Hlynur - 15.02.1974, Side 8

Hlynur - 15.02.1974, Side 8
Hvammstanga, var kófið orðið svo dimmt að vonlaust var að halda lengra. Áætlað hafði ver- ið að koma við á Hvammstanga í bakaleiðinni, en nú var snúið þangað og þegar til Hvamms- tanga kom sá vart á milli húsa. Ég var ókunnugur staðnum og hvar kaupfélagið var. Sé ég þá ekki hvar stendur skilti upp úr hríðarkófinu og var þar komið hið nýja merki Sambandsins og kaupfélaganna. Var það góður vegvísir í þetta sinn. Vil ég koma því hér að, að þetta sameigin- lega merki er mjög þarft og stórmikil kynning á samvinnu- félögunum. Merkið er svipmikið og leynir sér því hvergi, og þeir sem ferðast um verða margs vísari um umfang samvinnu- starfsins um land allt. Þegar kaupfélagið var fundið leitaði ég uppi Sigurð Björnsson, sem mætt hafði af hálfu starfs- fólks Kaupfélags V-Húnvetninga i Bifröst á stofnþingið. Ákváð- um við Sigurður síðan að hóa saman fólki þá um kvöldið ef veður leyfði. 7-8 manna rabb- fundur var svo haldinn á skrif- stofum kaupfélagsins og bar þar margt á góma. Kom fram mikill áhugi á félagsstofnun, og nú þegar þetta er ritað, hefur starfs- mannafélag verið stofnað hjá KVH með þátttöku velflestra starfsmanna og er Sigurður Björnsson formaður þess. Sauðárkrókur Ferðaveður fimmtudagsins var skaplegt og nú var ferðinni heit- ið til Sauðárkróks en ákveðið að stoppa á Blönduósi á leið að norðan. Lítið var um bílferð- ir á þessum tíma og áskotnuðust mér semferðafélagarfráBlöndu ósi til Varmahlíðar tvær ungpí- ur, sem þurftu að komast til Ak- ureyrar til að fara í partý og njóta skemmtanalífs höfuðstað- ar Norðurlands. Létti þetta að sjálfsögðu mjög ferðaskapið. Á Sauðárkróki var strax heils- að upp á gamla skólafélaga. þá Álf Ketilsson, formann starfs- mannafélagsins og Guðbrand Þorkel Guðbrandsson. Um kvöld- ið var svo félagsfundur í starfs- mannafélaginu og var hann haldinn i stórum og glæstum sal í nýreistu sláturhúsi Kaupfélags Skagfirðinga, sem tók til starfa s. 1. haust. Salur þessi er mat- stofa í sláturtíðinni, en að öðru leyti verður notkun hans og um- sjá væntanlega í höndum starfs- mannafélagsins, og verður hann búinn að öllu leyti með tilliti til þess, að nota hann til marg- Starfsmannafélag Kaupfélags Vestur-H únvetninga ( skamm- stafað Sf. KVH) var stofnað 28. desember s. I. 1 fyrstu stjóm þess eru: Sigurður Björnsson, Anna Agiístsdóttir, Brynjólfur Sveinbergsson. háttaðs félags- og skemmtana- starfs. Salurinn rúmar vel um tvöhundruð manns og mun m. a. mega þakka það fram- sýni og áhuga kaupfélagsstjór- ans, Helga Rafns Traustasonar, að starfsmannafélagið fær í hendur aðstöðu sem þessa. Svo vikið sé aftur að félags- fundinum þá sóttu hann um tuttugu manns og voru um”æð- ur fjörugar og almennar. For- maður félagsins stýrði fundi og enn vo”u orlofshúsabyggingar mest á dagskrá. Starfsmannafé- lag Kaupfélags Skagfirðinga var stofnað 7. maí í fyrra og vo~u stofnfélagar 87. Var megintil- gangurinn með félagsstofnunni að vinna að því að félagið eign- aðist sem fyrst tvö orlofshús að Hreðavatni. Starfsmannafélagið gekk í LÍS án fyrirvara á stofn- þinginu og fullUúar þess þar, þeir Álfur og Friðrik Sigurðsson voru einna mestir hvatamenn þess á stofnþinginu, að LÍS beitti sér fyrir byggingu orlofs- húsa að Hreðavatni fyrir starfs- fólk kaupfélaganna. Það var ánægjulegt að finna það á Sauðárkróki, að þótt kaupfélagið stæði í stórræðum og miklum fjárfestingum, þá gleymdist starfsfólkið ekki, þeg- ar félagsaðstaða var annars vegar. Held ég að á engan sé hallað, þótt haldið sé á lofti hlut Helga Rafns kaupfélagsstjó:a í þessu efni. Akureyri Þegar haldið var frá Sauðár- króki til Akureyrar daginn eftir var staldrað við hjá enn ein- um gömlum skólafélaga frá Bif- röst, sem brotið hafði að baki sér allar brýr kyrrsetumannsins og gerst bóndi í Skagafirði. Þetta var Vésteinn Vésteinsson bóndi í Hofstaðaseli í Viðvíkursveit. Vésteinn var reyndar í mikilli önn við að fuilklára nýbyggð fjárhús fyrir veturinn, þegar mig bar að garði, en gestrisnin brást ekki frekar en endranær og ég hélt óvenju bjartsýnn á- fram ferð minni til Akurey ar. Það eykur manni alltaf trú á mannlífið og tilveruna, þegar maður hittir einstaklinga, sem ganga ekki alltaf hinn breiða og þægilega veg, en ráðast í lif- andi og rótföst verkefni eins og það að byggja upp og rækta húsa- og túnlausa jörð, eins og þau hjón, Vésteinn og Elínborg, hafa gert. Það ætti að senda hvern einasta kyrrsetumann til starfa í sveit og á sjó a. m. k. einn mánuð á ári. Þá væ:i kannski einhver von um farsælla mannlíf en það, sem nú þrífst i pappírsheimi bo-garlífsins við Faxaflóa. Þetta var nú enn einn útúrdúrinn frá ferðalaginu, en geta má þess að Vésteinn er ekki eini bóndinn með Sam- vinnuskólapróf í Skagafirði. Álf- ur starfsmannafélagsformaður er jafnframt bóndi i Brenni- gerði, rétt við Sauðárkrók og ferst búskapurinn vel úr hendi. Þegar til Akureyrar kom var þar fyrir gjaldkeri LÍS, Sigurður Þórhallsson ásamt nafna sínum Guðmundssyni, báðir frá Sam- 8 HLYNUR

x

Hlynur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.