
Einar Bragi Sigurðsson rithöfund-
ur annazt, en þar rekur hann verzl-
unarsögu Eskifjarðar það sem af
er þessari öld, m. a. aðdraganda og
stofnun Pöntunarfélagsins, auk
þess sem hann greinir frá æviferli
Arnþórs Jensens, sem verið hefur
framkvæmdastjóri þess frá byrjun.
Þá eru allmargar myndir í ritinu,
taldir eru upp allir stjórnarmenn
þess og endurskoðendur og einnig
starfsfólk frá byrjun, og loks eru
birtir reikningar félagsins fyrir ár-
ið 1972. Rit þetta er hið myndar-
legasta að allri gerð og til mikillar
fyrirmyndar hvað frágang snertir.
KEA-fregnir
3. tbl. s. 1. árs af KEA-fregnum,
fjölrituðu fréttabréfi Kf. Eyfirðinga
á Akureyri, barst okkur í hendur
skömmu fyrir jólin. Þar eru birtar
ýmsar fréttir úr starfsemi félagsins,
m. a. frásögnin af skipulagningu
nýbyggingar þess við Hafnarstræti
95 á Akureyri, sem við birtum hér
í síðasta blaði. •— Ábyrgðar-
maður KEA-fregna er Valur Arn-
þórsson kfstj., en umsjón annast
Gunnlaugur P. Kristinsson fræðslu-
fulltrúi félagsins.
Tankflutningar á mjólk
í KEA-fregnum segir m. a. frá
þvi, að í byrjun okt. s. 1. hafi byrj-
að tankflutningar á mjólk með sér-
stökum tankbílum til Mjólkursam-
lags KEA, en það hefur keypt tvo
bíla í þessu skyni. Getur hvor um
sig flutt 7.500 lítra í einu. í vetur
átti síðan að taka mjólk tvisvar
í viku af um 60 bæjum á Svalbarðs-
strönd og í Öngulstaðarhreppi, svo
fremi að færð leyfði, en annan
hvern dag á sumrin. Fyrsta dag
tankflutninganna voru fluttir rúm-
lega 7.000 lítrar frá 14 bæjum á
Svalbarðsströnd, og tókst það með
ágætum.
Á aðalfundi Mjólkursamlagsins
1971 var samþykkt, að unnið skyldi
að tankvæðingu samlagssvæðisins í
áföngum, og á henni að ljúka 1977.
Allt frá stofnun samlagsins 1928
hafa bændur sjálfir séð um flutn-
ing mjólkurinnar til þess, og þessi
45 ár hefur hún öll verið flutt í
mjólkurbrúsum. En með þeirri
treytingu, sem nú verður með til-
komu tankbílanna, mun Mjólkur-
samlagið taka að sér að annast
flutningana.
Málverk til Danadrottningar
Þegar Margrét Danadrottning og
H'nrik eiginmaður hennar komu til
Akureyrar í sumar, höfðu þau á-
samt föruneyti sínu aðsetur á
Hótel KEA þær 5—6 stundir, sem
þau stóðu við í bænum. Kaupfélags-
stjóri KEA tdkynnti drottningu, að
KEA gæfi henni málverk til minja
um dvölina á hótehnu, en það er
eftir Kára Eiríksson og heitir
„Fjallakyrrð". Það er nú komið á
sinn stað í bústað drottmngar, og
hefur KEA borizt mjög vinsamlegt
þakkarbréf frá henni fyrir gjöfina.
Félagsmálastarfsemi
Þá segir einnig talsvert frá fé-
lagsmálastarfsemi KEA í frétta-
bréf'nu. M. a. voru húsmæð»-afund-
ir haldnir s. 1. vor víðs vegar á fé-
lagssvæð'nu, sem 375 konur sóttu,
og fyrri hluta ársins fensu efstu
bekkir unglingaskóla í Eyjafirði
flestir heimsókn af fræðslufulltrúa
félassins, sem sýndi litskuggamynd-
ir, flutti erindi um starfsemi KEA
og uppbyggingu kaupfélaga og svar-
aði fyrirspurnum. Þá segir þar frá
leshringastarfsemi á vegum félavs-
ins, sem HLYNUR hefur áður skýrt
frá, og loks er þess getið, að 25—30
starfsmenn KEA stundi nú nám í
ensku og dönsku á tungumálanám-
skeiðum í samvinnu v;ð Námsflokka
Akureyrar. Greiðir kaupfélagið
hluta námsgjalds þeirra starfs-
manna, sem ljúka námskeiðinu.
Vörur í heilum pakkningum
með afslætti
S. 1. vor hóf Birgðastöð Matvöru-
deildar KEA sölu á nokkrum mat-
14 HLYNUR